Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Silfrið var stútfullt af válegum tíðindum...

Það er ekki nóg að setja þessa menn á válista, það á að handtaka þá alla með tölu og kyrrsetja "eigur" þeirra.

Ég hef áður sagt það hér að mig grunar að Bretar hafi haft gildar ástæður fyrir því að Landsbankinn var settur á lista yfir þá sem stunda hryðjuverkastarfsemi.

Okkar helsta vá þessa daganna er hættan á því að þessir sömu menn komi með þetta illa fengna fé og kaupi Ísland á brunaútsölu, eins og einhver sagði í Silfrinu í dag.

Gott Silfur í dag, en ekki var það til að bæta hjá manni skapið, nema ef skildi sú staðreynd að við eigum fólk sem veit hvernig hlutirnir ættu að vera.....

Silfrið var stútfullt af válegum tíðindum - Hverjir ætla að stoppa þessa ósvinnu?  Stjórnmálamenn, sem létu þetta viðgangast í allt of langan tíma?  Þeir eru alla vega tilbúnir í næstu törn.....flestir þeirra.


mbl.is Útrásarvíkingana á válista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég mótmæli fjárglæframönnum gömlu bankanna!

"Gamli Landsbankinn áætlar að afskrifa 1.452 milljarða króna að lokinni skuldajöfnun."

Ég get sjálfsagt borið höfuðið hátt, því inni í þessari upphæð er ekki króna af mínum skuldum.  Það stendur ekki til að afskrifa eina krónu af minni skuld við Gamla Landsbankann, hún færðist einfaldlega óáreitt með hækkandi vöxtum yfir í þann Nýja.

Ég þarf ekki að kvarta, enda í nokkuð öruggri vinnu, þótt hún sé illa launuð.  Ég man þá gömlu góðu daga, þið vitið....2007, þegar stjórnmálamennirnir kepptust hver í kapp við annan að tala um það ranglæti að fólk í umönnunar- og uppeldisstéttum væri svo illa launað að skömm væri að fyrir hið ísl. þjóðfélagW00t.  Þessi málflutningur stjórnmálamanna entist alveg fram til mánaðarmóta september - október 2008....en svo kom "niðursveiflan"....sem smátt og smátt varð að kreppuFrown

Nú erum við sem vinnum þessi störf, hin breiðu bök samfélagsins....eina ferðina enn.  Nú skal skorið niður í þessum geira og starfsfólkið skal sko bara þakka fyrir að hafa atvinnu og ekkert múður.

Ég hafði ca kr. 1000.- aukalega á tímann fyrir vinnu s.l. jólanótt.  Þar vakti ég ein yfir 9 skjólstæðingum mínum.  Hvað eru skilanefndarmennirnir með í laun á tímann?

Ríkisspítalarnir þurfa að skera niður um upphæð, sem samsvarar andvirði eins sumarbústaðar í London í eigu f.v. bankastjóra KaupþingsUndecided

Það er 20. mótmæla/samstöðu fundurinn á Austurvelli í dag.  Ég kemst ekki, þarf að vinna og er svo heppin að hafa vinnu.  Ég mun mæta næsta laugardag, það er á hreinu, því ég þarf ennþá að mótmæla svo mörgu.  Ég vil aukna áherslu á mótmæli gegn fjárglæframönnunum.

Ræðumenn dagsins á mótmælunum eru:

  • Marinó G. Njálsson,  ráðgjafi.
  • Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra.


Fundarstjóri: Hörður Torfason.

 


mbl.is Afskrifa 1.500 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðærisþjófar vs. kreppuþjófar...

Hver er munurinn? 

Munurinn felst sennilega í því að öll ráð verða notuð til að koma hinum síðarnefndu í betrunarvist, sem sumir viðkomandi verða bara sælir með; þeir fá frítt fæði og húsnæði Woundering

Góðærisþjófarnir, sem komu þjóðarbúinu á hausinn munu að öllum líkindum óáreittir fá að sólunda sínu stolna fé á títtnefndum KyrrahafseyjumAngry


mbl.is Meira stolið í kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristalskúlan

Ég veit að ég telst ansi svartsýn á framhaldið hér á landi.....en hafið þið lesið þetta?W00tDevil HFF

Ef svona spár eiga eftir að rætast og við eigum eftir að hörfa langt aftur í tíma, vona ég að við lendum aftur í BítlatímanumWhistling


Siðspilltir "þjónar" fólksins!

Ég get bara ekki setið orðlaus undir því rugli sem, borgarfulltrúinn og formaður borgarráðs Óskar Bergsson lét yfir okkur ganga í Kastljósþætti kvöldsins  sjá hér.

Hann talar þar um að hann hafi boðið flokkssystkinum sínum, sem voru þátttakendur í ráðstefnu Sambands ísl. sveitarfélaga dagana 13. og 14 nóv. sl. til fundar og móttöku undir því yfirskyni að kynna þeim  Aðgerðaráætlun Reykjavíkur v/breytts efnahagsástands.

Skv. dagskrá  "Fjármálaráðstefnu sambands sveitarfélaga 2008" kemur fram að borgarstjórinn í Reykjavík Hanna Birna Kristjánsdóttir kynnti ráðstefnugestum þessa sömu aðgerðaráætlun kl. 13:45, fimmtudaginn 13. nóv.  Sjá dagskrá ráðstefnu hér að neðan.

Ég efast ekki um að kynning Hönnu Birnu hafi verið vel flutt og skiljanleg öllum ráðstefnugestum....eða er Óskar Bergsson að segja okkur að hann hafi þurft að stafa þetta sérstaklega fyrir sín flokkssystkin með léttum veitingum á kostnað borgarbúa, á sama tíma og allir borgarstarfsmenn þurfa að sæta launaskerðingu vegna erfiðs efnahagsástands.

Mér finnst kostnaðartalan við þessa "móttöku" ekki skipta meginmáli í þessari umfjöllun og dreg reyndar stórlega í efa að upphæðin sem Óskar nefndi í þessu viðtali sé rétt.  Í þessu sambandi er samt hægt að benda á að ófaglærðir starfsmenn á leikskólum borgarinnar fá þessa upphæð útborgaða eftir eins mánaðar erfitt starf í þágu borgarbúa.

Stjórnmálamenn sem haga sér svona eru að mínu mati siðspilltir eiginhagsmunaseggir sem mega svo sannarlega missa sín.

Ég veit ekki betur en að svona "móttökur" hafi yfirleitt verið á kostnað flokkanna sjálfra og finnst það óafsakanlegt að velta þessum kostnaði yfir á borgarbúa. 

Fimmtudagur 13. nóvember
09:30Skráning og afhending fundargagna
10:00Ræða formanns sambandsins
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
10:20Ræða fjármálaráðherra
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
 Fyrirspurnir og umræður 
11:00Hvert stefnir í fjármálum sveitarfélaga?
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
11:20

Lánasjóður sveitarfélaga
Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri

 Fyrirspurnir og umræður
12:15HÁDEGISVERÐUR 
13:30Sveitarfélögin á tímamótum
Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála og samgönguráðherra
13:45Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar – breyttar forsendur, breyttar áherslur
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
14:00Áætlunargerð í skugga kreppu
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar
14:15Lítið sveitarfélag í ótryggu umhverfi
Eyrún I. Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps
14:30Almennar umræður um fjármálalega stöðu sveitarfélaga
15:30KAFFIHLÉ
15:50Kreppan í Finnlandi, hlutverk sveitarfélaga og atvinnuuppbygging á erfiðleikatímum
Sigurbjörg Árnadóttir, framkvæmdastjóri Bjálkans ehf.
 Fyrirspurnir og umræður
16:30

Ráðtefnunni frestað til næsta dags. Boðið upp á léttar veitingar.

 


mbl.is Vill að Óskar Bergsson segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja sitjandi þingmenn breytingar?

Ég er ekkert of bjartsýn á að þetta frumvarp fáist samþykkt í þingflokkunum.  Þar sitja jú þeir aðilar, sem telja sig að öllu óbreyttu vera í "öruggu" sætunum.  Flestir þeirra sem sitja í þessum þingflokkum í dag eru að sækjast eftir endurkjöri og kjósa því væntanlega að þeirra eigin flokksmenn fái að ráða en ekki einhverjir óflokksbundnir "lýðræðissinnar" úti í bæ.

En átti ekki annars að ræða þetta á Stjórnlagaþingi?  Trúir því einhver að breytingar geti orðið ef valið er sett í hendurnar á sitjandi þingmönnum, sem vilja sitja áfram?


mbl.is Persónukjör í kosningunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er IMF úlfur í sauðagæru?

skuldathraelar.jpgÉg held við gerum okkur flest fyllilega grein fyrir því að við höfum verið hneppt í þrældóm og vosbúð vegna þeirra skulda sem okkur sem þjóð er uppálagt að borga...og þá erum við bara að tala um þær skuldir sem komnar eru upp á yfirborðiðAngry

Sumir hafa haldið því fram að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi verið okkar eina von í stöðunni en eftir að hafa lesið þennan pistil var mér allri lokið og kvíði minn breyttist í andvöku martröðDevil

Það er vor í lofti en það mun líða langur tími þar til vorar í íslenskum efnahag.  Búum okkur undir langan veturFrown


mbl.is Láta hýða sig í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geymsluplássið er dýrt...

...og ég gæti alveg geymt eitt stykki bíl fyrir bílasalana í einhvern tíma því bíllinn hjá mér er í lamasessi og sú upplifun er mín mesta "frelsissvipting" hingað tilW00t  Ég veit, ég veit, líf mitt hefur verið dans á rósumBlush og veit ekki hvað raunveruleg fangelsun þýðirUndecided

Ég myndi gjarnan vilja fjárfesta í nýlegri bíldruslu, en það er bara ekki í myndinni að svo stöddu.  Ég missti af síðasta mótmælafundi, þar sem strætókerfið var mér framandi, vissi ekki að ferðum fækkaði um helgarWoundering

Mér var vinsamlega bent á það í morgun að ég gæti slegið 2 flugur í einu höggi, þ.e. komast á staðinn og mótmæla hljóðlega eins og "lög gera ráð fyrir" með því að mæta svona á næsta mótmælafund:

hljo_latur_motmaelandi_794765.jpg 


mbl.is Alkul í bílasölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluaðlögun v/góðærisflipps!

Þetta hlýtur að vera það sem átt er við með "góðærisflipp"W00t.  Að kaupa sér bústað á Manhattan ogjon_sgeir_og_ingibjorg.jpg greiða fyrir með 3ja milljarða króna yfirdrætti  frá viðskiptabankanum mínum skv. Orðinu á götunni.  Hvað voru menn eiginlega með rúma yfirdráttarheimild?

Ég veit vel að viðskipta umsvif þeirra hjóna hafa verið stjarnfræðilega mikil og yfirdráttarheimild þeirra þess vegna aðeins hærri en gengur og gerist hjá öðrum Jónum og Ingum.

Ég er ennþá að lesa um og heyra að "þjóðin" hafi verið á  góðærisflippi.  Það getur vel verið að sú sé reyndin með einhverja, sem vegna ágætra tekna hafi freistast til að auka yfirdráttinn.  En ég veit að láglaunastéttir höfðu ekki þennan aðgang að auknum yfirdrætti eða lánum...bankamennirnir voru einfaldlega ekkert að hygla þessu fólki.

Ég bíð enn í ofvæni og með kvíðhnút í maganum eftir væntanlegu frumvarpi um "greiðsluaðlögun" skuldara.  Mér skilst að það eigi að þrengja töluvert upprunaleg frumvarpsdrög og koma bara til móts við þá sem hafa lækkað í tekjum vegna atvinnumissis um meira en 20%.  Þeir sem enn halda atvinnu, þó að um láglaunafólk sé að ræða verða að öllum líkindum skildir útundanAngry.

Hjónakornin Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálma, ættu að athuga með greiðsluaðlögun, því þau falla vafalaust undir þessa skilgreiningu ráðamanna.  Þau geta örugglega sýnt fram á meira en 20% samdrátt á tekjum vegna hrunsinsShocking.

hulda_gunnlaugsdottir.jpgVil svo benda á að Huldu ríkisspítalaforstjóra er gert að skera niður um 3 milljarða á fjárlögum þessa árs, sjá hér.  Þetta er sama upphæð og Jón og Inga gátu tekið út með sinni "yfirdráttarheimild" vegna kaupa á "hvíldaraðstöðu" á Manhattan.

Hvað ætli Hulda þurfi að loka mörgum "hvíldarinnlagnar" plássum fyrir fársjúkt eldra fólk í þessum niðurskurði sínum?


mbl.is Selja íbúð á Manhattan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velmenntaðir hálf-vitar!

Reynslulausir "vel menntaðir" hálf-vitar komu þjóðinni í áratuga skuldafen.  Ég segi hálf-vitar, þar sem flestir sem komnir eru til "vits" og ára, hafa gert sér grein fyrir því að menntun ein og sér hefur ekkert með vit að gera.  Vitið kemur með reynslunni.

Ég mun alltaf muna eftir orðum unga viðskiptafræðingsins, sem kom til starfa í fjölskyldufyrirtækinu sínu úti á landsbyggðinni: 

"Á þeim 4 árum sem ég hef starfað hér hjá fyrirtækinu, hef ég lært meira um rekstur fyrirtækis en háskólamenntun mín hefði nokkurn tíma getað búið mig undir"!

Menntun er að sjálfsögðu góð undirstaða, en það er reynslan sem gerir fólk að sérfræðingum.

Í dag er að ég held 19. mótmæla/samstöðu fundur Radda fólksins á Austurvelli.  Hann hefst að venju kl. 15:00.

Í dag ætla ég m.a. að mótmæla því að ungir "vel menntaðir" en reynslulitlir hálf-vitar voru settir við stjórnvölinn í viðskiptabönkunum.

Ræðumenn dagsins eru:

  • Elísabet Jónsdóttir, ellilífeyrisþegi
  • Ágúst Guðmundsson, leikstjóri

Fundarstjóri er: Hörður Torfason.

 

 


mbl.is Reynslulausir réðu í bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband