Leita í fréttum mbl.is

Ég mótmæli fjárglæframönnum gömlu bankanna!

"Gamli Landsbankinn áætlar að afskrifa 1.452 milljarða króna að lokinni skuldajöfnun."

Ég get sjálfsagt borið höfuðið hátt, því inni í þessari upphæð er ekki króna af mínum skuldum.  Það stendur ekki til að afskrifa eina krónu af minni skuld við Gamla Landsbankann, hún færðist einfaldlega óáreitt með hækkandi vöxtum yfir í þann Nýja.

Ég þarf ekki að kvarta, enda í nokkuð öruggri vinnu, þótt hún sé illa launuð.  Ég man þá gömlu góðu daga, þið vitið....2007, þegar stjórnmálamennirnir kepptust hver í kapp við annan að tala um það ranglæti að fólk í umönnunar- og uppeldisstéttum væri svo illa launað að skömm væri að fyrir hið ísl. þjóðfélagW00t.  Þessi málflutningur stjórnmálamanna entist alveg fram til mánaðarmóta september - október 2008....en svo kom "niðursveiflan"....sem smátt og smátt varð að kreppuFrown

Nú erum við sem vinnum þessi störf, hin breiðu bök samfélagsins....eina ferðina enn.  Nú skal skorið niður í þessum geira og starfsfólkið skal sko bara þakka fyrir að hafa atvinnu og ekkert múður.

Ég hafði ca kr. 1000.- aukalega á tímann fyrir vinnu s.l. jólanótt.  Þar vakti ég ein yfir 9 skjólstæðingum mínum.  Hvað eru skilanefndarmennirnir með í laun á tímann?

Ríkisspítalarnir þurfa að skera niður um upphæð, sem samsvarar andvirði eins sumarbústaðar í London í eigu f.v. bankastjóra KaupþingsUndecided

Það er 20. mótmæla/samstöðu fundurinn á Austurvelli í dag.  Ég kemst ekki, þarf að vinna og er svo heppin að hafa vinnu.  Ég mun mæta næsta laugardag, það er á hreinu, því ég þarf ennþá að mótmæla svo mörgu.  Ég vil aukna áherslu á mótmæli gegn fjárglæframönnunum.

Ræðumenn dagsins á mótmælunum eru:

  • Marinó G. Njálsson,  ráðgjafi.
  • Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra.


Fundarstjóri: Hörður Torfason.

 


mbl.is Afskrifa 1.500 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Alveg til háborinnar skammar. Svo megum við skattborgararnir borga brúsann.

Eigðu góða helgi.

Aprílrós, 21.2.2009 kl. 07:44

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góða helgi Sigrún mín.

Ía Jóhannsdóttir, 21.2.2009 kl. 10:11

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

1000 krónur extra á tímann fyrir að vaka yfir skjólstæðingum þínum. Þetta er SKAMMARLEGT.  Spurning hvað bankastjórarnir sem stýrðu landinu í ræsið hefðu krafist fyrir álag þessa jólanótt?   Jú þeir hefðu aldrei fyrir það fyrsta gert það, í öðru lagi hefðu þeir líklega keypt einhvern að standa í þessu fyrir sig og í þriðja lagi hefðu þeir líklega verið búnir að loka deildinni og einkavæða hana.

Baldur Gautur Baldursson, 21.2.2009 kl. 10:31

4 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Þetta er allt lyginni líkast. Baráttukveðjur á fundinn þó þú komist ekki.

Rut Sumarliðadóttir, 21.2.2009 kl. 12:28

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er ekki spurning að manneskja eins og þú ert biljónafalt virði á við einn fingur hvers þeirra sem stýrðu fjárhag landsins niður í kolsvart ræsið! Það er líka hver og einn sem rís upp og mótmælir ástandinu eins og það er í samfélginu í dag. Frá mínum sjónarhóli eru það þeir sem standa vörð um velferðina og framtíðina sem eru þjóðin!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.2.2009 kl. 15:34

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún mín....það verður ekki þi þessu lífi sem launin okkar hækka á jólanótt

Hólmdís Hjartardóttir, 21.2.2009 kl. 16:52

7 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Góða helgi Sigrún mín. Kv. Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 21.2.2009 kl. 18:50

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég vil fara að sjá handtökur og ákærur á útrásarbarónana, strax. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.2.2009 kl. 23:38

9 identicon

Daginn Sigrún mín.  

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 11:14

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan daginn öll og til hamingju með daginn okkar konur.....hinn eina sanna íslenska "konudag"

Þakka svo innlit og innlegg

Sigrún Jónsdóttir, 22.2.2009 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband