Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
30.9.2008 | 14:18
Heiðarleiki er orð dagsins
Honesty is such a lonely word.
Everyone is so untrue.
Honesty is hardly ever heard.
And mostly what I need from you.
Eigum við nokkuð að ræða það frekar?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.9.2008 | 23:35
Að ljúga af eldmóði!
Einhvertíma í bernsku minni fékk ég óbilandi áhuga á stjórnmálum = pólitík. Í dag segi ég að þetta sé baktería, sem engin lyf hafa fengist við, því er nú ver og miður.
Í byrjun var ég óvirk en fylgdist með úr fjarlægð og alltaf hafði ég skoðanir. Sótti alla pólitíska fundi þegar kjörnir þingmenn mættu í sveitarfélagið mitt og gat sjaldan hamið á mér kj......
Óvart datt ég inn í pólitískt starf, var eiginlega plötuð undir þeim formerkjum að manneskja eins og þú getur haft áhrif með því að vera virk í stefnumótun og fylgt því eftir með kjafti og klóm innan þessa batterís.
Í mörg ár var ég svo virk ef ekki ofvirk í pólitískum flokki. Allar mínar frístundir og meira en það fóru í þetta flokksstarf og ég er alveg viss um að allir sem til mín þekktu vissu fyrir hvað ég stóð, enda var það ekki minn stíll að fela það.
Ég var staðsett vinstra megin við miðju og af sumum talin bölvaður kommanisti, sem mér fannst bara fínt og ég vissi að ég átti marga skoðanabræður innan þessa flokks. Það fór þó svo að ég sagði skilið við þessa fyrrum félaga mína, þar sem mitt mat var að hægrisinnaðir spunameistarar hefðu yfirtekið flokkinn og með þeim átti ég ekki samleið. Gott og vel, einu fíflinu færra, hafa sjálfsagt sumir þessara fyrrum félaga minna hugsað og andað léttar.
Eitt af mínum aðalbaráttumálum í mörg ár var að til yrði Opinber lágmarks framfærslugrunnur. Flokkurinn var meira að segja í aðstöðu til að koma þessu í framkvæmd.....en hafði ekki áhuga ...þá.
Þótt ég segði skilið við þennan fyrrum flokk minn, var pólitíska bakterían ennþá til staðar og sumum vinum mínum til armæðu, dett ég alltaf í einhvern pólitískan ham annað slagið.
Í dag hlustaði ég á Silfrið hjá Agli Helga og reyndi að rýna í orð stjórnmálamannanna sem þar sátu og tjáðu sig um hið háalvarlega ástandi sem efnahagslíf þjóðarinnar er komið í. Ég komst að þeirri niðurstöðu að þjóðinni er stýrt af steingeldum MORFIS og JC ræðumönnum sem hafa lært að tala með eða á móti hvort sem þeir trúa því sem þeir segja eða ekki.
Þið þekkið þessar Morfis ræðukeppnir unglinganna í menntaskólunum, þeir fá eitthvað málefni til umræðu, annað liðið talar fyrir málefninu en hitt liðið talar á móti því. Sigurvegarinn er svo valinn eftir einhverjum kúnstarinnar reglum, en hugur flytjandans til málsins skiptir engu máli. Í þessum Menntaskólakeppnum er fólki kennt að ljúga á sannfærandi hátt. Margir af fyrrum keppendum og sennilega sigurvegurum í þessum keppnum sitja nú á Alþingi.
Í Silfrinu í dag vorum við með þingmenn, sem hafa bæði verið í stjórn og stjórnarandstöðu og það var augljóst að þessir þingmenn töluðu af sannfæringu um það sem þeir voru að tala, en muna kjósendur hvernig þeir töluðu fyrir ca. 2 árum síðan, eða áður en þeir höfðu hlutverkaskipti?
Þetta er nú það sem mér liggur á hjarta núna, ekki að það skipti nokkru fjandans máli í þessum efnahagsþrengingum, sem eiga eftir að koma hart niður á afkomendum minnar kynslóðar og það verða fleiri sem eiga eftir að hugsa með eftirsjá til gærdagsins..... og þar á meðal verða nokkrir þingmenn líka, því við ætlum að gera uppreisn gegn MORFIS veldinu...haha.
Morgundagurinn verður ekki betri, ef við lærum ekki af gærdeginum...það er bara þannig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
27.9.2008 | 02:10
Af "lögunum" skulið þið þekkja þá!
Ég man þá tíð að Seðlabankinn var ekki til þannig að hann er nú ekki svo gamall. Ég man líka að það var rifist heil ósköp um allt samfélagið við stofnun þessa bákns...ég man ekki hvað var rifist um...er ekki það gömul, en ég man að sumir sögðu að skúffan í Viðskiptaráðuneytinu dygði hér eftir sem endranær.
Síðan eru liðin nokkur ár, og það sem helst stendur uppúr umræðunni síðustu árin er að þetta sé hinn besti vistunarstaður fyrir úrelta stjórnmálamenn, þar sem þeir geta gengið í sinn barndóm aftur og nagað blýanta. Einhverstaðar verður að vista þessa menn, meðan biðlistar elliheimilanna lengjast.
Nú vilja samtök fiskvinnslustöðva láta fara fram endurskoðun á lögum fyrir Seðlabankann. Þeir vita sem er að Svörtu loft eru komin langt frá upprunalegum tilgangi sínum, sem var m.a. peningaprentun í ísl. krónur í staðin fyrir gjaldeyrinn, sem fékkst fyrir íslenskar sjáfarafurðir.
Ég mæli með því að lög bankans verði færð nær okkur almúganum í hugsun, svo við fáum tilfinningu fyrir því að við eigum þennan banka....ef banka skyldi kalla. Mitt er þitt og þitt er mitt o.sv.frv..
Tillaga að einu lagi:
Seðlabankinn þarf konungleg "lög" og Bubbi er betri en Davíð
Eru fleiri tillögur að "lögum" fyrir Seðlabankann?
Lög um Seðlabankann verði endurskoðuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.9.2008 | 01:27
Heimsyfirráð eða .....?
Ég held ég verði að skrá mig á námskeið í "fjármálafræðum" hjá Hrönn bloggvinkonu, því Nasdaq hljómaði eins og bæjarnafn á Grænlandi í mínum eyrum.
Það er gott að Geir hefur tekið völdin í sínar hendur út í hinum stóra heimi, því þá fer vonandi allt að lagast hérna heima á litla Fróni. Eins og Geir hefur ítrekað bent á, þá er "niðursveiflan" (má ekki segja kreppan), hérna hjá okkur vegna óráðsíu minni spámanna annarstaðar í heiminum.
Geir gerði sér sem sagt lítið fyrir og lokaði fyrir óráðsíuna
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, lokaði Nasdaq hlutabréfamarkaðnum í kvöld:
Davíð Oddson, hvað
Forsætisráðherra á Nasdaq | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.9.2008 | 22:52
Alzhimer er dauðans alvara.
Dagurinn í dag er alþjóðlegur Alzheimers dagur. Það fór nú ekki mikið fyrir honum svona almennt, sá reyndar ágæta umfjöllun í Morgunblaðinu og svo var pínulítið viðtal við mann, sem greindur hefur verið með Alzheimers sjúkdóminn í fréttatíma stöðvar 2 í kvöld, sem ég vona að verði síðar að stóru viðtali innan um aðra umfjöllun.
Alzheimer- og aðrir heilabilunarsjúkdómar þurfa meiri umfjöllun, svo skilningur á þessum sjúkdómum aukist, þarna þurfa fjölmiðlar að standa sig mikið betur. Heilbrigðiskerfið hefur langt í frá staðið sig í að bjóða upp á sérhæfð úrræði fyrir þennan sístækkandi hóp.
Ég fann þetta myndband á vafri mínu á YouTube og gat ekki stillt mig um að setja það hér inn. Bestu dagarnir í minni vinnu er þegar við starfsmennirnir og okkar skjólstæðingar sjá sameiginlega húmorinn í annars erfiðum aðstæðum og það skeður sem betur fer oft.
Annars reyndum við Regína vinnufélagi minn að gera þennan dag aðeins hátíðlegri en aðra daga í tilefni dagsins. Við fórum út og klipptum greinar af haustlituðum trjám og runnum, týndum reyniberjaklasa og skreyttum borðstofuborðið. Notuðum sparistellið og reyndum okkar besta til að skapa hátíðastemmingu í okkar húsakynnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
17.9.2008 | 20:36
Bravó, lágmarksframfærslukostnaður viðurkenndur!
Þetta eru bestu fréttir, sem ég hef fengið í langan tíma!
Einhverstaðar í stjórnsýslunni er búið að reikna út lágmarksframfærslu = kr. 6.500.- pr. dag x 30= kr. 195.000.- pr. mánuð og af þessari upphæð er ekki borgaður skattur, lífeyrissjóður eða stéttarfélagsgjald svo dæmi séu tekin. Loksin, loksins segi ég nú bara. Nú þarf bara að yfirfæra þessa upphæð á alla öryrkja og aðra lífeyrsþega þessa lands, svo ég tali nú ekki um launatöflur stéttarfélaganna, því þetta þýðir að lágmarkslaun skuli ekki vera lægri en ca. kr. 250.000.- pr. mán., og koma svo.
Innifalið í þessari grunnframfærslu er fæði, húsnæði, læknisþjónusta, (sjálfsagt lyf og tannlæknaþjónusta ef nauðsyn þykir), samfélagsþjónusta?? hiti, rafmagn og rennandi heitt og kalt vatn.
Nei, ég öfunda ekki hælisleitendur, hvorki af húsnæði, fæði né vasapeningum og þaðan af síður þeirra ástæðum fyrir hælisleit". Ég er aftur á móti yfir mig ánægð með Félagsþjónustu Reykjanesbæjar að fá þessa lágmarksframfærslu viðurkennda hjá yfir-félagsmálaþjónustu ríkisins. Ég efast alls ekki um að þessi upphæð rétt dugar fyrir þessari þjónustu, sem Félagsþjónusta Reykjanesbæjar veitir, þ.e. m.a. herbergiskitra, mötuneytisfæði, sameiginleg afnot af salernis og eldhúsaðstöðu sem og sjónvarps og alnetsafnot, eða samtals kr. 183.000.- pr. Mán. Fyrir einstakling að frádregnum vasapeningum sem hælisleitendur mega ráðstafa sjálfir.
Ef þessir hælisleitendur verða svo heppnir" að þeim verði veitt hæli, þá ætla ég rétt að vona þeirra vegna að þeir þurfi ekki að lifa af þeim lágmarkslaunum, sem viðurkennd eru í hinum íslenska veruleika, s.s. örorkubótum, atvinnuleysisstyrk eða ellilífeyri en þessir hópar eru taldir þurfa helmingi lægri upphæð til lágmarksframfærslu en hælisleitendur og þurfa að auki að borga skatta og aðrar skylduálagningar.
Ég vil þess vegna þakka Félagsþjónustu Reykjanesbæjar að upplýsa alþjóð um hvað að þeirra mati er talin ásættanleg lágmarksframfærsla fyrir einstakling og fá þessa upphæð viðurkennda af þar til bærum stjórnvöldum og ég ætla rétt að vona að aðrir skjólstæðingar Félagsþjónustu Reykjanesbæjar falli undir sömu framfærslugreiningu.
Þessi frétt vekur því hjá mér vonir um að einhverstaðar sé verið að gefa því gaum, hvað þarf til framfærslu einstaklings og að það sé brot á mannréttindum að laun/bætur dugi ekki fyrir lágmarksframfærslu. Framfærsla einstaklings hlýtur að kosta það sama, hvort sem einstaklingurinn er "hælisleitandi" eða venjulegur íslenskur öryrki.
Þessi frétt sýnir mér líka, hvaða aðstæður er boðið upp á skv. lágmarks mannréttindastuðli ísl. stjórnvalda og hvaða verðmiða þessi sömu stjórnvöld setja á þessa þjónustu.
Hælisleitandi kostar 6500 á dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (64)
14.9.2008 | 22:23
Bráðum koma............
Ömmustrákurinn Róbert Skúli hefur verið hjá mér þessa helgi. Hann var ljúfur að vanda og undi sér vel. Laumaði sér stundum í Ömmu tölvu og dundaði sér við að syngja inn á upptökuforrit og spila það svo fyrir ömmu sína. Eitt jólalag æft...bara eitt og það var hann sem byrjaði kæra foreldrasett.
Annars er hann ótrúlegur við tölvuna og það verður að hafa augun á honum, svo hann finni ekki og fari inn á óæskilegar síður, sem ég veit að eru þarna á veraldarvefnum.
Við heimsóttum Jón Eric og Kristrúnu Amelíu í gær, mæðgurnar Guðrún Freyja og Erica Ósk voru ekki heima. Þeim frænd-systkinunum kemur ótrúlega vel saman þótt það sé 5 ára aldursmunur á þeim.
Þessi mynd var tekin nýlega af hárgreiðslumeistaranum Kristrúnu Amelíu og Rokkaranum Róberti Skúla
Við Róbert skoðuðum líka myndirnar á heimasíðunni hans og þar höfðu bæst nokkrar nýjar í safnið. Ein var náttúrulega í algjöru uppáhaldi. Hann fékk nefnilega að máta Ólympíusilfrið hans nafna síns Gunnarssonar.
En ég á líka svona medalíu alveg sjálfur amma, manstu? Ó, jú amma mundi það, því hann fékk hana fyrir þátttöku í sumarhátíð Súgfirðingafélagsins s.l. sumar
Svo sýndi hann mér mynd þar sem hann var að hampa verðlaunum fyrir kókósbolluátkeppni á ættarmóti móðurfjölskyldunnar á nýliðnu sumri. Ég var sko laaang, laaang bestur að borða kókósbollurnar og þær voru svo góðar, ummm, sagði Róbert Skúli og sleikti varirnar.
Hann á sko örugglega eftir að sigra heiminn þessi drengur og fara létt með það, aðdáendahópurinn fer sífellt stækkandi og í dag fórum við í heimsókn til hans Vilmundar, sem er 11 ára einstakur drengur, sem vandar mjög sitt vinaval. Þeir voru orðnir perluvinir eftir stutt kynni og kisurnar, sem Róbert Skúli var nú eiginlega að heimsækja, gleymdust eiginlega og hurfu í skuggann af flotta stóra stráknum honum Vilmundi.
Hann á svo heimboð í piparkökumálun til Vilmundar og mömmu hans Önnu, fyrir jólin, þannig að það væri nú ekki úr vegi kæra foreldrasett að fara að æfa jólalögin af alvöru svo hann geti borgað fyrir sig með söng.
Bráðum koma..........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
14.9.2008 | 08:55
Jafnlaunastefna ríkisins!
Jafnlaunavottun? Hvaða kröfur eru gerðar um menntun aðstoðarmanna ráðherra? Ætli það séu 4 ár í háskóla + 2 ár í sérfræðimenntun?
Þrjár nefndir eru starfandi á vegum stjórnvalda, sem vinna að tillögum gegn kynbundnum launamun! Hvað ætli þurfi margar nefndir til að svæfa málin og stinga þeim svo ofan í "ekki gera neitt" skúffuna?.
Hér kemur annað snilldarmyndband frá larahanna.
Góðan og blessaðan roksunnudag
Fær þitt fyrirtæki jafnlaunavottun? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.9.2008 | 15:23
Orð og efndir!
Það er mér hulin ráðgáta, af hverju íslenskar fréttastofur vinna ekki fréttirnar sínar betur. Síðustu daga höfum við séð hvernig þeir klippa saman tvískinnunginn í bandsrískum frambjóðendum sbr. Macain og Obama með tilvitnunina um varalituð svín.
Íslenskir stjórnmálamenn eru aftur á móti að mestu látnir í friði með sýnar yfirlýsingar.
larahanna er frábær bloggari. Þetta myndband hennar er tær snilld:
Þetta er mín fyrsta tilraun til að setja myndband inn á síðuna mína. holmdish mín, takk fyrir hjálpina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.9.2008 | 20:50
Klukk, klukk...........
asdisemilia, bloggvinkona mín í Vestmannaeyjum klukkaði mig og þetta er nú búið að vera meiri barningurinn en bara fjári skemmtilegt þegar ég var komin af stað. Verði ykkur að góðu
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Fiskvinnsla
- Veitingastörf
- Skrifstofustörf
- Sjúkraliði
Fjórar kvikmyndir sem ég held upp á:
- Iris (Iris Murdock)
- Something´s gotta give
- As good as is gets
- Full Monty
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Suðureyri v/ Súgandafjörð
- England
- Akranes
- Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Breskir sakamálaþættir
- CSI
- Idol (bæði íslenskir og amerískir)
- Friends
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Ísland (hringveginn + Vestfjarðahringinn oft.
- England
- Þýskaland
- Danmörk
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
- www.mbl.is
- www.visir.is
- www.eyjan.is
- www.barnaland.is (barnabörnin og barnabörn vinafólks)
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
- Roast Beef & Yorkshire pudding
- Steak & kiddney pie
- Svínabógur...jólasteikin með stökkri purru
- Humarréttir með hvítlauk
- Vaktabókina
- Lyfjabókina
- Framvindubókina
- Karen (lifað með Alzhimer)
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Borgarferð í Evrópu
- Súgandafirði í haustlitastemmingu
- Í heimsókn hjá Gittu á Akureyri
- Ástralíu bæði í Brisbane og Perth
Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka
Þar vandast málið, því ég veit ekki hverja er búið að "klukka"!
Bloggar | Breytt 11.9.2008 kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson