Leita í fréttum mbl.is

Af "lögunum" skulið þið þekkja þá!

Ég man þá tíð að Seðlabankinn var ekki til þannig að hann er nú ekki svo gamallWink.  Ég man líka að það var rifist heil ósköp um allt samfélagið við stofnun þessa bákns...ég man ekki hvað var rifist um...er ekki það gömulCool, en ég man að sumir sögðu að skúffan í Viðskiptaráðuneytinu dygði hér eftir sem endranærWhistling.

Síðan eru liðin nokkur ár, og það sem helst stendur uppúr umræðunni síðustu árin er að þetta sé hinn besti vistunarstaður fyrir úrelta stjórnmálamenn, þar sem þeir geta gengið í sinn barndóm aftur og nagað blýanta.  Einhverstaðar verður að vista þessa menn, meðan biðlistar elliheimilanna lengjastWoundering.

Nú vilja samtök fiskvinnslustöðva láta fara fram endurskoðun á lögum fyrir Seðlabankann.  Þeir vita sem er að Svörtu loft  eru komin langt frá upprunalegum tilgangi sínum, sem var m.a. peningaprentun í ísl. krónur í staðin fyrir gjaldeyrinn, sem fékkst fyrir íslenskar sjáfarafurðir.

Ég mæli með því að lög bankans verði færð nær okkur almúganum í hugsun, svo við fáum tilfinningu fyrir því að við eigum þennan banka....ef banka skyldi kallaSideways.  Mitt er þitt og þitt er mitt o.sv.frv.Cool.

Tillaga að einu lagi:Tounge

Seðlabankinn þarf konungleg "lög" og Bubbi er betri en Davíð Whistling

Eru fleiri tillögur að "lögum" fyrir Seðlabankann?Smile


mbl.is Lög um Seðlabankann verði endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

góð

Hólmdís Hjartardóttir, 27.9.2008 kl. 02:43

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sko Sigrún, þótt Davíð sé vitlaus þá er annar sem toppar hann og það er Bubbi.. Lög eru góð, séu þau vel sungin. Ég, eins og þú, man þá tíð að Seðlabankinn var í skúffu í Landsbankanum. Honum var ætlað það hlutverk eitt að gefa út seðla og þar unnu 2 menn. Nú eru þarna um 200 að naga blýanta eins og Jón Baldvin sagði. Hvernig væri að setja Davíð í skúffu, hún þarf að vísu að vera 180 x180 cm en það má reyna.

Haraldur Bjarnason, 27.9.2008 kl. 05:39

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Auðvitað er Bubbi "kóngur"betri en Davíð

Magnús Paul Korntop, 27.9.2008 kl. 06:00

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Nákvæmlega, á lögunum skulid tid tekkja tá.

Madur ætti kannsi ad ath. med blíantsverkssmidju Hmmm.

Bubbi er bara bestastur.

Eigdu gódann dag

Gudrún Hauksdótttir, 27.9.2008 kl. 07:40

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Bubbi er langbestastur, Davíð má fara fjandast til mín vegna, hann er eflaust búinn að vinna fyrir helvítisvist sé hún til. Úps! Jája, fari hann og veri karlinn. Hvernig ætli sagan eigi eftir að minnast hans?

Rut Sumarliðadóttir, 27.9.2008 kl. 09:48

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég man þá tíð að Seðlabankinn voru tvær skrifstofur eða svo í húsnæði Kaupþings í Hafnarstræti (eða Landsbankans).

Þegar maður sér hvernig bankinn hefur bólgnað út þá fæ ég hroll.  Spikfeitt fyrirkomulag.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2008 kl. 10:40

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan daginn kæru bloggvinir og takk fyrir innlegg

Þetta var að sjálfsögðu bara enn ein bullfærslan frá mér, mér leiddist bara svo kappræður forsetaframbjóðenda Ameríkunnar og settist fyrir framan vinkonu mína tölvuna.

Þegar ég á sínum tíma vann við grunnatvinnuveg þjóðarinnar, sem þá var fiskvinnsla, vestur á fjörðum örlaði sjálfsagt á smá minnimáttarkennd gagnvart þeim, sem unnu betur metin störf í þjóðfélaginu.  Við vinkonurnar sögðum því aðspurðar um starfsvettvang að við störfuðum í "gjaldeyrisdeild Landsbankans".  Við vorum semsagt meðvitaðar um mikilvægi starfsins, en það vantaði mikið upp á að samlandar okkar gerðu sér grein fyrir því og það hefur ekki breyst sýnist mér.  200 starfsmenn í Svörtuloftum, væru betur komnir einhverri gjaldeyrisskapandi atvinnu, þá fengju þeir kannski aukinn skilning skilning á alvöru verðmætum og að ekki er hægt að prenta seðla án innistæðu.  Þar koma útflutningsatvinnuvegirnir sterkt inn í dæmið og þeirra rekstrargrundvöllur gengur fyrir, persónulegum metnaði fyrrverandi stjórnmálamanna

Sigrún Jónsdóttir, 27.9.2008 kl. 13:13

8 Smámynd: Aprílrós

innlitskvitt . Eigðu góða helgi ;)

Aprílrós, 27.9.2008 kl. 19:44

9 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Góð.......!! Enn önur frábær færsla frá þér. Algjörlega sammála þér að undanskildum Bubba, ég fíla hann ekki.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.9.2008 kl. 21:00

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bubbi er náttúrlega mun betri en Dabbi, lög um seðlabankann leggja hann bara niður Dabbi getur farið að semja hann er bara nokkuð góður í því, hinir til dæmis leikið sér að hanna hús úr legókubbum.
Knús í daginn Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.9.2008 kl. 16:17

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Leggja þessa stassjón bara niður áður en hún setur okkur endanlega á hausinn.

Helga Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband