12.9.2008 | 15:23
Orð og efndir!
Það er mér hulin ráðgáta, af hverju íslenskar fréttastofur vinna ekki fréttirnar sínar betur. Síðustu daga höfum við séð hvernig þeir klippa saman tvískinnunginn í bandsrískum frambjóðendum sbr. Macain og Obama með tilvitnunina um varalituð svín.
Íslenskir stjórnmálamenn eru aftur á móti að mestu látnir í friði með sýnar yfirlýsingar.
larahanna er frábær bloggari. Þetta myndband hennar er tær snilld:
Þetta er mín fyrsta tilraun til að setja myndband inn á síðuna mína. holmdish mín, takk fyrir hjálpina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.9.2008 | 20:50
Klukk, klukk...........
asdisemilia, bloggvinkona mín í Vestmannaeyjum klukkaði mig og þetta er nú búið að vera meiri barningurinn en bara fjári skemmtilegt þegar ég var komin af stað
. Verði ykkur að góðu
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Fiskvinnsla
- Veitingastörf
- Skrifstofustörf
- Sjúkraliði
Fjórar kvikmyndir sem ég held upp á:
- Iris (Iris Murdock)
- Something´s gotta give
- As good as is gets
- Full Monty
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Suðureyri v/ Súgandafjörð
- England
- Akranes
- Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Breskir sakamálaþættir
- CSI
- Idol (bæði íslenskir og amerískir)
- Friends
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Ísland (hringveginn + Vestfjarðahringinn oft.
- England
- Þýskaland
- Danmörk
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
- www.mbl.is
- www.visir.is
- www.eyjan.is
- www.barnaland.is (barnabörnin og barnabörn vinafólks)
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
- Roast Beef & Yorkshire pudding
- Steak & kiddney pie
- Svínabógur...jólasteikin með stökkri purru
- Humarréttir með hvítlauk
- Vaktabókina
- Lyfjabókina
- Framvindubókina
- Karen (lifað með Alzhimer)
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Borgarferð í Evrópu
- Súgandafirði í haustlitastemmingu
- Í heimsókn hjá Gittu á Akureyri
- Ástralíu bæði í Brisbane og Perth
Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka
Þar vandast málið, því ég veit ekki hverja er búið að "klukka"!
Bloggar | Breytt 11.9.2008 kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.9.2008 | 13:22
Heillaóskir í tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn elsku Guðrún mín og ég vona að þessi dagur muni ennfremur marka upphafið að góðri, áhugaverðri og hamingjuríkri framtíð hjá litlu fjölskyldunni að Keili
.
Ég vona að strákarnir mínir, Ómar Daníel og Róbert Skúli syngi fyrir þig afmælissönginn, en hér að neðan set ég inn undirspilið.
Þangað til við sjáumst næst, knús og kossar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
4.9.2008 | 12:27
Ríkið, það er ég.......og þú!
Það efast engin um að kröfur ljósmæðra eru réttar og á rökum reistar, ekki sála. Almenningur stendur með þeim og þingheimur í stjórn og stjórnarandstöðu stígur á stokk og lýsir yfir samstöðu með þeim. Af hverju stendur þá hnífurinn fastur í kúnni?
Verkfallsvopn heilbrigðisstétta er algerlega bitlaust og þannig vilja ráðamenn hafa það. Aðgerðir hafa ekki áhrif á neina aðra en þá sem eru í verkfalli og vinnufélaga þeirra.......og RÍKIÐ sparar.
RÍKIÐ, það er ég og þú, viljum þessa þjónustu og við greiðum skattana okkar með glöðu geði af því við viljum hafa heilbrigðis- og skólaþjónustu í góðu lagi. Við, RÍKIÐ, kjósum okkur fulltrúa á fjögurra ára fresti, sem við treystum til að forgangsraða skattpeningunum okkar þannig að sómi sé af.
Hverjum datt annars í hug að velja dýralækninn Árna Matt, til vörslu á RÍKISbauknum? Hann borgar glaður reikninga samráðherra sinna og þeirra föruneyta í skemmtireisur til annarra heimsálfa á sama tíma og hann kvartar yfir erfiðum tímum í RÍKISbúskap.
Annars eru allir ráðherrar RÍKISINS ábyrgir, í hvorum flokknum sem þeir standa og eiga því allir skilið skömm í hattinn.
Með leyfi annarra RÍKISstjóra, ætti dýralæknirinn að geta stigið fram og losað um déskotans hnífinn úr kúnni!
Áfram ljósmæður!
![]() |
Kröfur ljósmæðra réttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
29.8.2008 | 23:30
"Gegt kúl"
Kristrún Amelía gistir hjá ömmu sinni í nótt. Við höfum verið að spjalla, svona eins og gengur og það er allt "gegt kúl". Fyrsta vikan í skólanum var "gegt kúl" og afmælisgjafirnar sömuleiðis
. Hún talaði við pabba sinn, sem er staddur í Englandi í gegnum Skypið hjá mér og það var sko "GEGT KÚL". Hún var ekki komin með þennan frasa síðast þegar við spjölluðum saman, svo ég spurði hana hvað þetta "gegt kúl" þýddi
.
Jú sko, "gegt" þýðir geðveikt amma mín og geðveikt þýðir....eitthvað rosalega flott! og þú veist nú alveg hvað kúl þýðir, það er svo gamalt
.
Tungumálið er víst í sífelldri þróun og það er gleðilegt að geðveikin er búin að fá svona jákvæðan stimpil, það hlýtur að auðvelda allt starf gegn fordómum á þessum misskilda sjúkdómi .
Kristrún Amelía er "gegt kúl" að mínu mati
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.8.2008 | 20:50
"'Óð" gamalmenni???
Eins og ég hef margoft fjallað um starfa ég á sambýli fyrir fólk með heilabilunar sjúkdóma. Algengasta sjúkdómsgreiningin hjá mínum skjólstæðingum er Alzheimer eða aðrar heilaskemmdir.
Sunnudagskvöldið síðasta sátum við, ég og samstarfskona mín í stofu heimilisins ásamt skjólstæðingum og horfðum á sjónvarpsfréttir stöðvar 2 þegar hinn annars ágæti fréttamaður Sigmundur Ernir tilkynnti okkur að fyrrverandi forsætisráðherra Englands væri orðin "elliær" eins og sjá má hér.
Mér var brugðið og þannig var um fleiri í stofunni okkar, ekki vegna innihalds fréttarinnar, heldur lýsingarorðsins, sem notað var af þessu tilefni, sumir skjólstæðinga minna eru nefnilega meðvitaðir um eigið ástand.
Samkvæmt hinu breska Telegraph er ástand Margrétar Thatcher afleiðing endurtekinna heilablæðinga, sem hafa skaðað heilastarfsemi hennar.
Lýsingarorðið "elliær" er afar neikvætt orð, sem ætti ekki að nota undir neinum kringumstæðum, þegar fjallað er um fólk með heilabilunarsjúkdóma. Það verður enginn "ær" (óður) vegna elli og það þarf ekki háan aldur til að hljóta sömu örlög og Margrét Thatcher.
"Járnfrúin" var ekki í miklu uppáhaldi hjá mér þegar hún var forsætisráðherra og á þeim tíma hef ég eflaust notað nokkur neikvæð lýsingarorð um hana og hennar ákvarðanir en í dag er hún sjúklingur, sem á skilið nærgætni og góða umönnun.
Það er kannski kaldhæðni örlagana að heilbrigðis- og félagsþjónusta varð útundan í breskri stjórnsýslu undir stjórn Margrétar Thatcher.
Hvernig væri að íslenskir stjórnmálamenn áttuðu sig á því að engin er óhultur, þegar kemur að heilabilunarsjúkdómum eins og dæmin sanna. Ronald Reagan, fv. forseti Bandaríkjanna og Margaret Thatcher, fv. forsætisráðherra Bretlands, voru um tíma valdamesta fólk í heiminum, en þau gleymdu bæði á sínum valdatíma að efla heilbrigðisþjónustu sinna landa. Örlög þeirra beggja var einn erfiðasti sjúkdómur sem hægt er að hugsa sér, heilabilun.
Það er svo sannarlega of seint í rassinn gripið að ætla að berjast fyrir úrbótum í heilbrigðisþjónustunni ef viðkomandi verður heilabilun að bráð.
Ég vil enda þennan pistil á því að fara fram á það við fréttamenn og aðra þá sem fjalla um sjúkdóma á opinberum vettvangi að vanda orðaval sitt og nota rétta sjúkdómsgreiningu í umfjöllun sinni. Ég efast um að Sigmundur Ernir myndi nota orðið "elliær" um nákominn ættingja með heilabilunarsjúkdóm á borð við Alzheimer.
Bloggar | Breytt 27.8.2008 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.8.2008 | 12:53
Amma í 8 ár!
Í dag eru 8 ár síðan ég varð amma í fyrsta sinn. Þann 25. ágúst árið 2000 fæddist frumburður eldri sonar míns Jóns Erics. Yndisleg, heilbrigð og yndisfríð stúlka, sem hlaut nafnið Kristrún Amelía:
Hún bræddi hjörtu allra sem að henni stóðu og gerir enn. Hún er fjörkálfur þessi fallega stelpa og hefur einstakt lag á því að koma tilfinningaflæði undirritaðrar ömmu sinnar á fulla ferð
.
Vegna aðstæðna, er hún það ömmubarn, sem oftast og lengst dvelur hjá mér. Við höfum átt margar gæðastundir og 2x höfum við ferðast saman í sæluferðir á mínar æskustöðvar. Ógleymanlegar ferðir, sem gefa okkur báðum mikið
Gitta vinkona fékk Kristrúnu Amelíu í afmælisgjöf
. Ef eitthvað er að marka stjörnukortin er ömmustelpan mín í góðum málum
.
Elsku Gitta mín til hamingju með afmælið þitt og njóttu dagsins.
Kristrún Amelíaer afar góð stóra systir og hér er hún á mynd með litla bróður sínum Pálma Þór, sem er 3ja ára síðan í júlí
Og hér er hún með litlu systur, Ericu Ósk 1 árs, sem dýrkar hana og dáir
Elsku Kristrún Amelía, innilega til hamingju með 8 ára afmælið og ég vona að lífsgangan verði þér gjöful og góð.
Ég elska þig kæra barn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.8.2008 | 10:37
Strákarnir okkar!
Til hamingju Ísland
2. sætið á Ólympíuleikum er STÓRSIGUR. Ég er stolt af "strákunum okkar" og finnst þeir frábærir íþróttamenn og flottar fyrirmyndir, allir sem einn.
Spánverjar voru í skýjunum með 3. sætið, gátu varla hætt að fagna þegar þeir stigu á sinn pall, þeir voru semsagt þakklátir og sáttir.
Frakkar vissu að þeir þyrftu á öllu sínu að halda til að ná sínu markmiði........þeir þurftu að vinna "strákana okkar" og þeim tókst það. Ég óska þeim til hamingju með það.
Auðvitað hefði verið gaman að fá gullið, en silfrið er okkar og við getum svo sannarlega fagnað og tekið á móti "strákunum okkar", sem þjóðhetjum þegar þeir koma heim.
Ísland er "stórasta" land í heimi á handboltasviðinu
![]() |
Ísland í 2. sæti á ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.8.2008 | 13:32
Reykjavík, sandkassi pólitíkusa!
Jæja, þá er kominn borgarstjóri nr. 4 í frk. Reykjavíkurborg. Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk keflið afhent í "virðulegri" athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.
Það er langt síðan ég hef fylgst svona náið með framgangi á pólitískum vettvangi eins og ég gerði í morgun. Hlustaði á "útvarp Ráðhús" og setti mig í JC dómnefndargírinn.
Öðruvísi taldi ég mér ekki fært að hlusta, því pólitískar ræður hafa ekki lengur neitt vægi í mínum huga, allt sama ruglið.
Ræðustíll var ágætur hjá flestum ræðumanna:
Ólafur F., of bitur. Tel að hann sé búinn í pólitík.
Dagur, góð framsögn, innihald að mestu sagan hingað til, sem menn eru beðnir um að muna og það mun ég gera.
Svandís, sköruleg að vanda, besti ræðumaðurinn að mínu mati. Svandís og Dagur hljóta þó bæði að hugsa til baka til þess tíma, sem þau dásömuðu fulltrúa Framsóknarflokks í borgarstjórn og nýttu sér meinta valdagræðgi þess flokks
.
Óskar, betri ræðumaður en ég átti von á en innihaldið lýsti frekar örvæntingarfullum tilraunum framsóknarmanna til að komast aftur til áhrifa. Sé nú í anda að hann verði tekinn í dýrlingatölu valdsjúkra framsóknarmanna. (opinbert innanbúðarleyndarmál: Siv bíður á hliðarlínunni).
Hanna Birna, góður ræðumaður. Innihaldið kom mér skemmtilega á óvart, mjög "landsföðurleg" og rétti fram sáttarhönd til hægri og vinstri
. Ég óska Hönnu Birnu til hamingju með embættið og vona að hún muni starfa í þeim anda, sem ræða hennar boðaði
.
Það skal að lokum tekið fram að ég er löngu hætt að taka mark á fagurgala stjórnmálamanna og skil því ekki hvernig ég gat eytt dýrmætum frítíma í þetta en mér til afsökunar get ég upplýst að mér féll ekki verk úr hendi á meðan ræður voru fluttar....ég þreif eldhúsið hátt og lágt og m.a.s. ruslaskápurinn var tekinn ærlega í gegn!
![]() |
Hanna Birna kjörin borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.8.2008 | 13:01
Sláturtíð á enda.....í bili!
Marsibil Sæmundardóttir, var sum sé síðasta hindrunin
. Mikill var þinn máttur Marsibil og til hamingju með að standa með eigin sannfæringu! Gangi þér vel að verjast baknaginu, sem Framsóknarmenn kunna svo vel
.
Fram undan er "beinn og breiður vegur". Hnífar hafa verið slíðraðir, aftökulistar tæmdir og Óskar Bergsson sér fram á átakalaust ævikvöld í pólitík:
Þetta er frekar arfleifð sem ég sit uppi með heldur en eitthvað sem er að koma upp skyndilega núna, sagði Óskar. Ég lít svo á að með þessari úrsögn sé þessum átökum lokið og að Framsóknarflokkurinn taki nú höndum saman og vinni sig upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið í.
Óskar Bergsson, hefur væntanlega ekki tekið þátt í þeim átökum, sem hann vísar í og hvítþvær á sér botninn af þeirri "arfleið"og átökum, sem hann sat uppi með.
Af gefnu tilefni, skal upplýst að "dagbókarfærslur" fyrrverandi framsóknarmanna verða birtar að þeim látnum
![]() |
Endalok átaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
-
sudureyri
-
schmidt
-
vestfirdingurinn
-
asthildurcesil
-
holmdish
-
hallibjarna
-
jenfo
-
hross
-
hronnsig
-
rognvaldurthor
-
iaprag
-
larahanna
-
svanurg
-
hildurhelgas
-
milla
-
ragnhildur
-
jyderupdrottningin
-
birgitta
-
jogamagg
-
beggita
-
ammadagny
-
steindora
-
jonaa
-
gudrunjona
-
faereyja
-
roslin
-
liljabolla
-
lehamzdr
-
gurrihar
-
helgamagg
-
gledibankinn
-
formosus
-
gerdurpalma112
-
silfri
-
raksig
-
rutlaskutla
-
annaragna
-
sylviam
-
skessa
-
hehau
-
ringarinn
-
kreppan
-
don
-
heidistrand
-
korntop
-
katrinsnaeholm
-
danjensen
-
joninaros
-
tara
-
kruttina
-
manisvans
-
valgeirskagfjord
-
rannveigh
-
emm
-
olinathorv
-
christinemarie
-
bubot
-
ksh
-
jonthorolafsson
-
skordalsbrynja
-
kaffi
-
icekeiko
-
lillagud
-
wonderwoman
-
jonerr
-
stinajohanns
-
saedishaf
-
himmalingur
-
bjarnihardar
-
katan
-
gloppa
-
helgigunnars
-
strunfridur
-
annakr
-
credo
-
fannygudbjorg
-
lucas
-
sveitaorar
-
jakobk
-
disdis
-
sirri
-
finni
-
brahim
-
heidathord
-
sigrunzanz
-
draumur
-
naflaskodun
-
stjornlagathing
-
valdimarjohannesson