18.8.2008 | 14:41
Ó borg, mín borg......
Til hamingju með daginn frk. Reykjavík. Ekki ertu gömul miðað við flestar aðrar höfuðborgir og vaxtaverkir eru slæmir. Baráttan um þig, afmælisbarnið, er illvíg og óheiðarleg. Þú átt svo miklu betra skilið.
Ég sendi kjörnum fulltrúum þínum 1 stk. heilræðavísu eftir Hallgrím Pétursson:
Hugsa um það helzt og fremst,
sem heiðurinn má næra.
Aldrei sá til æru kemst,
sem ekkert gott vill læra.
![]() |
Til hamingju með afmælið, Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.8.2008 | 14:04
Spennufíklar?
Reykvíkingum verður áfram haldið í spennitreyju. Ég get ekki fallist á að áframhaldandi "spenna" um það hverjir verða við stjórnvölinn í borginni okkar út þetta kjörtímabil hafi eitthvað með "hagsmuni borgarbúa" að gera.
Valdagræðgi hefur farið illa með margan stjórnmálamanninn og nú er svo komið að Hollywoodmenn með Bruce Willis í fararbroddi, hafa fylgst "spenntir" með skúespilinu hjá Reykjavíkurborg. Mér er sagt að þeir hafi ákveðið að að hefja framleiðslu á "spennumynd", sem verður nokkurskonar framhald af "Sjötta skilningarvitinu"! Vinnuheiti myndarinnar er: Háspenna - lífshætta" er líf handan pólitíkur?.
Eru ekki allir að farast úr "spennu", vegna væntanlegra mannabreytinga í nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar í fjórða skiptið á þessu hálfnaða kjörtímabili?
Ég ætla að skreppa úr bænum um helgina, það verður "spennandi" að sjá hvernig staðan verður þegar ég kem til baka.
![]() |
Hleypir spennu í sambandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.8.2008 | 15:02
Nýr meirihluti? eða gamall meirihluti?
Það ungur nemur hvað gamall temur
Er þessi farsi bara rétt að byrja?
![]() |
Nýr meirihluti að fæðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.8.2008 | 11:09
Óli skans
Það er sagt að fæst orð beri minnsta ábyrgð. Það hvarflar varla að nokkrum manni að borgarfulltrúar ætli að venda kvæði sínu í kross og fara að sýna ábyrgð.
Við erum að hugsa um að æfa dansinn við þetta lag í vinnunni minni í kvöld
Óli skans, Óli skans,
Ógnar vesalingur.
Vala hans, Vala hans
Veit nú hvað hún syngur
Óli, Óli, Óli skans.
Vissulega vildu fáir
vera í sporum hans.
Óli er mjór, Óli er mjór,
Óli er líkur fisi.
Vala er stór, Vala er stór,
Vala er eins og risi,
Óli, Óli, Óli skans.
- Sjá hvað þú ert sauðarlegur,
segir konan hans.
- Þú ert naut, þú ert naut,
þannig hóf hún tölu.
Óli gaut, Óli gaut
augunum til Völu.
Óli, Óli, Óli skans.
Ákaflega önuglynd
er eiginkonan hans.
Óli hlaut, Óli hlaut
auman reynsluskóla.
Vala braut, Vala braut
viðbeinið á Óla.
Óli, Óli, Óli skans.
Voðalegur vargur er hún
Vala, konan hans.
Tekið úr bókinni Segðu það góðum börnum eftir Stefán Jónsson.
![]() |
Borgarfulltrúar segja fátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.8.2008 | 21:59
Kjararáð finnur falin fjársjóð!
Ég held ég þurfi að taka það til athugunar hvort ég taki næturvaktir hér eftir. Er ekki alveg að meika þetta. Hef að mestu legið eins og slytti í sófanum eftir að ég vaknaði í dag og er strax farin að kvíða kvíða því að þurfa að vakna fyrir morgunvakt í fyrramálið
.
Ég veit að samkvæmt kjarasamningum má ég frábiðja mér þetta næturbrölt (er orðin svo aldin), en samkvæmt launaseðli væri það ekki skynsamlegt
.
Undanfarna mánuði hafa hinar ýmsu fagstéttir heilbrigðiskerfisins staðið í kjarabaráttu. Með herkjum og yfirvofandi neyðarástandi á sjúkrastofnunum náðu hjúkrunarfræðingar 14% launahækkun umfram það sem aðrir höfðu samið um á undan þeim. Skilst reyndar að hj.fr. hafi þurft að "selja" áður unnin réttindi í býttum fyrir þessa kökusneið.
Ljósmæður eru þessa stundina að greiða atkvæði um hvort þær fari í verkfallsaðgerðir og mjög margar þeirra hafa sagt störfum sínum lausum. Ég styð þær fullkomlega í sínum launakröfum.
En það þurfa ekki allir að berjast með kjafti og klóm innan heilbrigðiskerfisins til að fá laun sín leiðrétt og það er ljúft að vita að sumir telja heilbrigðiskerfið í stakk búið að borga "mannsæmandi" laun.
Þann 1. september verður ráðinn nýr forstjóri Landspítala. Ekki veit ég hvaða töframanneskja hlýtur hnossið en það er auðséð að "töfrar" hafa verið notaðir á kjararáð, sem samþykkir kr. 1.618.56 í mánaðarlaun eða 25% hækkun frá launum fyrri forstjóra, án þess farið hafi verið í "launakröfuaðgerðir" svo ég viti.
Kamarinn á myndinni er í boði fjármála- og heilbrigðisráðherra: Stjórnendur noti efri hæð og almennir starfsmenn þá neðri
Ég mæli með því að kjararáð ákveði launakjör allra heilbrigðisstétta hér eftir .
![]() |
Laun forstjóra Landspítala hækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
4.8.2008 | 14:52
Veruleikafirring og raunveruleiki.
Árshlutauppgjör bankanna slær ekki á mínar áhyggjur. Ég hef áhyggjur af unga fólkinu, sem heldur þessum bönkum á floti með okurvöxtum og yfirdráttarheimildum. Ég hef áhyggjur af veruleikafirrtum stjórnmálamönnum, sem sjá ekki fram fyrir tærnar á sér og komast upp með allskonar rugl, bull og vitleysu.
Ég hef áhyggjur af veruleikafirrtum Ögmundi Jónassyni, verkalýðsfrömuði með meiru, sem heldur að bankastjórar, munu bara upp á sitt einsdæmi, lækka við sig laun og selja drossíur, bara af því honum finnst að þeir eigi að gera það.
Ég hef áhyggjur af veruleikafirrtu Samfylkingarfólki, sem heldur að fólk í umönnunar og uppeldisstéttum verði búið að gleyma þeirra fallegu loforðum fyrir síðustu alþingiskosningar, þegar kemur að næstu kosningum.
Ég hef m.a.s. áhyggjur af veruleikafirrtum sjálfstæðismönnum, sem halda að það sé þeim til framdráttar að verja veruleikafirrtan borgarstjóra.
Ég hef áhyggjur af veruleikafirrtum ráðherrum, sem höfðu svo miklar áhyggjur af afkomu bankanna að þau tóku erlent lán, til að bjarga þeim ef illa færi. Kannski á eftir að fara illa fyrir blessuðum bönkunum, þegar almenningur getur ekki lengur staðið í skilum
, en væri þá ekki betra að nota þessa peninga til að hjálpa viðskiptavinunum og slá þannig tvær flugur út af borðinu með einu "höggi"?
Í dag hef ég samt mestar áhyggjur af ungri ekkju með 3 börn á skólaaldri af því ég þekki þau persónulega. Ætli veruleikafirrtir stjórnmálamenn- eða verkalýðsfrömuðir deili með mér þeim áhyggjum? Held ekki
.
Veruleikafirring er hinn íslenski raunveruleiki....kannski er bara best að vera ekkert með áhyggjur af því.
Best að drifa sig í vinnuna og kljást þar við "ískaldan" raunveruleika heilabilunar.
![]() |
Uppgjör bankanna slá á áhyggjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
24.7.2008 | 15:37
Takk fyrir hr. Bell!
Hef ekki verið í bloggstuði undanfarið og lítið um það að segja.
Ég hef verið að reyna að ná símsambandi síðustu daga við Abba bróðir, sem býr í Brisbane í Ástralíu. Þurfti að flytja honum persónulega, sorgartíðindi úr okkar ranni, sem ekki verða tíunduð hér.
Eins og allir vita er símasamband við umheiminn gott (nema GSM samband við ferðalanga á vestfirskum fjallvegum!) svo gott að maður gleymir því fljótlega að viðmælandi stendur á haus á neðri hluta hnattarins.
En það gekk erfiðlega fyrir okkur systkinin að ná saman, ekki vegna sambandsleysis eða tímamismunar, sem bæði erum meðvituð um heldur vegna vinnutíma hvers annars. Við vinnum semsagt bæði vaktavinnu. Síðustu daga höfum við því verið að koma heim til okkar sitt hvoru megin á hnettinum, hann hlustandi á mig með skilaboð á símsvaranum og ég með númerið hans á númerabirtinum. E-mail hafa ekki verið inni í myndinni, vegna tæknilegra örðugleika hjá undirritaðri af völdum vankunnáttu á tölvutækni. Jón Eric, ertekki á leiðinni?
Við náðum loksins saman systkinin, núna rétt áðan, þar sem ég er í vaktafríi. Það var yndislegt að heyra í bróðir mínum og mágkonu hinu megin á hnettinum og finna nálægðina þótt um langan veg sé að fara.
Einhverstaðar segir að trúin flytji fjöll og bókstaflega er það út í hött en það má með sanni segja að síminn færi okkur fjarstadda ættingja heim í stofu.
Þegar ég hef unnið mig út úr tæknilegum vandamálum ætla ég að Skype væðast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
15.7.2008 | 18:13
Hver vegur að heiman er vegurinn heim!
Síðasta vika hefur verið heilt ævintýri hjá mér og ömmustelpunni Kristrúnu Amelíu. Við lögðum af stað með Völlu stóru systir rétt fyrir hádegi þann 8. júlí s.l. Það var stoppað á tveimur bæjum í Dölunum og vinafólk Völlu heimsótt. Næsti viðkomustaður var rétt hjá Bjarkarlundi í sumarbústað Ástu Þórarins, æskuvinkonu og Eiríks mannsins hennar, þar áttum við góða stund í yndislegu umhverfi í góðum félagsskap þeirra hjóna og barnabarna þeirra. Svo var það Þorskafjarðarheiðin og Ísafjarðardjúpið með mörgu fjörðunum, en fallegir eru þeir nú samt. Ákváðum að taka smá krók og heimsækja Reykjanesskólann, gamla heimavistarskólann hennar Völlu, en þangað hafði ég aldrei komið áður. Reyndi að ímynda mér sleik staði Maju æskuvinkonu og Garðars og taldi mig finna nokkra ákjósanlega staði til þessháttar atlota unglinga
. Við snæddum kvöldverð þarna, pöntuðum skyndimat (hefðum átt að bíða eftir fiskinum, sem í boði var) en þetta var í fyrsta skipti sem ég hef fengið skósóla í stað hamborgara
.
Heim í Súgandafjörð vorum við komnar um kl. 21:30 um kvöldið. Það voru smá vonbrigði að þokan var eitthvað að þvælast þarna fyrir, þegar út úr vestfjarðagöngunum var komið, en það var LOGN
. (Mynd: Ásthildur Cesil).
Þegar komið var út á Suðureyri var sæluhrollurinn samt á sínum stað og brosið okkar var komið til að vera. Við vorum komnar heim og næstu dagar voru eintóm Sæla
.
Hin eiginlega dagskrá Sæluhelgarinnar hófst á föstudeginum í mjög góðu veðri, logn var og mjög hlýtt. Á meðan fullorðna fólkið fór í "þorpsgöngu" undir mjög svo skemmtilegri leiðsögn Jóa Bjarna, þar sem stiklað var á stóru um hin ýmsu hús og íbúa þeirra í gegnum tíðina, var farið með börnin í Skothólsgöngu, þar sem þau fengu nesti og svo viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í göngunni seinna um kvöldið.
Ég lærði ýmislegt í "þorpsgöngunni" hjá Jóa Bjarna. T.d. veit ég núna hvar "Hallbjarnar" fólkið átti heima áður en þau fluttu til Akraness og eins veit ég núna að hún mamma mín fæddist ekki í torfkofa eins og ég hef alltaf haldið, heldur í þrílyftu bárujárnsklæddu timburhúsi, sem stóð þar sem "Verkalýðshúsið" stendur núna! Þetta hefur verið algjör höll á þeirra tíma mælikvarða (1916) og ég hef ekki hugmynd um hvaðan ég fékk mína vitlausu útgáfu
.
Kl. 18:00 byrjaði svo fólkið að streyma á "Sjöstjörnuna", sem er opið svæði í miðju þorpinu. Snorri Sturluson setti 21. Sæluhelgar hátíðina með formlegum hætti. Hann flutti m.a. mjög fallegt ljóð eftir Sturlu Jónsson, fv. hreppstjóra. Síðan tóku hátíðargestir sig til og grilluðu matinn sinn á flennistórum útigrillum, borðuðu (það voru jú borð fyrir alla), drukku og spjölluðu áður en haldið var í í hina ýmsu leiki.
Það var m.a. keppt í gjarðaskoppi og þarna er Dedda að gera sig klára.
Gjarðaskopp er náttúrulega einn af leikjum minnar kynslóðar, en hann lifir góðu lífi á Sæluhelgum. (Mynd: Róbert Schmidt).
"Fjárdráttur" er nýr leikur en mjög skemmtilegur þegar hann er stundaður á Súgfirskan hátt
. Sturla Gunnar, Samkaupsstjóri, sigraði "fjárdráttinn" með glæsibrag
. (mynd: Róbert Schmidt)
Veiðimenn eru sagðir vilja rigningu. Mansaveiðimenn voru því ánægðir á laugardeginum, eina deginum sem virkilega rigndi og þá fór fram keppni í Marhnútaveiði. Marhnútunum er öllum gefið líf að keppni lokinni.
Hér eru ánægðir "veiðimenn" að lokinni keppni. Veitt eru verðlaun fyrir ýmislegt í þessari keppni. T.d. stærsta og minnsta mansann, mesta aflann og skrýtnustu veiðina, svo eitthvað sé nefnt
. (Mynd: Róbert Schmidt).
Á laugardeginum var einnig vígður "útsýnispallur" til minningar um sjómannskonur í Súgandafirði. Frábær minnisvarði, sem Lilja Rafney Magnúsdóttir hannaði og átti hugmynd að. Minnisvarðinn fékk nafnið Markúsína, en það hét föðuramma Lilju. (mynd: Ásthildur Cesil).
Þegar setið er uppí þessum fallega útsýnispalli er útsýnið úr honum dásamlegt bæði út og inn fjörðinn. Á þessari mynd er horft út fjörðinn. (mynd: Ásthildur Cesil).
Á Sunnudeginum viðraði vel á hátíðargesti. Heilmikil dagskrá og mikið um að vera. "Erill" var á svæðinu en aldrei til vandræða. Þennan dag var t.d. keppt í "húsmæðra fótbolta" milli brottfluttra "húsmæðra" og "heima húsmæðra". Sleggjukasti karla og kvenna á öllum aldri og svo auðvitað Söngvarakeppnin. Mín dama, Kristrún Amelía tók þátt og stóð sig með mikilli prýði. Hún komst ekki á verðlaunapall í þetta skiptið og varð pínu sár fyrst á eftir.....allt gítarleikaranum að kenna
, en svo jafnaði hún sig fljótlega og er harðákveðin í að "gera bara betur næst"
.
En mikið rosalega var hún flott á sviðinu, stóra stoltið hennar ömmu sinnar
. (mynd: Ásthildur Cesil).
Á hverju kvöldi alla hátíðisdagana var síðan "opið hús" í FSÚ (Félagsheimili Súgfirðinga). Þar héldu Mansavinir uppi stanslausu fjöri langt fram á nótt og "Erill" gamli var langtíburtistan
. Mansavinirnir, Ævar og Guðni í "söngham". (mynd: Róbert Schmidt).
Æskuvinkonurnar, sem allar eru á sextugsaldri
, Sigrún, Eygló, Eyrún og Sóley Halla létu sig að sjálfsögðu ekki vanta og sungu þær og dönsuðu eins og þær væru aftur orðnar 18
. (mynd: Róbert Schmidt).
Ég hef hér stiklað á stóru varðandi þessa góðu heimsókn mína "heim" til átthaganna. Meiri umfjöllun og myndir er hægt að nálgast á www.sugandi.is og hjá Ásthildi Cesil Þórðardóttur( asthildurcesil), minni kæru bloggvinkonu, sem gerði heimsókn sinni góð skil í bloggfærslu í gær.
Ég vil þakka öllum heimamönnum í Súgandafirði með Mansavini í broddi fylkingar fyrir frábæra skemmtun alla dagana. Ég á varla til orð til að lýsa aðdáun minni á elju heimamanna og dugnaði við að koma þessum Sæludögum í framkvæmd ár eftir ár. 21. sæluhelgin heppnaðist fullkomlega. Samstaða heimamanna er aðdáunarverð. Svo vil ég koma því á framfæri við heimamenn að Suðureyri hefur aldrei verið snyrtilegri en hún er núna. Bæði stjórnendur fyrirtækja og einstaklingar hafa auðsýnilega lagt metnað sinn í að fegra í kringum sig. Til hamingju með Bláfánann Súgfirðingar, hann er verðskuldaður
.
Við ferðalangarnir fórum svo vesturleiðina til baka. Komum við hjá Valda og Lóu á Hrafnseyri en Valdi frændi hafði lánað okkur húsið sitt heima á Suðureyri til að dvelja í þessa daga sem við vorum þar. Ástarþakkir fyrir það kæri frændi. Arnarfjörðurinn skartaði sínu fegursta í logni og sól meðan við dvöldum þar. Kristrún Amelía var að sjá fegursta foss í heimi í fyrsta sinn (Dynjandi/Fjallfoss) og svo fékk hún úrdrátt úr sögu Jóns Sigurðssonar frá staðarhaldaranum Valda frænda, á yfirferð sinni um gamla bæinn. Af öllu því sem fyrir augu bar var hún hrifnust af skódjöflinum, sem er spýtufjöl, sem notuð var til að klæða sig úr skóm í gamla, gamla, gamla daga
.
Ég verð að viðurkenna að mér finnst vesturleiðin flottari en djúpið. Leiðin frá Hrafnseyri til Bjarkalundar er HRIKALEGA flott í orðsins fyllstu merkingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
7.7.2008 | 20:57
Sæla á Suðureyri v/Súgandafjörð!
Þá er komið að því. Við Valla systir leggjum af stað vestur á firði á morgun og með okkur í för verður stóra ömmustelpan mín, hún Kristrún Amelía.
Ég vona að mest af þessum snjó, sem þarna er í fjöllunum verði farinn, þá verður auðveldara að sigta út ísbirni
.
Þessa mynd tók hún Anna Bjarna s.l. vor og mér finnst hún athyglisverð, þar sem ég hef aldrei séð "skerið" svona. Kannski það sé hægt að labba yfir á Norðureyri þessa dagana???
Ég verð ekki "eyrarbúki", hvorki innri né ytri mala púki þetta árið.........
Þessa mynd þók hún Ásthildur mín kæra bloggvinkona um daginn og ég gerðist svo kræf að stela henni frá henni, sem ég vona að hún fyrirgefi. Þarna sést upp á Hjallaveg, en ég mun búa á Hlíðarveginum, sem er vinstra megin í "hjöllunum" séð frá þessum stað
. Enginn snjór í þessum hlíðum, þannig að ísbirnir geta ekkert falið sig
.
Við komum til með að hitta þessa sómamenn, þá Guðna og Ævar Einarssyni og Hilmar auðvitað líka, en Guðni og Ævar hafa ásamt Mannsavinum verið í forsvari og stjórnað öllu af myndarbrag á Sæluhelgum frá byrjun
. Frábært framtak hjá þeim bræðrum
.
Síðast þegar við Kristrún Amelía fórum á "Sælu", árið 2006 tók hún þátt í söngvarakepninni
. Lenti þá í 2. sæti í sínum aldursflokki og var valin "Bjartasta vonin"
. Þá var hún 6 ára og fannst þetta ekkert mál
. Nú er hún að verða 8 ára og orðin aðeins feimnari, þannig að það verður bara að koma í ljós hvort hún tekur þátt í ár
.
Hér er Kristrún Amelía að taka við "Rabba bikarnum" árið 2006, sem er farandbikar en fjölskylda Rafns Jónssonar tónlistarmanns gaf hann til minningar um Rabba okkar og einhver úr fjölskyldunni afhendir hann á hverri Sæluhelgi
Þetta er Aðalgatan mín með Göltinn minn í bakgrunni
Rændi þessari líka frá Ásthildi (Takk, takk!). Gölturinn skýlir vel þorpinu fyrir norðvestan áttinni, þannig að það verður blankalogn að venju þegar ég mæti á svæðið.
En nú verð ég víst að fara að pakka einhverju í tösku, svo stóra systir þurfi ekki að bíða eftir mér í fyrramálið.
Veit ekki hvenær ég verð næst í sambandi, þannig að ég sendi ykkur öllum stórt knús.
Sjáumst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
5.7.2008 | 01:50
Hugarhvarf!
Ég er bergnumin! Ekki var það íslensk náttúra og ekki var það neinn af erlendu bergi brotin, sem nam mig með sér.
Ég var að horfa á leikna íslenska heimildarmynd Hugarhvarf- lífið heldur áfram með heilabilun. Þetta var held ég í þriðja skiptið sem ég horfi á þessa mynd og í öll skiptin hef ég setið sem bergnumin af aðdáun og áhuga.
Myndin fjallar um konu sem greinist með Alzhimer sjúkdóminn skelfilega. Með aðalhlutverk fara Kristbjörg Keld og Gísli Alfreðsson. Bæði skila þau sínum hlutverkum mjög vel en ég verð að segja að Kristbjörg gerir þessa mynd að meistaraverki. Aftan á diskhulstri stendur m.a.:
Myndin Hugarhvarf- lífið heldur áfram með heilabilun, er í senn raunsönn, fagleg og listræn. Þeir sjúkdómar sem valda minnisskerðingu og annarri vitrænni skerðingu eru langvinnir og hafa mörg stig. Lífið heldur vissulega áfram og því fylgja gleði og sorgir eins og ævinlega. Myndin sýnir glögglega að bæði sjúklingar og aðstandendur geta sótt margvíslegan stuðning en hún höfðar einnig til starfsfólks. Myndin getur hjálpað starfsfólki að leiðrétta fyrirfram gefnar hugmyndir og gefur ýmis ráð um það hvernig best er að vinna með sjúklingum svo að báðum líði vel.
Ég hef unnið á sambýli fyrir aldraða með heilabilunarsjúkdóma s.l. 10 ár. Mér þykir ákaflega vænt um starfið mitt og skjólstæðinga í gegnum tíðina. Það er því ekki mjög uppörvandi að sitja undir umræðu um að þjónusta við aldraða á Íslandi sé til háborinnar skammar. Það starfsfólk sem ennþá vinnur þessi störf hlýtur að gera það vegna ánægju með starfsviðið, því ekki lokka launin! Ég get samt alveg tekið undir að þessi þjónusta mætti vera meiri og fleiri úrræði þyrftu að vera til staðar.
Það er stundum sagt að tvisvar verði gamall maður barn, það á ekki við um alla aldraða, bara þá heilabiluðu. Umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma er sólarhringsvinna. Persónan sem einu sinni var til að mynda, uppalandi, útivinnandi- forstjóri, þingmaður eða ráðherra, þarf smátt og smátt alla aðstoð við athafnir daglegs lífs en með aðstoð fagfólks og aðstandenda, heldur lífið áfram í ágætri vellíðan hjá því fólki sem fær tilhlítandi þjónustu.
Starfs míns vegna hef ég sóst eftir fróðleik um Alzhimer sjúkdóminn. Ég hef séð kvikmyndir og lesið bækur og greinar með þennan sjúkdóm sem viðfangsefni. Ég mæli eindregið með þessari leiknu heimildarmynd Hugarhvarf- lífið heldur áfram með heilabilun, bæði fyrir starfsfólk í þessum geira og einnig fyrir aðstandendur fólks með heilabilunarsjúkdóm. Hún er örugglega fáanleg á næsta bókasafni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
-
sudureyri
-
schmidt
-
vestfirdingurinn
-
asthildurcesil
-
holmdish
-
hallibjarna
-
jenfo
-
hross
-
hronnsig
-
rognvaldurthor
-
iaprag
-
larahanna
-
svanurg
-
hildurhelgas
-
milla
-
ragnhildur
-
jyderupdrottningin
-
birgitta
-
jogamagg
-
beggita
-
ammadagny
-
steindora
-
jonaa
-
gudrunjona
-
faereyja
-
roslin
-
liljabolla
-
lehamzdr
-
gurrihar
-
helgamagg
-
gledibankinn
-
formosus
-
gerdurpalma112
-
silfri
-
raksig
-
rutlaskutla
-
annaragna
-
sylviam
-
skessa
-
hehau
-
ringarinn
-
kreppan
-
don
-
heidistrand
-
korntop
-
katrinsnaeholm
-
danjensen
-
joninaros
-
tara
-
kruttina
-
manisvans
-
valgeirskagfjord
-
rannveigh
-
emm
-
olinathorv
-
christinemarie
-
bubot
-
ksh
-
jonthorolafsson
-
skordalsbrynja
-
kaffi
-
icekeiko
-
lillagud
-
wonderwoman
-
jonerr
-
stinajohanns
-
saedishaf
-
himmalingur
-
bjarnihardar
-
katan
-
gloppa
-
helgigunnars
-
strunfridur
-
annakr
-
credo
-
fannygudbjorg
-
lucas
-
sveitaorar
-
jakobk
-
disdis
-
sirri
-
finni
-
brahim
-
heidathord
-
sigrunzanz
-
draumur
-
naflaskodun
-
stjornlagathing
-
valdimarjohannesson