Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Lesið í þögnina!


Einhvern vegin finnst mér hin þrúgandi þögn annarra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segja meira um stöðuna í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins, en vandræðalegar samhengislausar og ofnotaðar setningar Vilhjálms Þ. á furðulegasta blaðamannafundi íslandssögunnar í dag.

Tilskipun dagsins í Valhöll var: Axlið ábyrgð,  fylgið foringja ykkar, hvort sem ykkur líkar betur eða verr.  Þeim líkaði þessi tilskipun augsýnilega verr og flúðu vandræðaskapinn.

Það sitja náttúrulega allir borgarfulltrúarnir 15 í ábyrgð upp að öxlum!

Hvaðan ætli “þverpólitíski” Tjarnarkvartettinn taki við tilskipunum?  Vilja ekki vera memm!! Ætli það sé kannski skilyrt við borgarstjórastólinn?  Það skyldi þó ekki vera.


mbl.is Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki á vísan að róa....

Hver hefur ekki orðið fyrir því að “plön” fara úrskeiðis?

Ég var fyrir lifandis löngu síðan búin að ákveða að fara á Þorrablótið.  Ekki bara af því að hjá mér er þetta náttúrulega skyldumæting, þar sem ég er í stjórn félagsins, heldur var tilhlökkun mín búin að vera mikil og ekkert fengi mig stöðvað  að mæta á svæðið.

Til þess að vera  nú alveg viss um að þurfa ekki að vinna þessa helgi, sem er  að öllu jöfnu vinnuhelgin mín, þá pantaði ég vetrarfríið með það fyrir augum að komast örugglega á blótið.

Á mínum vinnustað er boðið upp á “flensusprautu”, sem ég þáði og taldi mig því “gulltryggða” þegar hátíð gengi í bæ.

En…á föstudagskvöldið fann ég að ekki var allt með felldu, beinverkir, óvenju mikill og “harður” hósti, nasakvef og annar krankleiki.

En á blótið skyldi mæta.  Fór í apótekið, og byrgði mig upp á allskonar hóstasaft, slímlosandi, hóstastillandi og verkjalyfjum.  Tók því svo rólega fram eftir laugardeginum, leit aðeins við í afmæli hjá ömmustráknum en hóstaðist þaðan út klukkutíma seinna.

Á Þorrablótið mætti ég fyrst allra, og fékk mér meðal (Whisky) á barnum og taldi mér trú um að ég væri tilbúin í herlegheitin.  Og herlegheit voru það!  Þorrablótið tókst einstaklega vel og öll þau skemmtiatriði sem boðið var upp á voru í einu orði sagt fullkomin. 

Minni karla og kvenna voru í höndum heiðurshjónanna Ingrid Kuhlman og Eyþórs Eðvarðssonar og eins og þeirra var von og vísa, slógu þau bæði í gegn með sínum frábæra húmor.  Það verður erfitt að feta í þeirra fótspor, þannig að mér finnst bara spurning um að við fastráðum þau.Eyþór og Ingrit

Jói Kristjáns (Sandari) átti það erfiða hlutverk að troða upp í kjölfar þeirra hjóna.  Ég verð nú að segja að ég hafði svolitlar áhyggjur af mínum gamla skólabróður en hann sannaði það þarna af  hverju hann er einn af fremstu skemmtikröftum þjóðarinnar.  Hann átti salinn!

Svenni bróðir stjórnaði samkomunni af mikilli röggsemi, en eins og hann sagði þá var nú meiningin að hann yrði bara aðstoðarmaður Snorra Sturlusonar við veislustjórn, en Snorri var veðurtepptur heima á Suðureyri. 

Þorrablótið tókst fullkomlega og eiga Sigurþór, formaður og Róbert, stjórnarmaður bestu þakkir skildar, en þeir áttu veg og vanda að öllum undirbúningi.Stjórnarstrákar

Metþátttaka var, en uppselt var nokkrum vikum fyrir blót.  Það er auðséð að þessum ungu mönnum í stjórninni er  að takast að höfða til yngri kynslóðarinnar, því aldrei áður hefur verið svona mikið af ungu fólki á þorrablóti Súgfirðingafélagsins.  Annars var aldursdreifingin nokkuð góð frá 18 ára til 80! En allt þetta unga flotta fólk yndisleg viðbót í félagsskapinn.

 

Þrátt fyrir slappleika, tókst mér samt að halda þetta út fram yfir miðnætti, en síðan hef ég bara legið og ætla að gera það áfram þar til heilsan batnar.


Fjörðurinn minn!

Að alast upp í litlu einangruðu sjáfarþorpi eins og Suðureyri við Súgandafjörð voru forréttindi.

Súgandafjörður er lítill þröngur fjörður á norðanverðum Vestfjörðum mitt á milli Önundarfjarðar, sem er sunnan megin og Skálavíkur/Bolungavíkur í Ísafjarðardjúpi, sem er norðan megin.  Fjörðurinn er S-laga og Suðureyrin er sunnan megin í firðinum og í skjóli fyrir sterkum úthafsvindum.  Enda er varla “lognsælli” fjörð að finna á hinum lognsælu Vestfjörðum. 

sugandafj-25583

Á fögrum sumardögum var um ½ klst. akstur til Ísafjarðar, sem við kölluðum jafnan “höfuðstað” Vestfjarða og svipuð vegalengd var til Flateyrar í Önundarfirði.  Á snjóamiklum vetrum, var eina leiðin frá firðinum okkar sjóleiðin, þannig að segja má að að við höfum í raun  verið “innlyksa” í 6 – 8 mánuði á ári.  Það var bara ekkert verið að “þvælast” að ástæðulausu.

Djúpbáturinn Fagranes kom reyndar til okkar vikulega með hinar ýmsu nauðsynjavörur, s.s. Mjólk, brauð, póstinn, og “dagblöðin”!

Strandferðaskipin Esja og Hekla komu að mig minnir líka vikulega á leið sinni kringum landið.  Aðrar  samgönguleiðir voru ekki fyrir hendi.  Á sjöunda áratugnum bættist svo snjóbíllinn við, sem varð gífurlega mikil samgöngubót og öryggistæki.

Við þessar aðstæður uxum við úr grasi, púkarnir á Suðureyri alveg fram að komu Vestfjarðaganganna, sem liggja frá Skutulsfirði í norðri til Önundarfjarðar í suðri með afleggjara til Súgandafjarðar í miðjum göngum.

Fullorðna fólkið vann flest við “björgun” sjáfaraflans og þegar mikið lá við fengum við “púkarnir” líka að taka þátt í þessum “björgunarstörfum”!  Það var ekki leiðinlegt, fengum stundum frí í skólanum, til að taka þátt í þessum “björgunarstörfum” og pening í ofanílag!

En á meðan fullorðna fólkið vann, baki brotnu við þessa undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar, lékum við “púkarnir” lausum hala að því að við töldum, án alls eftirlits og skemmtum okkur konunglega.  Seinna komst maður að því að fullorðna fólkið var alltaf með einhvern á “útkikkinu” til að passa uppá að við færum okkur ekki að voða.  Segja má að þeir fullorðnu hafi gert með sér samkomulag um að ala okkur upp í sameiningu, þótt endanleg ábyrgð væri að sjálfsögðu foreldra hvers og eins.

Menningarlíf var undir íbúunum sjálfum komið og ég verð að segja að það var ansi gott á þeim árum sem ég var að alast upp.  Alltaf eitthvað um að vera.   Skátafélagið Glaðherjar undir stjórn Bigga í Botni, stóð undir nafni, haldnir voru reglulegir skátafundir og farið var í útilegur á sumrin, og meira að segja fóru Abbi bróðir og Dúddi frændi á Jamboree til Grikklands!

Íþróttafélagið Stefnir, stóð fyrir hinum ýmsu íþróttaiðkunum og mótum, og farið var árlega á héraðsmótin, sem venjulega voru haldin að Núpi í Dýrafirði.  Þar kynntumst við Súgfirsku “púkarnir” öðrum vestfirskum “púkum” og háðum við þá keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum.

Barnastúkan Vísir nr. 71, var undir stjórn Sigrúnar Sturludóttur á þessum tíma og þar voru einnig reglulegir “fundir”, þar sem ungdómurinn var m.a. æfður í leiklist og upplestri, jú og “templaraheitinu”!.  Barnablaðið Æskan var gefin út af templarahreyfingunni og við vorum flest áskrifendur.

“Árshátíð” barnaskólans, hét á þessum tíma “Barnaskemmtun”.  Hver einasti nemandi skólans hafði hlutverk og tók því alvarlega!  1. bekkur fór með “stökur”.  Bekkurinn stóð í skeifulaga hring á sviðinu og síðan varð hver og einn að stíga fram á mitt svið og fara með sína stöku!  Uppskriftin:  Standa beinn í baki og horfa á götin á veggnum á móti, þar sem kvikmyndavélarnar fyrir bíósýningar eru!  Þannig komst maður hjá því að horfa á allt fólki í salnum!

Fullorðna fólkið var líka með sitt “félagslíf”.  Leikfélagið Hallvarður Súgandi, setti upp leiksýningar á hverjum vetri, og ferðaðist jafnvel til annarra nágrannafjarða á vorin, svo fleiri fengju að njóta.   Kvenfélagið Ársól bauð árlega til Sólarkaffis í félagsheimilinu, þar sem fagnað var komu fyrstu sólargeislanna á eyrina það árið.

Sjómannadags ballið, gamlárskvölds ballið, 2. hvítasunnu ballið og síðast en ekki síst Þorra og Góublótin.  Á Þorrablótin, sem haldin voru annað hvert ár buðu konurnar í þorpinu körlum sínum til blóts og sáu um alla framkvæmd og skemmtiatriði. Um Góublótin sem haldin voru “hitt árið” sáu karlarnir í þorpinu.  Þessi siður tíðkast enn þann dag í dag og eru að sögn þeirra sem til þekkja bestu skemmtanir ársins! 

Við “púkarnir” fengum að sjálfsögðu ekki að taka beinan þátt í þessum “blótum” fullorðna fólksins, en án okkar hefðu þau ekki getað þetta!  Því um leið og “púki” komst á “pössunaraldurinn” var maður bókaður í barnapössun!  En það væri efni í annan pistil.

 

Í kvöld stendur Súgfirðingafélagið í Reykjavík fyrir þorrablóti.  Það verður án efa hin besta skemmtun, þar sem ungir og eldri Súgfirðingar, búsettir á Reykjavíkursvæðinu og nálægum byggðalögum, munu koma saman, rifja upp gamla tíma og nýja , rækta gömlu vinaböndin, skemmta sér og njóta samverunnar!   


Hann á afmæli í dag!

Róbert Skúli er 3ja ára í dag! 

Til hamingju með afmælið elsku stóri strákur!

Á morgun blæs hann til veislu!  Ég mæti!Afmælisboð Róberts Skúla

 

Það er á svona tímamótum, sem við “gamla” fólkið erum minnt á hvað tíminn líður hratt.

Hjá yngra fólkinu silast tíminn áfram og alltaf er verið að bíða eftir næstu “tímamótum”.

Kannski ekki hjá þessum allra yngstu, en um leið og tímaskynið fer í gang…er farið að bíða!

Fyrst er það “alvöru skólinn”, svo kannski fermingin, næst er það framhaldsskólinn og bílprófið og svona mætti áfram telja.  Það er svo ekki fyrr en um þrítugsaldurinn, sem tíminn fer að rjúka frá manni og maður fer að velta fyrir sér hvort maður hafi tíma til að klára hitt og þetta, sem stefnt hafði verið að!

 

Að verða mamma er yndislegt og þroskandi, það eru tímamót, sem aldrei gleymast.  Allan þroskaferil barnsins er maður að læra á barnið/börnin og móðurhlutverkið er endalaus lærdómur, sem enginn lærir fullkomlega. 

Að verða amma, er einnig yndislegt og þroskandi (maður hættir aldrei að þroskast!), en ömmuhlutverkið er að sjálfsögðu öðruvísi.  Nú stendur maður á hliðarlínunni og reynir að vera til staðar, þegar á þarf að halda. 

Elsku Ómar Daníel og Guðrún, til hamingju með Róbert Skúla!  Þið eruð að standa ykkur frábærlega í foreldrahlutverkinu. 

Pitsugerðardrengurinn


Hetjan mín!!!

Svandís Svavarsdóttir var hetjan mín fyrir u.þ.b. þremur mánuðum síðan!  Í kvöld horfði ég á Kastljósið og velti því fyrir mér hvað hefði komið fyrir þennan mikla vörð siðgæðis og réttlætis.

Ég á ekki orð og ætti þess vegna ekki að vera tjá mig, en geri það nú samt!

En…….málið er að þótt myndast hafi “þverpólitísk samstaða” hjá borgarfulltrúum um að “jarða málið” og lofa svo betri vinnubrögðum í framtíð, þá sitjum við vanmáttugir borgarbúar og kjósendur þessara “þverpólitísku” borgarfulltrúa með óbragð í munni.

Þau fundu það út, eftir að hafa velt við öllum steinum, að þau hefðu öll á einhverjum tímapunkti gerst samsek í framvindu þessa gerspillta REI-máls.

“þverpólitísku” borgarfulltrúarnir treysta sér ekki að þessu sinni til að draga neinn til ábyrgðar!  En boða betri og gegnsærri vinnubrögð!

Þetta fólk er kosið til ábyrgðar en þarf samt ekki að axla ábyrgð þegar á hólminn er komið!

Um hvað snúast stjórnmál?   Er þetta endalaus sandkassaleikur?Sandkassaleikur  


Fjársjóður - Menningarverðmæti!

Og ekki einu sinni falin fjársjóður. 

Við Súgfirðingar verðum ævinlega þakklát okkar gamla sóknarpresti.

Sr. Jóhannes Pálmason var sóknarprestur okkar Súgfirðinga í 30 ár frá árinu 1942 – 1972.

Allan þann tíma skráði hann sögu okkar í myndum og reyndar líka í rituðu máli. Sr. Jóhannes

Myndavéla eign var ekki algeng á þessum árum, þannig að þessar myndir eru einstakar og mynda samfellda sögu og þroska okkar Súgfirðinga á þessum árum.

En myndirnar hans Sr. Jóhannesar, væru sennilega bara í einhverjum kössum, ef sonur hans Pálmi hefði ekki tekið sig til eitt árið, sorterað þær og skannað þær síðan í tölvutækt form!

Og við megum njóta!

Hægt er að nálgast myndirnar hans Sr. Jóhannesar á heimasíðu Súgfirðingafélagsins í Reykjavík www.sugandi.is og á vefnum "Sjávarþorpið Suðureyri" www.sudureyri.is

 

Takk fyrir kæri fermingarbróðir!

suðureyri 1943

 

 

 

 


Stóri símamaðurinn!

Tileinka þetta blogg,  vinkonum mínum Eygló Einarsd. í Svíþjóð, Helgu Kársd. Í Ástralíu, Birgittu Hlín í Danaveldi og svo  bróður mínum  í Ástralíu!

 

Kominn tími til, segja sumir!  Góða slepptu því, segja aðrir!  Jú, jú, þú getur alltaf hætt að blogga aftur, ef þú kemst að því að þetta er ekki þinn vettvangur, segja enn aðrir!

Hver er minn vettvangur? Spyr ég!

Ákvað að láta vaða þar sem ég hef alltaf haft ríka þörf fyrir að tjá mig um hin ýmsu þjóðfélagsmál og símareikningurinn stundum verið svo óheyrilega hár að m.a.s. mér blöskrar!

 

Ætla ekki að tjá mig um þjóðfélagsmálin í þessu fyrsta bloggi mínu þar sem ég er eiginlega komin með upp í kok vegna þeirrar “geðveiku” stöðu, sem þar ríkir!

 

Var að passa sonarsoninn Róbert Skúla um helgina, hann var yndislegur að venju!  Hann verður 3ja ára þann 8. febrúar n.k. Mjög skýr strákur, altalandi, alteljandi og er svo sannarlega farin að hafa skoðanir á hlutunum!  Var mikið að nota leikfangasímann sinn í þessari ömmu heimsókn sinni.  Þurfti að tala og senda SMS svona til skiptis.  Eftir eitt langa símtalið, spurði ég hann  við hvern hann hefði verið að tala, svarið kom um hæl:  Borgarstjórann!  Hvað sagði borgarstjórinn, spurði ég,  allt bara fínt, svaraði minn!  Tek það fram að ég var ekki að tala í minn síma meðan drengurinn var hjá mér, þannig að allt tal um einhverja borgarstjóra, hefurRóbert í símanum!hann frá öðrum en mér!                                                                          Róbert í símanum!

Við lásum 5 bækur á laugardagskvöldið x2.  Fyrst las ég ritaða textann, sem fylgdi myndunum og svo las hann sömu bók með sinni útgáfu!  Á milli sagði hann mér sögur frá því hann var pínulítið barn!:  Þegar ég var pínuoggulítill, eins og Erica Ósk, manstu? Þá var fluga í glugganum, manstu?  Þegar ég var pínuoggulítill, eins og pabbi á myndinni, bendir á mynd af pabba sínum pínuoggulitlum, þá gat ég ekki labbað! Ég var svona pínuoggulítill, svona: sýnir ömmu sinni pínuoggulítið bil milli þumalfingurs og vísifingurs!  Já það er munur að vera orðin 3ja ára stór strákur og farin að rifja upp “gamla daga”!

                                                                                                           
Þegar ég var “pínuoggulítil” að alast upp heima á Suðureyri við Súgandafjörð, átti ég fullt af góðum vinkonum!  Ein þeirra var hún Eygló Einarsdóttir, jafnaldra mín.  Eins og gengur og gerist með aldri og búsetu, vilja þessi vinkonubönd rofna með tímanum, þótt vissulega séum við allar æskuvinkonur og þyki óumræðilega vænt um hverja aðra!

En aldur og búseta hafa ekki haft nein áhrif á samband okkar Eyglóar!  Hún hefur búið í Svíþjóðvinkonur í mörg, alltof mörg ár, og ég sé hana bara á nokkurra ára fresti.  Það er dýrt að vera í símasambandi, svo hún er ein af þeim, sem ég tileinka þetta blogg!

Þegar ég var orðin aðeins eldri bjó ég í nokkur ár á Akranesi.  Þar kynntist ég Birgittu Hlín, ættaðri frá Akureyri!  Við deildum saman “súru” og “sætu”, urðum megagóðar vinkonur, sem ég mun alltaf vera þakklát fyrir!  Hún hefur undanfarin ár búið í landi móðurfólks síns, Danmörku!  Gitta flytur vonandi “heim” bráðum, en þá til Akureyrar, þannig að þetta blogg er líka tileinkað henni!                                                                                                                                                                                  

Helga Björg, býr í Ástralíu, og hefur verið þar s.l. 40 + ár, eða síðan hún var 6 ára gömul!  Ég kynntist henni, þegar hún “prófaði” að búa hér á Íslandi fyrir nokkrum árum.  Hún var hér í tæp 2 ár, einstæð móðir með 2 dætur!  Við urðum “perlu vinkonur”, sem engan engan skugga ber á!  Símtölin til Ástralíu hafa verið mörg og dýr, yndisleg, nauðsynleg, og stundum svolítið “rauðvínsblönduð”!  Þetta blogg er því líka tileinkað Helgu vinkonu minni, og rauðvínið mun hvergi koma hér við sögu!!

Elskulegur bróðir minn, Albert Finnur, hefur búið í Ástralíu í rúm 28 ár!  Síðast en ekki síst mun ég tileinka honum þetta blogg mitt!

Ég geri mér fyllilega grein fyrir að þetta blogg  mun verða “sýnilegt” öllum!  Ég bið því  um “tilfinningalegt svigrúm” til þess að leyfa þessum vinum mínum að fylgjast með mínum “þankagangi” og vona að kverúlöntum þessa lands verði ekki misboðið af skrifum mínum í framtíðinni!  Öðrum býð ég vel að  njóta!

Myndatextar:
Efri mynd: Stóri símamaðurinn
Neði mynd: Æskuvinkonur; Ég, Erna, Eygló og Eyrún

 

 


« Fyrri síða

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband