Leita í fréttum mbl.is

Stóri símamađurinn!

Tileinka ţetta blogg,  vinkonum mínum Eygló Einarsd. í Svíţjóđ, Helgu Kársd. Í Ástralíu, Birgittu Hlín í Danaveldi og svo  bróđur mínum  í Ástralíu!

 

Kominn tími til, segja sumir!  Góđa slepptu ţví, segja ađrir!  Jú, jú, ţú getur alltaf hćtt ađ blogga aftur, ef ţú kemst ađ ţví ađ ţetta er ekki ţinn vettvangur, segja enn ađrir!

Hver er minn vettvangur? Spyr ég!

Ákvađ ađ láta vađa ţar sem ég hef alltaf haft ríka ţörf fyrir ađ tjá mig um hin ýmsu ţjóđfélagsmál og símareikningurinn stundum veriđ svo óheyrilega hár ađ m.a.s. mér blöskrar!

 

Ćtla ekki ađ tjá mig um ţjóđfélagsmálin í ţessu fyrsta bloggi mínu ţar sem ég er eiginlega komin međ upp í kok vegna ţeirrar “geđveiku” stöđu, sem ţar ríkir!

 

Var ađ passa sonarsoninn Róbert Skúla um helgina, hann var yndislegur ađ venju!  Hann verđur 3ja ára ţann 8. febrúar n.k. Mjög skýr strákur, altalandi, alteljandi og er svo sannarlega farin ađ hafa skođanir á hlutunum!  Var mikiđ ađ nota leikfangasímann sinn í ţessari ömmu heimsókn sinni.  Ţurfti ađ tala og senda SMS svona til skiptis.  Eftir eitt langa símtaliđ, spurđi ég hann  viđ hvern hann hefđi veriđ ađ tala, svariđ kom um hćl:  Borgarstjórann!  Hvađ sagđi borgarstjórinn, spurđi ég,  allt bara fínt, svarađi minn!  Tek ţađ fram ađ ég var ekki ađ tala í minn síma međan drengurinn var hjá mér, ţannig ađ allt tal um einhverja borgarstjóra, hefurRóbert í símanum!hann frá öđrum en mér!                                                                          Róbert í símanum!

Viđ lásum 5 bćkur á laugardagskvöldiđ x2.  Fyrst las ég ritađa textann, sem fylgdi myndunum og svo las hann sömu bók međ sinni útgáfu!  Á milli sagđi hann mér sögur frá ţví hann var pínulítiđ barn!:  Ţegar ég var pínuoggulítill, eins og Erica Ósk, manstu? Ţá var fluga í glugganum, manstu?  Ţegar ég var pínuoggulítill, eins og pabbi á myndinni, bendir á mynd af pabba sínum pínuoggulitlum, ţá gat ég ekki labbađ! Ég var svona pínuoggulítill, svona: sýnir ömmu sinni pínuoggulítiđ bil milli ţumalfingurs og vísifingurs!  Já ţađ er munur ađ vera orđin 3ja ára stór strákur og farin ađ rifja upp “gamla daga”!

                                                                                                           
Ţegar ég var “pínuoggulítil” ađ alast upp heima á Suđureyri viđ Súgandafjörđ, átti ég fullt af góđum vinkonum!  Ein ţeirra var hún Eygló Einarsdóttir, jafnaldra mín.  Eins og gengur og gerist međ aldri og búsetu, vilja ţessi vinkonubönd rofna međ tímanum, ţótt vissulega séum viđ allar ćskuvinkonur og ţyki óumrćđilega vćnt um hverja ađra!

En aldur og búseta hafa ekki haft nein áhrif á samband okkar Eyglóar!  Hún hefur búiđ í Svíţjóđvinkonur í mörg, alltof mörg ár, og ég sé hana bara á nokkurra ára fresti.  Ţađ er dýrt ađ vera í símasambandi, svo hún er ein af ţeim, sem ég tileinka ţetta blogg!

Ţegar ég var orđin ađeins eldri bjó ég í nokkur ár á Akranesi.  Ţar kynntist ég Birgittu Hlín, ćttađri frá Akureyri!  Viđ deildum saman “súru” og “sćtu”, urđum megagóđar vinkonur, sem ég mun alltaf vera ţakklát fyrir!  Hún hefur undanfarin ár búiđ í landi móđurfólks síns, Danmörku!  Gitta flytur vonandi “heim” bráđum, en ţá til Akureyrar, ţannig ađ ţetta blogg er líka tileinkađ henni!                                                                                                                                                                                  

Helga Björg, býr í Ástralíu, og hefur veriđ ţar s.l. 40 + ár, eđa síđan hún var 6 ára gömul!  Ég kynntist henni, ţegar hún “prófađi” ađ búa hér á Íslandi fyrir nokkrum árum.  Hún var hér í tćp 2 ár, einstćđ móđir međ 2 dćtur!  Viđ urđum “perlu vinkonur”, sem engan engan skugga ber á!  Símtölin til Ástralíu hafa veriđ mörg og dýr, yndisleg, nauđsynleg, og stundum svolítiđ “rauđvínsblönduđ”!  Ţetta blogg er ţví líka tileinkađ Helgu vinkonu minni, og rauđvíniđ mun hvergi koma hér viđ sögu!!

Elskulegur bróđir minn, Albert Finnur, hefur búiđ í Ástralíu í rúm 28 ár!  Síđast en ekki síst mun ég tileinka honum ţetta blogg mitt!

Ég geri mér fyllilega grein fyrir ađ ţetta blogg  mun verđa “sýnilegt” öllum!  Ég biđ ţví  um “tilfinningalegt svigrúm” til ţess ađ leyfa ţessum vinum mínum ađ fylgjast međ mínum “ţankagangi” og vona ađ kverúlöntum ţessa lands verđi ekki misbođiđ af skrifum mínum í framtíđinni!  Öđrum býđ ég vel ađ  njóta!

Myndatextar:
Efri mynd: Stóri símamađurinn
Neđi mynd: Ćskuvinkonur; Ég, Erna, Eygló og Eyrún

 

 


Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Gaman ađ sjá ţig hérna. Mun fylgjast međ ţér.

Anna Kristinsdóttir, 6.2.2008 kl. 22:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband