29.1.2009 | 22:08
Hverjir skópu velferðarsamfélagið?
Þessi frétt um lokun/fækkun hjúkrunarrýma á Landakoti fór alveg fram hjá mér þar sem ég var önnum kafin við hjúkrun/umönnun á eldri borgurum þegar hún var birt. Svona fréttir stoppa náttúrulega stutt á forsíðu fréttavefs
Það er makalaus andskoti að við skulum reglulega þurfa að fara í gegnum þessa umræðu. Hversu gamlir ætli þeir einstaklingar séu sem taka þessar ákvarðanir?
Ætli þeir séu það ungir að "ellin" sé þeim fjarlæg sem himintunglin? Ætli þeir séu það gamlir að þeir séu sjálfir "munaðarlausir"? Ætli þeir geri sér ekki grein fyrir að röðin komi einhvertíma að þeim sjálfum?
Af hverju ætli þeim sem með fjármuni ríkisins fara finnist alltaf réttlætanlegt að skera niður útgjöld vegna aldraðra einstaklinga?
Aldraðir Íslendingar eru þeir sem lengst hafa borgað í sameiginlegan sjóð ríkisins. Þeir sem eru aldraðir í dag unnu bókstaflega baki brotnu við að skapa það velferðarþjóðfélag sem við töldum okkur vera.
Það voru ekki aldraðir Íslendingar sem komu okkur í þá stöðu sem við erum í þessa dagana....það voru afkomendur þeirra í 2. og 3ja ættlið, sem það gerðu og hafi þeir skömm fyrir.
Ég viðurkenni fúslega þá skuld, sem ég hef gagnvart öldruðum Íslendingum, en ég neita alfarið þeirri skuld, sem fjárglæframenn og vita vonlaust opinbert eftirlitskerfi hefur sett á mínar herðar.
Aldraðir Íslendingar eiga skilið áhyggjulaust ævikvöld, þeir hafa unnið fyrir því.
Deildum lokað á Landakoti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
tek undir
Hólmdís Hjartardóttir, 29.1.2009 kl. 22:14
Sammála
, 29.1.2009 kl. 22:22
Þetta er sko meira en satt. Maður hefur ekkert sérstakan áhuga á að verða mjög gamall í þessu þjóðfélagi. Svo eru vitanlega til ellimillablokkir þar sem ríka fólkið heldur sig í ellinni, eins langt frá almúganum og það hefur verið alla ævi.
Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 22:24
HEYRHEYR
Sædís Hafsteinsdóttir, 29.1.2009 kl. 22:36
Auddað.
Steingrímur Helgason, 29.1.2009 kl. 22:38
Sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Sagði gamla konan. Sorglegt
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 29.1.2009 kl. 22:49
Heyr, heyr þetta er svo satt. Það er skömm að þessu liði sem alltaf vill skera niður í þjónustu við aldraða.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.1.2009 kl. 01:05
Ég gæti ekki verið meira sammála!
Lára Hanna Einarsdóttir, 30.1.2009 kl. 02:33
Þessi meðferð er svik við eldra fólk
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.1.2009 kl. 02:41
Hjartanlega sammála tér Sigrún mín.Gefum öldrudum áhyggjulaust ævikvöld PÙNKTUR
Knús til tín.
Gudrún Hauksdótttir, 30.1.2009 kl. 08:40
Þetta er ljótasti bletturinn á samféagi okkar hvernig við komum fram við eldri borgara landsins
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 08:51
Þakka ykkur fyrir innlit og innlegg
Sigrún Jónsdóttir, 30.1.2009 kl. 12:38
Munið þið síðasta verk Ingibjargar Sólrúnar í borgarstjórastólnum?
nei ef ég man rétt þá var það sá sparnaður sem gerði það að verkum að föndrið hætti nema á vissum stöðum, það átti að aka fólkinu á vissa staði í borginni hef ekki á æfi minni vitað annað eins.
Mamma mín var á Lindargötunni síðan þurfti hún að fara á hjúkrunarheimili, fór í Skógarbæ yndislegt heimili, en ekkert föndur.
Það er skömm að þessu.
Kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.1.2009 kl. 13:59
Gæti ekki verið meira sammála þér!!! Það er skammarlegt að fara svona með eldri kynslóðina. Þá kynslóð sem var alin upp við það að bíta bara á jaxlinn og þegja sama hvað að höndum ber! Þetta er kannski líka sú kynslóð sem hefur lengst af sett exið sitt við bókstafinn D vegna þess hvað flokkurinn á bak við hann ber fallegt heiti
Rakel Sigurgeirsdóttir, 30.1.2009 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.