Leita í fréttum mbl.is

Hvað kostar Framsókn??

Ég hef enga trú á að Framsókn sé með einhverja "alvöru" úrslitakosti....þeir hafa varla efni á því.  Þegar upp er staðið er allt betra í þeirra augum en að vera í stjórnarandstöðu því þeir kunna það ekkiWhistling

En það má ekki líta út fyrir að ... "They´d do anything"........

 

Mikið rosalega yrði ég pirruð ef þessi örflokkur næði að stoppa af væntanlega bráðabirgðastjórnAngry


mbl.is Samþykkja stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú vanmetur Framsóknarflokkinn á eigin ábyrgð. Ekki það skynsamlegasta í heiminum að slá hann bara út af borðinu sem 'örflokk'.

Uni Gislason (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 18:40

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ekki finnst mér það nú gott að nýja ríkisstjórnin eigi eitthvað undir Framsóknarflokknum. Mér hefur aldrei hugnast sá flokkur.

Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 19:11

3 identicon

Sá flokkur (Framsókn) er samt (burtséð frá mínum stjórnmálaskoðunum) að gera tilraun til einhvers konar endurreisnar. Við getum ekki neitað því. Hreinsunin á fundinum hjá þeim um daginn, nýir leiðtogar og síðast frumvarpið þeirra í dag. Þetta eru skref fram á við. En hvort þeir eigi samleið með væntanlegri velferðar/kreppustjórn veit ég ekki. En gætu veitt henni nauðsynlegt aðhalda. En rétt hjá þér Sigrún, sagan segir að þeir fíli ekki beint stjórnarandstöðu. Kveðja til þín.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 21:21

4 Smámynd: Auður Proppé

Mér fannst nú nýji formaður Framsóknar gera sig að fífli í sjónvarpinu í kvöld.  Hann gat ekki gefið skýr svör um eitt né neitt og vísaði alltaf í að þingflokkur þeirra bæri ábyrgðina þar sem þeir yrðu að samþykkja og bla,bla,bla. 

Leiðir maðurinn ekki flokkinn, á hann ekki að tala fyrir flokkinn??  Það var eins og hann væri hræddur við að segja eitthvað sem hann persónulega gæti verið hankaður á seinna.  Nýr og skíthræddur, hefði tékkað stólsetuna hans eftir viðtalið.  (úff, ég er í voða vondu skapi í dag)  Knús til þín Sigrún mín

Auður Proppé, 29.1.2009 kl. 21:32

5 Smámynd: Ragnheiður

Framsókn kann hvorki að vera með eða á móti, ég er skítnervus við þetta og verð því fegnust þegar kosningar verða afstaðnar og komið skýrt umboð frá þjóð til þings

Ragnheiður , 29.1.2009 kl. 21:39

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko, flokkurinn bauðst til að styðja þessa stjórn ÁÐUR en stjórnin féll og nokkuð var í pípunum.

Þess vegna held ég og vona að þetta séu bara mannalæti.

Þeir lægu illa í því við þessar aðstæður að koma svo í veg fyrir starfandi bráðabirgðastjórn þar sem þeir hófu máls á þessu mynstri fyrstir alla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 21:41

7 Smámynd: Ragnheiður

Já Jenný hefur nokkuð til síns máls hérna, klár Jennsla..þetta verður kannski allt í lagi

Ragnheiður , 29.1.2009 kl. 21:55

8 Smámynd: Heidi Strand

Því miður eru ekki margar möguleikar í stöðinni. Við verðum vonandi laus við frjálshyggjunni fyrir alla framtíð.
Eins gott að grillpinninn er barnlaus.

Heidi Strand, 29.1.2009 kl. 22:25

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit og innlegg

Uni ég "met" Framsóknarflokkinn einskis...og til að svara öðrum hér, þá vantreysti ég þeirra áformum...virðast nógu veruleikafirrtir til að halda að útkoma í könnunum þýði kosningaúrslit

Sigrún Jónsdóttir, 29.1.2009 kl. 22:35

10 Smámynd: Karl Hreiðarsson

Þetta eru makalaus ummæli Sigrún: "Mikið rosalega yrði ég pirruð ef þessi örflokkur næði að stoppa af væntanlega bráðabirgðastjórn".

Þessi stjórn væri ekki einu sinni til umræðu ef Framsóknarflokkurinn myndi ekki verja hana vantrausti!  Hún er ekki með þingmeirihluta og flokkast þá væntanlega sem ör-ríkisstjórn svo ég noti orðaleppa að þínum stíl.

Karl Hreiðarsson, 30.1.2009 kl. 09:50

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ágæti karl, ég vil taka það fram að mér fannst það góður og skynsamur leikur að bjóða væntanlegri ríkisstjórn upp á að verja hana falli og ljá ekki máls á því að vera þátttakandi í neinu ríkisstjórnarsamstarfi fyrr en flokkurinn fengi umboð til þess að afloknum kosningum.  Skynsöm og bljúg ákvörðun.

Skilyrðaleikurinn sem hefur fylgt í kjölfarið hefur að mínu mati einkennst af pólitískum hráskinnaleik, sem einkennt hefur alla flokka í alltof langan tíma og við höfum engan vegin efni á um þessar stundir, enda er það mitt mat að utanþingsstjórn hefði átt að taka við í þessum aðstæðum. 

Gangi ykkur vel með áframhaldandi "úthreinsanir" í flokknum.  Hálfnað verk þá hafið er

Sigrún Jónsdóttir, 30.1.2009 kl. 11:19

12 Smámynd: Karl Hreiðarsson

Við erum sammála um að utanþingsstjórn hefði átt að taka við núna.  Ég vil hinsvegar meina að það hefði fyrst verið hráskinnaleikur að skrifa uppá óútfylltan tékka til handa nýrri Ríkisstjórn því hvernig eiga þingmenn að kjósa þegar á reynir?  Eiga þeir ekki að fylgja sannfæringu sinni, þó þeir séu framsóknarmenn?  Þá er betra að búið sé að útkljá álitamálin fyrirfram, vinna raunhæfar tillögur sem óháðir sérfræðingar meta að geti gengið upp frekar en að blessa hvað sem er.

Framsóknarmenn vita mætavel að töfin er ekki til þess fallin að auka vinsældir þeirra, þannig að ég get ekki betur séð en að þeir séu með þessu einmitt frekar að hugsa um þjóðarhag en flokkshag.  

Þakka góðar óskir, með úthreinsara Ísland (Jónínu Ben), innanborðs, ætti þetta að ganga hratt fyrir sig!

Karl Hreiðarsson, 31.1.2009 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband