Færsluflokkur: Bloggar
10.4.2008 | 14:10
Eru launþegar hættulegir?
Nú standa fyrir dyrum kjarasamningar við fjölmennustu stéttir ríkisstarfsmanna. Að stærstum hluta eru þetta hinar svokölluðu "kvennastéttir". Kennarar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar eru að fara í endurnýjun sinna kjarasamninga.
Grátkórar, koma fram fyrir hönd ríkissjóðs og munu á næstu mánuðum verða háværari og "falskari" þannig að engin mun leggja við hlustir, nema "innvígðir" og "innmúraðir", sem flestir hafa lífsafkomu sína af verslun með "áhættu" verðbréf.
Stjórnvöld eru í startholunum og munu koma bönkum og öðrum verðbréfasölum til hjálpar við fyrsta mjálm!
Meðan núverandi stjórnvöld voru ennþá á biðilsbuxunum til kjósenda var öldin önnur.
Hjá Seðlabankanum starfa "reynsluboltar", sem vita að kjarasamningar geta verið stórhættulegir, og þá sérstaklega gagnvart, fólkinu, sem samið var fyrir.
Launaskrið er næstum því óþekkt fyrirbrigði hjá "kvennastéttum" ríkis og borgar, en samt hafa reynsluboltarnir hjá Seðlabankanum fundið það hjá einhverjum láglaunastéttum :
"Á hinn bóginn er líklegt að hækkun lægstu launa skríði ekki jafn ört upp launastigann á næstu árum og gerðist árin 2006 og 2007 þegar mikill skortur var á vinnuafli, samkvæmt Peningamálum".
Ætli Eflingarstarfsmenn í heilbrigðiskerfinu hafi orðið varir við þetta launaskrið???
![]() |
Kjarasamningar fela í sér hættu á launaskriði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.4.2008 | 17:29
Fyrirtíðaspenna......!!!
Ég fékk eftirfarandi bréf í e-maili frá vinkonu minni í Ástralíu í dag. Íslenskar konur hafa á stundum gert grín að, eða pirrað sig á auglýsingum frá framleiðendum dömubinda. Sumar láta sér nægja að skipta um stöð þegar svona auglýsingar eru sýndar, aðrar loka augum og halda fyrir eyru, en svo eru til konur sem "henda sér í vegg"!!
Wendi Aarons frá Austin Texas, tekur þetta skrefinu lengra......................
MENSTRUAL LAUGHTER !
This is an actual letter from an Austin woman sent to American company Proctor and Gamble regarding their feminine products. She really gets rolling after the first paragraph ... PC Magazine's 2007 editors' choice for best webmail-award-winning letter.
Dear Mr. Thatcher,
I have been a loyal user of your 'Always' maxipads for over 20 years and I appreciate many of their features. Why, without the Leak Guard Core or Dri-Weave absorbency, I'd probably never go horseback riding or salsa dancing, and I'd certainly steer clear of running up and down the beach in tight, white shorts. But my favorite feature has to be your revolutionary Flexi-Wings. Kudos on being the only company smart enough to realize how crucial it is that maxi pads be aerodynamic. I can't tell you how safe and secure I feel each month knowing there's a little F-16 in my pants.
Have you ever had a menstrual period, Mr.Thatcher? Ever suffered from the curse'? I'm guessing you haven't. Well, my time of the month is starting right now. As I type, I can already feel hormonal forces violently surging through my body. Just a few minutes from now, my body will adjust and I'll be transformed into what my husband likes to call 'an inbred hillbilly with knife skills.
Isn't the human body amazing? As Brand Manager in the Feminine-Hygiene Division, you've no doubt seen quite a bit of research on what exactly happens during your customers monthly visits from 'Aunt Flo'. Therefore, you must know about the bloating, puffiness, and cramping we endure, and about our intense mood swings, crying jags, and out-of-control behavior. You surely realize it's a tough time for most women. In fact, only last week,my friend Jennifer fought the violent urge to shove her boyfriend's testicles into a George Foreman Grill just because he told her he thought Grey's Anatomy was written by drunken chimps. Crazy!
The point is, sir, you of all people must realize that America is just crawling with homicidal maniacs in Capri pants...Which brings me to the reason for my letter. Last month, while in the throes of cramping so painful I wanted to reach inside my body and yank out my uterus, I opened an Always maxi-pad, and there, printed on the adhesive backing, were these words: 'Have a Happy Period.' Are you fu*ing kidding me? What I mean is, does any part of your tiny middle-manager brain really think happiness --actual smiling, laughing happiness is possible during a menstrual period? Did anything mentioned above sound the least bit pleasurable? Well, did it, James?
FYI, unless you're some kind of sick S&M freak girl, there will never be anything 'happy' about a day in which you have to jack yourself up on Motrin and Kahlua and lock yourself in your house just so you don't march down to the local Walgreen's armed with a hunting rifle and a sketchy plan to end your life in a blaze of glory. For the love of God, pull your head out, man! If you just have to slap a moronic message on a maxipad, wouldn't it make more sense to say something that's actually pertinent, like 'Put down the Hammer' or
Vehicular Manslaughter is Wrong', or are you just picking on us?
Sir, please inform your Accounting Department that, effective immediately, there will be an $8 drop in monthly profits, for I have chosen to take my maxi-pad business elsewhere. And though I will certainly miss your Flexi-Wings, I will not for one minute miss your brand of condescending bullsh*t. And that's a promise I will keep. Always....
Best,
Wendi Aarons
Austin, TX
Go Wendi!!
Takk fyrir þetta Helga mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2008 | 23:18
Ég er grallari!
Ég tók strumpaprófið í gær á blogginu hennar Ólínu Þorvarðardóttur og kom út sem "grallara strumpurinn". Ég var alveg sátt við það. Svo er ég búin að sjá útkomuna hjá svo mörgum öðrum og enginn kom út sem grallari eins og ég og þar sem ég vil nú oftast falla inn í fjöldann, ákvað ég að taka prófið aftur og "vanda mig", en það gerði ég ekki í gær!
Taka 2:
Ég held ég verði bara að kyngja þessu. Ég er samt alveg ábyrg manneskja.....held ég
.
Ég held að þetta sé linkurinn á prófið: Take The Smurf Personality Test Again
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.4.2008 | 18:02
Héraðsmót HVÍ....í den.
Oft á vorin haldin voru héraðsmót. Þetta hljómaði oft á öldum ljósvakans þegar amma var ung, það er að segja ég og jafnöldrur mínar!
Mér datt þessi texti í hug þegar ég fór til sjúkraþjálfarans í morgun, af því mér fannst svo vorlegt í henni frk. Reykjavík, svona á íslenskan mælikvarða allavega.
Héraðsmót HVÍ (Héraðssamband Vestur-Ísfafjarðarsýslu) voru alveg örugglega ekki haldin á vorin, því ég get varla ímyndað mér að við sem tókum þátt, værum að stripplast léttklædd niður á stóra túni, við Héraðsskólann á Núpi, þar sem vetrarsnjórinn væri ennþá í öllu sínu veldi, miðað við snjóafréttir að vestan þessa dagana. Svo voru unglingarnir, sem stunduðu nám við Héraðsskólann í prófum fram undir lok Maí, þannig að við íþróttafólkið hefðum ekki fengið gistingu.
Héraðsmótin voru hápunktur sumarsins hjá okkur krökkunum fyrir vestan eftir miðja síðustu öld. Mig minnir að við höfum dvalið í nokkra daga í heimavist Núpsskóla, eða kannski tjölduðum við, ég bara man það ekki. Á daginn fóru fram hinar ýmsu íþróttakeppnir á milli aðildar-íþróttarfélaga Héraðssambandsins.
Íþróttafélögin voru, að mig minnir, Grettir frá Flateyri, Höfrungur frá Þingeyri og síðast en ekki síst félagið mitt, sem heitir Stefnir frá Súgandafirði.
Undirbúningurinn fyrir þessi mót, var stuttur (svona íþróttalega séð), svona 1 til 2 vikur í allt. Það var nú ekki eins og maður væri að fara á Ólimpíuleika!! Jú, að einhverju leiti var eins og við krakkarnir værum að fara á Ólimpíuleika og við ætluðum að sigra!!!
Við skráðum okkur í þær íþróttagreinar, sem við ætluðum að keppa í, valið var í fótboltalið strákanna og handboltalið stelpnanna, a-lið og b-lið ef fleiri vildu keppa en komust í a-lið. Þessar greinar voru algerlega kynjaskiptar minnir mig á þessum árum. Við hlupum spretthlaup eins og skrattinn væri á hælunum á okkur, æfðum langhlaup, hástökk, langstökk, þrístökk, kúluvarp og spjótkast. Allir tóku þátt, því fjöldinn skipti líka máli í stigaúthlutun og vinningslíkum.
Síðast en ekki síst var það íþróttafatnaðurinn. Strákarnir allir eins í Stefnisbúning, sem voru gulir bolir og grænar stuttbuxur og stelpurnar eins, í rauðum stuttbuxum og hvítum bolum. Þetta skipti gífurlega miklu máli fyrir lokaatriði Ólimpíu....nei Héraðsmótsins meina ég, því þá sýndum við vel undirbúnar samhæfðar æfingar úti á stóra túni fyrir fjöldann allan af áhorfendum.
Á þeim árum sem ég tók þátt í þessum skemmtilegu Héraðsmótum, stóð félagið mitt Stefnir oftar en ekki uppi sem sigurvegari. Á því höfðu gárungarnir á hinum fjörðunum sínar skýringar. Þeir héldu því fram að það væru svo margir drullupollar á götum Suðureyrar, að við værum t.d. í stöðugri æfingu fyrir stökkíþróttirnar eins og langstökk og þrístökk. Þetta var kannski rétt ályktað hjá þeim, en svo vorum við líka alltaf með leynivopn, Íslandsmethafinn í 100 m spretthlaupi var í okkar röðum. Bjarni Stefánsson, sýslumaður, var alltaf sumarlangt hjá ömmu sinni og afa í Súgandafirði og keppti þá náttúrulega fyrir Stefni. Annars var hann örugglega félagsbundinn í einhverju Reykjavíkurliðinu, en það var nú ekki verið að láta svoleiðis smámuni trufla sig í þá daga.
Ekki má gleyma kvöldvökunum á þessum héraðsmótum. Kvöldvökustjórar voru þeir Sigurður R. Guðmundsson, sem þá var íþróttakennari við Núpsskóla og Súgfirðingurinn, íþrótta- og skíðakennarinn, Valdimar Örnólfsson. Það má því segja að við höfum fengið meira en "smjörþef" af hinni rómuðu stemmingu, sem kvöldvökur Kerlingafjalla-bænda voru frægar fyrir.
Íþróttafélagið Stefnir varð 100 ára fyrir nokkru síðan, og lifir enn góðu lífi skilst mér. En hvar voru þá Stefnisfélagar þegar nútíma Héraðsmótið var haldið á Ísafirði á dögunum, þ.e. sjónvarpskeppninni Skólahreysti?
Stefnir United er hópur ungs fólks í Súgfirðingafélaginu í Reykjavík, sem mætir til leiks á Sjómannadeginum í Reykjavík og keppir í kappróðri og þau vinna alltaf, bæði gleði samverunnar
og yfirleitt verðlaunabikar líka!
Bloggar | Breytt 5.4.2008 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.4.2008 | 11:23
Trúverðugleiki í hættu.
Í gær var mér misboðið en í dag er ég forvitin. Í hverju felst þessi geigvænlegi mismunur á útreikningum Vísismanna og því sem forsætisráðuneytið segir vera raunverulegan aukakostnað við þessa ferð?
Getur verið að kostnaður vegna dagpeninga, hótelgistingar og flugvallarsnarls hlaupi á milljónum fyrir ca. 1 sólarhring í þessum útreikningum? Hvað eru ráðamenn þjóðarinnar eiginlega með í dagpeninga á ferðalögum sínum?
Það er auðvitað slæmt, ef Vísir.is er vísvitandi að fara með fleipur, en dæminu er ekki lokað, ef forsætisráðuneytið vill ekki eða getur ekki rökstutt sitt reikningsdæmi.
Nú held ég að báðir aðilar verði að "opna" bókhaldið, sem þetta reikningsdæmi snýst um, annars skaðast trúverðugleiki beggja aðila.
Ég skil vel að forsætisráðherra sé misboðið að vera vændur um "bruðl" á þessum síðustu og verstu tímum, en það vantar bara allan trúverðugleika í tölur forsætisráðuneytis og það finnst mér afar slæmt.
![]() |
Munaði 100-200 þúsund krónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.4.2008 | 14:53
Veruleikafirring!!!
Það má með sanni segja að ég hafi gabbað sjálfa mig þann 1. apríl.
"Eins og fram hefur komið á Vísi fóru þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ásamt fylgdarliði á einkaþotu á leiðtogafund NATO sem hefst í Búkarest í Rúmeníu í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er kostnaðaraukinn við það að velja einkaþotu í stað almenns flugs um sex milljónir króna".
Þetta las ég á Vísi.is í dag. Ég neitaði að trúa þessu, alveg frá fyrstu fréttum til síðasta bloggs í gær. Lái það mér hver sem er að trúa þessu ekki. Bæði Ingibjörg og Geir hafa undanfarið verið að hvetja til sparnaðar og vara við óráðsíu "á meðan efnahagsástandið er í þessari lægð" eins og þau segja.
6 milljónir af almannafé er dágóður peningur. Þetta eru árslaun nokkurra láglaunastarfsmanna hjá ríkinu, sem hafa ekki einu sinni efni á að fljúga eitthvert út í buskann á "almennu farrými", hvað þá að veita sér einhvern munað yfirleitt.
6 milljónir gætu bjargað því að sumardvöl fatlaðra barna gæti orðið að veruleika og vísa ég þá á blogg Jónu Gísladóttur jonaa, því til staðfestingar.
6 milljónir gætu skipt sköpum fyrir láglaunafólk á hjúkrunarheimilum eða leikskólum, þótt sú upphæð þyrfti að skiptast á nokkuð marga.
6 milljónir eru stórfé í hugum þeirra, sem skrimta.
Verða íslenskir stjórnmálamenn gjörsamlega veruleikafirrtir, um leið og þeir komast til valda?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.4.2008 | 00:40
Tilviljun?
Á sama tíma og ég var að skrifa færsluna hér á undan var góður vinur minn að setja inn "minningarbrot" í tónlistarmyndböndum á sinni síðu, tónlistin sem var á toppnum þegar ég var í "flökunarkeppninni" í Lowestoft. schmidt er nokkuð mörgum árum yngri en ég, en tónlistin, sem ég horfði á fyrir ca. 35 árum síðan á BBC Top of the Pops, virðist engu að síður vera sú tónlist sem hreif unga fólkið heima á Súgandafirði í mörg ár þar á eftir og þá er ég að tala í tugum ára!
Hér koma tvö sýnishorn, og ég er viss um að fáir standast freistinguna í þá 18 konfektmola í viðbót, sem Róbert Schmidt vinur minn er með á sinni síðu schmidt:
http://youtube.com/watch?v=PbWULu5_nXI&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=D_P-v1BVQn8
Njótið!
Ps. Hallgerður, þetta er svona ekta fyrir þig í lasleikanum, svona til að koma þér í gírinn fyrir Köben!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.3.2008 | 20:31
Lowestoft, framtíð vestfjarða?
Þessi færsla er soldið svona í og með saga fyrir synina.
Lowestoft er fiskimannabær á austurströnd Englands. Þar bjuggu fyrrverandi tengdaforeldrar mínir í allmörg ár, þannig að þangað fór ég reglulega í heimsókn á árum áður.
Í þessum enska bæ vissu allir hvar Ísland var, því flestir bæjarbúar höfðu einhverja tengingu við sjómennina, sem stundað höfðu fiskveiðar við Íslands háskalegu strendur í langan tíma.
Annars var það frekar sjaldgæft fyrir 30 árum eða svo að Englendingar vissu hvar Ísland væri á hnettinum og fékk maður hinar ýmsu útgáfur af því hvað tjallinn taldi sig vita um miðdepil
heimsins!
En í Lowestoft vissu allir allt um Ísland. Sjómennirnir þar höfðu með hjálp sjóhers Drottningar, háð þorskastríð, við íslenska sjómenn og byssubáta (gunboats) íslenska heimsveldisins, og tapað stórt!
Það merkilega var, að ég var allsstaðar aufúsugestur og ekki létu Lowestoftbúar það bitna á mér að þeir hefðu orðið undir í baráttunni um íslenska þorskinn, þótt þeir söknuðu íslensku fiskimiðanna. Þeirra reiði beindist gegn breskum stjórnvöldum, sem komu ekki með neitt í staðinn fyrir fiskinn og miðað við fréttir undanfarna daga, er ekkert farið að gera núna 30 árum síðar.
Vestfirðingar, saga Lowestoft getur orðið saga ykkar, því miður.
Ég man eftir því að einu sinni fékk ég áskorun á einhverjum pub um að koma í flökunarkeppni við Lowestoft flakara og tók henni (í einhverri ölvímu) að sjálfsögðu og mætti galvösk í eitt fiskvinnsluhúsið.
Ég vann ekki þessa keppni (þótt minn fyrrverandi hafi alltaf haldið því fram), en my god, ég fékk virðingu og eflaust margar pöbba frásagnir fyrir vikið. Þeir höfðu aldrei séð konu flaka fisk!!! Keppinautarnir fylltust virðingu fyrir þessari íslensku þjóð, þar sem konurnar, þessar fallegu konur (eins og þeir endurtóku í sífellu!!), kunnu aldagamalt handbragð karlanna.
Í Lowestoft lærði ég líka aldagamla enska matargerð. Ég lærði að búa til PIE, sem minnir mig á að ég þarf eiginlega hjálp Ómar minn við að fletja þessa dagana svo ég geti boðið ykkur öllum í uppáhaldsmatinn, steik & kidney pie!!
Mér datt þetta svona í hug vegna frásagna frá þessum slóðum í fréttatíma íslenska ríkissjónvarpsins undanfarin kvöld. Fiskveiðikvóti smábátasjómanna í Lowestoft er núna
50 kg. af þorski á ári skv. tilskipunum Evrópusambandsins. Erum við Íslendingar í einhverri annarri stöðu gagnvart ESB en Breska heimsveldið? Spyr sá sem ekki veit!
Bloggar | Breytt 1.4.2008 kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.3.2008 | 14:45
Hvað ungur nemur, gamall temur!
Helgi Hóseasson hefur haft áhrif. Hann hefur haft áhrif á yngri kynslóðina með sínum æðrulausu, þöglu mótmælum í gegnum tíðina. Það er vel.
Mér finnst það táknrænt að þessir ungu menn, taki sér stöðu á sama stað og Mótmælandi Íslands hefur staðið í öllum veðrum eins lengi og menn muna.
Ég hef lengi dáðst að Helga Hóseassyni, finnst hann flottur karl. Trúr sinni sannfæringu og það er meira en hægt er að segja um fjölmarga stjórnmálamenn, sem hafa komið og farið og selt sannfæringu sína með valdabrölti
.
Flott framtak hjá ungu mönnunum.
![]() |
Hógvær mótmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.3.2008 | 13:09
Alvöru mótmæli, sem heyrast, finnast og sjást.
Gamli baráttuneistinn í mér tók kipp, þegar ég heyrði flautubaul atvinnubílstjóra frá Sæbrautinni, þar sem þeir voru á leið upp í Ártúnsbrekku í hádeginu. Þetta kalla ég að taka á málunum!
Best að ég drífi mig áleiðis til sjúkraþjálfarans, því ég þarf að "krossa" Kringlumýrarbrautina á leið minni til hans. Ég skal með glöðu geði labba einhverja vegalengd og ekki láta hugsanlegar tafir pirra mig!
Bugta mig og beygi fyrir þessum alvöru mótmælendum!
![]() |
Bílstjórar mótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
-
sudureyri
-
schmidt
-
vestfirdingurinn
-
asthildurcesil
-
holmdish
-
hallibjarna
-
jenfo
-
hross
-
hronnsig
-
rognvaldurthor
-
iaprag
-
larahanna
-
svanurg
-
hildurhelgas
-
milla
-
ragnhildur
-
jyderupdrottningin
-
birgitta
-
jogamagg
-
beggita
-
ammadagny
-
steindora
-
jonaa
-
gudrunjona
-
faereyja
-
roslin
-
liljabolla
-
lehamzdr
-
gurrihar
-
helgamagg
-
gledibankinn
-
formosus
-
gerdurpalma112
-
silfri
-
raksig
-
rutlaskutla
-
annaragna
-
sylviam
-
skessa
-
hehau
-
ringarinn
-
kreppan
-
don
-
heidistrand
-
korntop
-
katrinsnaeholm
-
danjensen
-
joninaros
-
tara
-
kruttina
-
manisvans
-
valgeirskagfjord
-
rannveigh
-
emm
-
olinathorv
-
christinemarie
-
bubot
-
ksh
-
jonthorolafsson
-
skordalsbrynja
-
kaffi
-
icekeiko
-
lillagud
-
wonderwoman
-
jonerr
-
stinajohanns
-
saedishaf
-
himmalingur
-
bjarnihardar
-
katan
-
gloppa
-
helgigunnars
-
strunfridur
-
annakr
-
credo
-
fannygudbjorg
-
lucas
-
sveitaorar
-
jakobk
-
disdis
-
sirri
-
finni
-
brahim
-
heidathord
-
sigrunzanz
-
draumur
-
naflaskodun
-
stjornlagathing
-
valdimarjohannesson