Leita í fréttum mbl.is

Veruleikafirring!!!

Það má með sanni segja að ég hafi gabbað sjálfa mig þann 1. apríl.Angry

"Eins og fram hefur komið á Vísi fóru þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ásamt fylgdarliði á einkaþotu á leiðtogafund NATO sem hefst í Búkarest í Rúmeníu í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er kostnaðaraukinn við það að velja einkaþotu í stað almenns flugs um sex milljónir króna".

Þetta las ég á Vísi.is í dag.  Ég neitaði að trúa þessu, alveg frá fyrstu fréttum til síðasta bloggs í gær.  Lái það mér hver sem er að trúa þessu ekki.  Bæði Ingibjörg og Geir hafa undanfarið verið að hvetja til sparnaðar og vara við óráðsíu "á meðan efnahagsástandið er í þessari lægð" eins og þau segja.

6 milljónir af almannafé er dágóður peningur.  Þetta eru árslaun nokkurra láglaunastarfsmanna hjá ríkinu, sem hafa ekki einu sinni efni á að fljúga eitthvert út í buskann á "almennu farrými", hvað þá að veita sér einhvern munað yfirleitt.

6 milljónir gætu bjargað því að sumardvöl fatlaðra barna gæti orðið að veruleika og vísa ég þá á blogg Jónu Gísladóttur jonaa, því til staðfestingar.

6 milljónir gætu skipt sköpum fyrir láglaunafólk á hjúkrunarheimilum eða leikskólum, þótt sú upphæð þyrfti að skiptast á nokkuð marga. 

6 milljónir eru stórfé í hugum þeirra, sem skrimta.

Verða íslenskir stjórnmálamenn gjörsamlega veruleikafirrtir, um leið og þeir komast til valda? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Frekar að spara þeim tímann, eins og Geir H Haarde sagði í gær við Kastljósið. Hann sparar 1 sólarhring á þessum ósköpum!

Hann sagði svo að frekar myndi hann vilja vera hérna í þennan tíma og vinna vinnuna sína, heldur en að sitja á hóteli. Hann nefndi líka að það væri kallað hann letingja og að hann ynni ekki vinnuna sína....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.4.2008 kl. 15:58

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það eru sjálfsagt tvær hliðar á þessu máli eins og öðru en mér finnst að þeir ættu að geta tekið svona skyndiákvörðun og styrkt t.d. verkefni eins og Jóna bendir okkur á.  Knús til þín elskan og takk fyrir stuðning

Ásdís Sigurðardóttir, 2.4.2008 kl. 16:14

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Róslín, þú ert aldeilis flott, bara farin að horfa/hlusta á "harðar" stjórnmálaumræður á þínum aldri.. Frábært hjá þér.

Já Ásdís mín, það eru örugglega önnur hlið á þessari umframeyðslu, en ég fer ekki ofan af því að þetta eru röng skilaboð til þjóðarinnar.  Það væri t.d. hægt að afsala sér þessum lúxus og mörgum öðrum og eyrnamerkja síðan "sparnaðinn" í svona verkefni, sem Jóna bendir á.  Ég trúi því að þeir séu með áróðursmeistara á sínum snærum, sem gæti komið því á framfæri við þjóðina.

Gangi þér vel á þínu "ferðalagi" og uppgjöri, mér finnst þú aðdáunarverð

Sigrún Jónsdóttir, 2.4.2008 kl. 17:42

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Fyrst og fremst eru skilaboðin með þessu slæm.  Nú verður þess gætt að leka ekki svona bruðlupplýsingum aftur.

Hólmdís Hjartardóttir, 2.4.2008 kl. 21:55

5 Smámynd: Brynja skordal

innlitskvitt Góða nótt mín kæra

Brynja skordal, 3.4.2008 kl. 00:11

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Maður verður að vera inní málunum, ef maður ætlar að vinna eitthvað í þessu þegar maður eldist

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.4.2008 kl. 00:15

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég er sammála þér Sigrún mín.  Þetta er taktlaust fram úr hófi, og sýnir að þetta fólk er úr takti við hinn almenna mann á landinu.  Ég vissi að Sjallar væru svona fólk, en Ingibjörg hefur valdið mér verulegum vonbrigðum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband