Leita í fréttum mbl.is

Sæla á Suðureyri v/Súgandafjörð!

Þá er komið að því.  Við Valla systir leggjum af stað vestur á firði á morgun og með okkur í för verður stóra ömmustelpan mín, hún Kristrún Amelía.

Suðureyri 2008 Ég vona að mest af þessum snjó, sem þarna er í fjöllunum verði farinn, þá verður auðveldara að sigta út ísbirniWhistling.

Þessa mynd tók hún Anna Bjarna s.l. vor og mér finnst hún athyglisverð, þar sem ég hef aldrei séð "skerið" svona.  Kannski það sé hægt að labba yfir á Norðureyri þessa dagana???Wink

Ég verð ekki "eyrarbúki", hvorki innri né ytri mala púki þetta árið.........Tounge

 

Hjallavegur

 

Þessa mynd þók hún Ásthildur mín kæra bloggvinkona um daginn og ég gerðist svo kræf að stela henni frá henni, sem ég vona að hún fyrirgefiBlush.  Þarna sést upp á Hjallaveg, en ég mun búa á Hlíðarveginum, sem er vinstra megin í "hjöllunum" séð frá þessum staðJoyful.  Enginn snjór í þessum hlíðum, þannig að ísbirnir geta ekkert falið sigTounge.

 

 

Guðni og ÆvarVið komum til með að hitta þessa sómamenn, þá Guðna og Ævar Einarssyni og Hilmar auðvitað líka, en Guðni og Ævar hafa ásamt Mannsavinum verið í forsvari og stjórnað öllu af myndarbrag á Sæluhelgum frá byrjunWhistling.  Frábært framtak hjá þeim bræðrumWizard.

 

 

 

Sungið af innlifun! Síðast þegar við Kristrún Amelía fórum á "Sælu", árið 2006 tók hún þátt í söngvarakepninniWhistling.  Lenti þá í 2. sæti í sínum aldursflokki og var valin "Bjartasta vonin"Wizard.  Þá var hún 6 ára og fannst þetta ekkert málWink.  Nú er hún að verða 8 ára og orðin aðeins feimnari, þannig að það verður bara að koma í ljós hvort hún tekur þátt í árSmile.

 

 

Bjartasta vonin! Hér er Kristrún Amelía að taka við "Rabba bikarnum" árið 2006, sem er farandbikar en fjölskylda Rafns Jónssonar tónlistarmanns gaf hann til minningar um Rabba okkar og einhver úr fjölskyldunni afhendir hann á hverri SæluhelgiHeart

 

 

 

Aðalgatan

 Þetta er Aðalgatan mín með Göltinn minn í bakgrunniHeart

Rændi þessari líka frá Ásthildi (Takk, takk!).  Gölturinn skýlir vel þorpinu fyrir norðvestan áttinni, þannig að það verður blankalogn að venju þegar ég mæti á svæðiðWink.

En nú verð ég víst að fara að pakka einhverju í tösku, svo stóra systir þurfi ekki að bíða eftir mér í fyrramáliðCool.

 

Veit ekki hvenær ég verð næst í sambandi, þannig að ég sendi ykkur öllum  stórt  knúsHeart

SjáumstWhistling

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú mátt taka allar myndir sem þú vilt frá mér elskulega Sigrún mín.  Ætli þessar tvær Sóley Ebba og Kristrún Amelía keppi ekki í ár hvor við aðra  Vonandi hefur þú tíma fyrir kaffispjall, meðan þú dvelur vestra

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 21:04

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Ásthildur mín.  Sóley Ebba sigraði 2002, þegar Kristrún varð í 2. sæti.  Sóley Ebba er náttúrulega miklu meiri tónlistarmaður, spilar á hljóðfæri og alles.

Ég bara verð að kíkja til þín í Kærleikskúluna í kaffispjall

Sigrún Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 21:11

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

2006 meina ég

Sigrún Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 21:15

4 identicon

Jahá það er að koma að Sælu ;-) Ég á vona á því að leggja af stað á fimmtudaginn eftir vinnu, Anton kemur með mér auðvitað.

Hlakka til að hitta ykkur er við komum vestur
Góða ferð.

Kveðja úr sólinni á Skaga

Anna Bja (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 21:18

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góða ferð og góða skemmtun ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 7.7.2008 kl. 21:19

6 identicon

Sæl Sigrún mín! 

Fyndið, við vorum þarna á Sæluhelginni 2006, ofboðslega gaman í yndislegu veðri. Þá bjuggu Lárus bróðir hans pabba og Dóra konan  hans ennþá á Suðureyri, en þau eru flutt á höfuðborgarsvæðið núna.

Kannast þú við konu, hjúkrunarfræðing sem er að vinna með mér, sem heitir Sólveig Bára Guðnadóttir? Hún er frá Suðureyri. 

Hvíslaðu endilega kveðju frá mér til yndislegu fjallanna og fjarðanna!

Góða ferð og skemmtu þér vel

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 23:33

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ásdís ég skal segja ykkur það!!!  Ég verð í Lárusar og Dóru Kollu húsi, Valdimar frændi minn er búin að kaupa það.

Ég kannast ekki svona í fljótu bragði við Sólveigu Báru, hún hlýtur að vera eitthvað yngri en ég.

Ég skila kveðjunni og takk

P.s. hvernig stendur á því að við hittumst ekki 2006?

Sigrún Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 23:45

8 identicon

Eigðu góða ferð kæra móðir, bestu kveðjur til fólksins.

Ómar D. (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 00:06

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góða ferð....ég hef aldrei komið til Suðureyrar.

Hólmdís Hjartardóttir, 8.7.2008 kl. 00:49

10 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Þú ert þegar komin heim í ,,Sæluna" í huganum. Yndislegar myndir og skýringar með. Njóttu vel, vona að verðurguðirnir leiki við ykkur fyrir vestan. Bíð spennt eftir ferðasögunni eftir helgina. Góða ferð

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 8.7.2008 kl. 00:50

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góða ferð og skemmtun.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 01:22

12 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Jedúdamía hvad ég fæ mikid í magann tegar ég se tessar yndislegu myndir...Langar svo ,mig langar svo á sælu.Tad eru bara svo gódar  mynningar sem ég frá sudureyri og vonandi kem ég seinna á sælu.

Knús til Gudna og Ævars og bara allra sem ég tekkji.Elsku Anna Bj. knús til tín líka.

Veit tetta verdur bara geggjad fjör.

Sæluknús til tín

Gudrún Hauksdótttir, 8.7.2008 kl. 08:41

13 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Hey ég sko bíð eftir ykkur öllum

Halldóra Hannesdóttir, 8.7.2008 kl. 11:40

14 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Njóttu vel elskulega Sigrún mín

Ía Jóhannsdóttir, 8.7.2008 kl. 18:48

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góða ferð elsku Sigrún mín, skilaðu kveðju vestur frá mér og fylltu þig með orkunni frá fjöllunum yndislegu.
Hamingjan fylgi ykkur vestur og til baka heim.
Viltu knúsa hana Ásthildi frá mér.
Knús kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.7.2008 kl. 20:37

16 Smámynd: Ragnheiður

Góða ferð, það er alltaf fallegt á Suðureyri..þar bjó ég til skamms tíma með Hilmar lítill og Hjalta nýjan

Ragnheiður , 9.7.2008 kl. 22:08

17 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Ragnheiður, má ég spyrja hvað ár það var?

Halldóra Hannesdóttir, 9.7.2008 kl. 22:46

18 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Góða ferð og góða skemmtun.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 23:46

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Sunglasses Vona að þú og þið skemmtið ykkur rosalega vel. Fallegar myndir og götumyndin yndisleg og íslensk.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 15:45

20 Smámynd: Brynja skordal

Góða skemmtun hef 2 verið á sæluhelgi á suðureyri yndislegt það var þegar ég bjó fyrir vestan 

Brynja skordal, 11.7.2008 kl. 17:31

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigrún mín, ég vona að þú gefir þér tíma til að líta við.  Þetta var allof stutt þegar þú komst.  Knús á þig mín kæra. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2008 kl. 20:41

22 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Góða ferð og skemmtu þér vel fyrir vestan.

Magnús Paul Korntop, 11.7.2008 kl. 23:12

23 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já, þarna westur. - skilaðu kveðju ef þú hittir einhverja ættingja mína þarna. - held að eitthvað sé af þeim þarna ennþá.

Haraldur Bjarnason, 12.7.2008 kl. 08:42

24 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.7.2008 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband