Leita í fréttum mbl.is

Kjararáð finnur falin fjársjóð!

Ég held ég þurfi að taka það til athugunar hvort ég taki næturvaktir hér eftir.  Er ekki alveg að meika þetta.  Hef að mestu legið eins og slytti í sófanum eftir að ég vaknaði í dagW00t og er strax farin að kvíða kvíða því að þurfa að vakna fyrir morgunvakt í fyrramáliðGasp.

Ég veit að samkvæmt kjarasamningum má ég frábiðja mér þetta næturbrölt (er orðin svo aldinFootinMouth), en samkvæmt launaseðli væri það ekki skynsamlegtErrm.

Undanfarna mánuði hafa hinar ýmsu fagstéttir heilbrigðiskerfisins staðið í kjarabaráttu.  Með herkjum og yfirvofandi neyðarástandi á sjúkrastofnunum náðu hjúkrunarfræðingar 14% launahækkun umfram það sem aðrir höfðu samið um á undan þeim.  Skilst reyndar að hj.fr. hafi þurft að "selja" áður unnin réttindi í býttum fyrir þessa kökusneiðShocking.

Ljósmæður eru þessa stundina að greiða atkvæði um hvort þær fari í verkfallsaðgerðir og mjög margar þeirra hafa sagt störfum sínum lausum.  Ég styð þær fullkomlega í sínum launakröfum.

En það þurfa ekki allir að berjast með kjafti og klóm innan heilbrigðiskerfisins til að fá laun sín leiðrétt og það er ljúft að vita að sumir telja heilbrigðiskerfið í stakk búið að borga "mannsæmandi" laun.

Þann 1. september verður ráðinn nýr forstjóri Landspítala.  Ekki veit ég hvaða töframanneskja hlýtur hnossið en það er auðséð að "töfrar" hafa verið notaðir á kjararáð, sem samþykkir kr. 1.618.56 í mánaðarlaun eða 25% hækkun frá launum fyrri forstjóra, án þess farið hafi verið í "launakröfuaðgerðir" svo ég vitiWoundering.

Kamarinn á myndinni er í boði fjármála- og heilbrigðisráðherra:  Stjórnendur noti efri hæð og almennir starfsmenn þá neðriSick

wc_forrettingafolks.jpg

Ég mæli með því að kjararáð ákveði launakjör allra heilbrigðisstétta hér eftir Whistling.

 

 


mbl.is Laun forstjóra Landspítala hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Bölvaðir asnar, byrja á að hækka launin, þessum mönnum er ekki sjálfrátt, hvernig væri að þeir hugsuðu örlítið meira um starfsfólkið sem er í framlínu??  ég hef aldrei getað hugsað mér að vaka og vinna á næturnar, hef þó þurft að vaka nokkrum sinnum í gegnum tíðina og er alltaf lengi að ná mér. Kveðja á þig elskuleg.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 22:05

2 identicon

Æi, sammála þér, kæra vinkona og sam-sjúkraliði. Þetta er náttúrulega bara drullu-skítt, að við umönnunarstéttirnar skulum þurfa að berjast fyrir launum okkar, sem eru svo ekkert til að hrópa húrra fyrir. Við erum með líf og heilsu fólks í höndunum á okkur og slítum okkur út með því að vinna þessa vaktavinnu á öllum tímum, virka daga og hátíðisdaga! En ég vil nú samt segja það, að þessi vinna gefur mér rosalega mikið. Ég myndi alla vega ekki vilja starfa sem forstjóri Landspítalans, þó ég fengi greidd fyrir þessi ofurlaun!

Knús á þig, mín kæra

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 22:22

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2008 kl. 23:28

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég hef alltaf sagt að við ættum að láta kjararáð úrskurða launin okkar. Eitt sem er í nýjum kjarasamningi hjfr. er að þær geta ekki beðist undan nv. 55 ára!  Fer á nv annað kvöld....2 daga ónýtir fyrir það. Ég vil absolútt koma því inn í samninga vaktavinufólks..að minnka vinnuskyldu með hækkandi aldri.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.8.2008 kl. 23:58

5 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

 baráttukveðjur til þín mín kæra

Halldóra Hannesdóttir, 12.8.2008 kl. 01:05

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Goðan daginn Sigrún mín.  Kamarinn lýsir þessu ástandi vel hehehhe.

Ía Jóhannsdóttir, 12.8.2008 kl. 03:50

7 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Arg.......Sammála Íu kamarinn lýsir ástandinu vel.

Knús á tig og fardu vel med tig mín kæra

Gudrún Hauksdótttir, 12.8.2008 kl. 08:33

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kamarinn er góður Sigrún mín.  Vona að yfirmennirnir noti hann mikið, eða þangað til skíturinn fer að krauma undir þeim.  Oj barasta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 13:06

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Flottur pistill að vanda, hjartanlega sammála, hvað er þetta fjandans lið að hugsa, hvað ætla þeir að gera þegar allir labba bara út,
Það væri það eina rétta sem gert yrði, en nei þá fáum við sektarkennd yfir sjúklingunum, en hvað á að gera.
Knús kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.8.2008 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband