Leita í fréttum mbl.is

Utanþingsstjórn strax!

Ég efast ekki um að forsætisráðherra hafi verið um og ó eftir atganginn við stjórnarráðið í dag og að hann hafi talið sér vera ógnað, þegar talsverður mannfjöldi veittist að bíl hans aftan við Stjórnarráðið í dag.

Svona er Ísland í dag.  Íslenskum fjölskyldum er ógnað.  Lífsviðurværið hefur verið tekið af þúsundum manna vegna þess ástands sem skapast hefur í þjóðfélaginu. Bílar þessa fólks hafa ekki verið grýttir með eggjum og tómatsósu, þeir eru einfaldlega teknir af þeim vegna vanskila.  Íbúðir þessa fólks hafa ekki verið grýttar með eggjum og tómatsósu.  Ó nei.  Eignarhaldið er einfaldlega tekið af þeim .....en áfram skulu þeir samt borga.

Atvinnulausir Íslendingar eru ekki matvinnungar, hvað þá meira.  Ógnin, sem hangið hefur yfir þjóðinni undanfarna máuði er orðin að veruleika....er ekki lengur ógn, heldur staðreynd.

97% mótmælenda hefur undanfarna mánuði mótmælt með friðsamlegum hætti.  Mesta athygli hefur þó vakið þegar 1 - 3% hafa nýtt sér ástandið og skemmt dauða hluti.  Ég mæli ekki með skemmdarverkum, en hvað eru þessi skemmdarverk í samanburði við þau hryðjuverk, sem framin hafa verið á þjóðinni?

Stjórnmálamenn hafa misst tökin á ástandinu, ég vil gefa þeim öllum langt frí.  

Utanþingsstjórn strax!


mbl.is Geir taldi sér ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skörulega mælt hjá þér Sigrún mín!  Ef ekki utanþingstjórn þá kannski minnihlutastjórn með framsókn sem lím.  Nýr formaður framsóknar er að bjóðast til þess.  Hvur veit????

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 17:03

2 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Ég held í alvöru að Ísland þurfi umþóttunartíma, frían af þingmönnum og ráðherrum sem vinna ekki vinnuna sína.  Utanþingsstjórn er góð lausn sem gefur settum óbundnum ráðherrum völd til að rétta af þjóðarskútuna. Síðan t.d. að 2 árum liðnum getum við með nýju fólki kosið til Alþingis.  Nýtt fólk og ný stjórnmálaöfl.

Baldur Gautur Baldursson, 21.1.2009 kl. 17:08

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Forsætisráðherra er örugglega ekki ógnað launalega eins og þorra þjóðarinnar. Hann hefur allt sitt á þurru. Þótt laun hans hafi lækkað um 15% eru þau þó langt umfram það sem almennt gerist. Hann þarf ekki að hafa áhyggjur af vísitölutryggðum lánum. Það er ljóst. Burt með þenn gaur....Geir og allt þitt hyski...segið af ykkur!!!!!

Haraldur Bjarnason, 21.1.2009 kl. 17:14

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Utanþingsstjórn ekki seinna en strax. Vonandi tekur Ólafur Ragnar af skarið og losar okkur við þessa óvelkomnu menn sem hafa tekið yfir Ísland og sagt okkur öllum að éta bara það sem úti frýs.

Helga Magnúsdóttir, 21.1.2009 kl. 17:31

5 Smámynd: Aprílrós

innlitskvitt ;)

Aprílrós, 21.1.2009 kl. 20:29

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Segðu systir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 21:02

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sástu færsluna hjá Ólínu??

Ásdís Sigurðardóttir, 21.1.2009 kl. 21:09

8 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Sigrún mín. Þetta er  tapað spil hjá Geir og helv,, 'ihaldinu, sá hann í kastljósinu áðan, hann  heldur enn í fyrringinguna. En nú er komið að leiðarlokum hjá þessu hyski og þeir verða neyddir til að fara frá og taka með sér forsetan í leiðinni.  Hann er ekki eins saklaus eins og hann lætur í veðri vaka..Hefði verið eitthvað gagn af honum hefði hann getað sett þessa    ó..stjórn af fyrir löngu síðan..Gangi þér allt í hagin ljúfan.  kv Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 21.1.2009 kl. 21:51

9 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Heyr heyr!

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 22.1.2009 kl. 00:00

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit og innlegg

Þetta er mín staðfasta skoðun og hefur verið í nokkurn tíma.  Ég sé að Framsóknarmenn eru að færa sig aðeins upp skaftið og eru víst alveg til í að vera virkir í bráðabirgða stjórnarsamstarfi við Samfó og VG...... Það hefur ekkert breyst.  Völd eru völd og það er það eina sem pólitíkusar sjá.

Nýtt Ísland þarf nýja stjórnarskrá og núverandi stjórnarflokkar eru ekki að fara að breyta stjórnarskránni þannig að flokkarnir missi einhvern spón úr aski sínum, ó nei.

Sigrún Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 00:11

11 Smámynd:

Vel mælt. Hér verður ekki friður fyrr en þessi ríkisstjórn hefur sagt af sér. Og utanþingsstjórn er það sem við þurfum til að koma landinu á réttan kjöl aftur.

, 22.1.2009 kl. 00:53

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vel mælt, stjórnin riðar til falls.  Núna er það bara að halda áfram að mótmæla og klára dæmið.    Lifi byltingin

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.1.2009 kl. 01:07

13 identicon

Sæl Sigrún.

Nú skal tala en ekki mala

um allt og ekkert og gera svo ekkert.

Uppstokkun í sjónmáli,gott mál. !

Kveðja

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 05:30

14 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bestu kveðjur til ykkar allra.

Ía Jóhannsdóttir, 22.1.2009 kl. 08:23

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek heilshugar undir þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2009 kl. 09:00

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - ég get ekki neitað því að mér finnst mér ógnað!

....og þá er ég ekki að tala um á mótmælum ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband