Leita í fréttum mbl.is

Gargandi skríll???

Það virðist líka allt hafa verið á suðupunkti innan hússins, sem mótmælt er við í dag.

"Hann stendur hér og gargar, eins og hann sé að tala á útifundi", sagði Geir Hilmar Haarde, forsætisráðherra um Ögmund Jónasson, alþingismann úr ræðupúlti alþingis í dag.  Þetta er semsagt álit forsætisráðherra á útifundar mótmælendum.  "Gargandi skríll"!

Ég er stolt af þjóðinni minni sem mótmælir á og við Austurvöll í dag.  Ég er ekki jafn stolt af þingmönnum, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu sem halda áfram að viðhalda ríkjandi ástandi með því að sitja "umboðslausir".

Þingmenn eiga allir að segja af sér svo forseti geti beitt sér fyrir Utanþingsstjórn.


mbl.is Allt á suðupunkti við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Ég mætti með kúabjöllunni og hitti "hermenn" Björns Bjarnarsonar.
Styð þina tillögu:Þingmenn eiga allir að segja af sér svo forseti geti beitt sér fyrir Utanþingsstjórn.

Heidi Strand, 20.1.2009 kl. 16:54

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

sammála, nú er skríllinn kominn inn í Alþingi! Aumingja maðurinn, honum er ekki viðbjargandi.

Rut Sumarliðadóttir, 20.1.2009 kl. 16:59

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir þetta hjá ykkur, burtu með sorann og á með Utanþingsstjórn.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.1.2009 kl. 17:01

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tek undir svo hvín í fjöllunum








Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2009 kl. 17:05

5 identicon

Ég verð nú að segja fyrir mitt leyti að grímuklæddir mótmælendur tala ekki fyrir mína hönd.

Ásamt því að ég er mjög mótfallinn því að fólk sem að mætir á svona mótmæli grímuklædd og öskrar á og grýtir lögregluna tímunum saman sé að væla yfir óþarfri hörku lögreglunnar þegar þeir beita piparúða.

Frekar ætti fólk að vera fegið því að við búum á Íslandi þar sem löggan er ekki meira vopnuð en raunin er.

Svo langar mig líka til að fólk hugsi sinn gang, við erum að mótmæla skuldsetningu þjóðarinnar og endalausu rugli ríkisstjórnar sem fæstir vilja hafa við stjórnvöllinn, en með þessum ófrið og látum veit ég ekki betur en að mótmælendur hafi kostað ríkið líklega einhver hundruð þúsunda í dag. Að þurfa að hafa á annað hundrað lögreglumenn ásamt sjúkrabílum með tilheyrandi staffi kostar sitt. Svo skulum við ekki gleyma að reikna með inní þetta fatahreinsun á alla löggubúningana.

Hættið þessum skrýlslátum.

Áfram með friðsamleg mótmæli!!

Heimir (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 17:15

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hárrétt skríllinn er inni á alþingi

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 17:17

7 identicon

Algjörlega sammála þér, ég er stoltur af þeim sem láta í sér heyra. Burt með spillingarflokkinn, burt með Sjálfstæðisflokkinn sem bjó hér til frjálshyggjukerfi sem gekk af hagkerfinu dauðu og bjó til kvótakerfi sem hafði innbyggðan hvata í sér svo að útgerðarmenn veðsettu allt í topp. hugsa sér, þeir gátu veðsett eitt kíló af þorski á 4200 krónnur á sama tíma og þeir voru að fá 200 kall fyrir kílóið á markaði. Svona veðsettu menn hvern einasta fisk sem þjóðin á og það sem útgerðir landsins munu veiða á næstunni fer í að borga útlendingum veðið fyrir kvótanum. Jæa þ.að er ekki hægt annað en að segja ,,takk Sjálfstæðisflokkur" ég ætla aldrei að kjósa þig aftur.

Valsól (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 17:25

8 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Hverskonar stjórn haldið þið að Forsetinn myndi leitast við að mynda?

Við erum að tala um Ólafur Ragnar þennan sem hafnaði fjölmiðlalögunum er það ekki. þessi sami og veitt útrásarvíkingunum orður á sama tíma og eiginkona forsætisráðherra sagði sig frá setu í stjórn FL group vegna þess að hún taldi að þar væri ekki allt í lagi.

Guðmundur Jónsson, 20.1.2009 kl. 17:33

9 identicon

Bara svona segja þér Heimir, ég var þarna og lögreglan fór að nota piparúða áður en fólk fór að grýta. Það er af því að lögreglan gerði þetta sem fólkið fór að kasta eggjum. Þeir sprautuðu á fólk sem var að reyna að fara í burtu og tja, létu bara eins og vitleysingar. Misbeiting valdsins.

rúna (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 17:41

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 17:49

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Áfram mótmælendur. Þetta verður ekki látið líðast orðalaust.

Helga Magnúsdóttir, 20.1.2009 kl. 18:18

12 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Það setur að mér ónotatilfinningu við slík orð forsætisráðherra. Sá sem bendir með einum fingri, bendir með þremur fingrum að sér sjálfum.

Ég er ekki skríll. Ég er kominn af góðu vinnusömu og miklu prýðisfólki. Góðum Íslendingum sem barist í aldanna rás fyrir lífi og viðgangi hins ÍSLENSKA lands og þjóðar. Ég VÍTI Geir fyrir svona dóm um þjóðina mína!

Vei þér Geir!

UTANÞINGSSTJÓRN NÚ ÞEGAR!

Baldur Gautur Baldursson, 20.1.2009 kl. 19:15

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég var þarna í dag! Ég segi: Mér er nákvæmlega sama hvort fólk er með grímur eða hylur andlit sitt á annan hátt - bara ef það mætir!! Það verður að koma þessari stjórn frá völdum!

Það var einstök upplifun að vera þarna í dag! Algjörlega einstök upplifun að finna samheldnina meðal mótmælenda hvort sem þeir voru 15 ára með grímur eða fimmtugir grímulausir!!!!! 

Hrönn Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 20:36

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....eða öfugt!!

Hrönn Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 20:37

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk öll fyrir innlit og innlegg

Skoða betur á morgun....er að fara á næturvakt, góða nótt

Sigrún Jónsdóttir, 20.1.2009 kl. 22:58

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Algjörlega frábær stemming í dag.  Mér er líka nákvæmlega sama hvort fólk er grímulaust eða ekki.

Það er hins vegar grímulaus spillingin sem ég þoli ekki.

Lifi byltingin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.1.2009 kl. 00:37

17 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Lifi byltingin. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.1.2009 kl. 00:41

18 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Veit ad fólkid mitt var statt tarna og tók tátt í mótmælum.Ég tel fólkid mitt ekki skríl en duglegt og samviskusamt fólk.Hvad meinar forsætisrádherra ????Burt med hann og tetta hiski sem situr vid stjórn og hreyfir hvorki legg né lid.

burt med tau öll sömul.

Gudrún Hauksdótttir, 21.1.2009 kl. 08:01

19 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hvernig dettur fólki hér í hug að dæma alla mótmælendur sem skríl? Það er mjög miður að þessi mótmæli skulu alltaf fara út í slagsmál en það eru alltaf svartir sauðir í stórum hóp. 

Ía Jóhannsdóttir, 21.1.2009 kl. 08:28

20 Smámynd:

Ég vil bara þakka öllum sem mættu við Alþingishúsið til að mótmæla áframhaldandi setu þessarar spilltu ríkisstjórnar. Ég komst því miður ekki en var þarna í anda. Það er greinilegt að það er hafin bylting og þessa byltingu styð ég heils hugar.

, 21.1.2009 kl. 09:48

21 identicon

Hann stendur hér og gargar, eins og hann sé að tala á útifundi", sagði Geir Hilmar Haarde, forsætisráðherra um Ögmund Jónasson, alþingismann úr ræðupúlti alþingis í dag.  Þetta er semsagt álit forsætisráðherra á útifundar mótmælendum.  "Gargandi skríll"!

Þetta kalla ég ályktunarhæfileika dauðans.

GHH segir Ögmund garga eins og hann sé að tala á útifundi.

Ergo: GHH hefur það álit á mótmælendum að þeir séu gargandi skríll.

Nú ætla ég að slökkva á tölvunni og fara að hlægja. 

Grétar (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 19:53

22 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Grétar minn, Geir Hilmar hefur áður talað um að mótmælendur séu með skrílslæti.  Skrílslæti á útifundi + gargar eins og hann sé á útifundi = Gargandi skríll.

Ég ætla að bíða með minn hlátur, þar til Geir hefur farið frá völdum með allt sitt hafurtask

Sigrún Jónsdóttir, 21.1.2009 kl. 20:30

23 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ögmundur má vera stoltur af því að hafa verið líkt við "skríl" á útifundi.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 06:05

24 identicon

Heyrðu elskan,

þetta er rökvilla hjá þér.  Ef þú sérð það ekki þá er það af því að þú vilt ekki sjá það.

Það getur vel verið að ég hlægi líka þegar Geir fer frá. 

Grétar (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 18:12

25 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

"Elskan"???? Ertu að vestan? (nei....við segjum "eskan")

Það væri örugglega gaman að setjast á rökstóla (eða er það að rökstólum?) með þér Grétar "minn"

Sigrún Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 23:25

26 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Eskan? aldrei heyrt það meðan ég var fyrir vestan. Pabbi var að norðan og sagði alltaf góa mín.

Ég segi stundum gamla mín og gamli minn en það er vel meint.

Rut Sumarliðadóttir, 22.1.2009 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband