Leita í fréttum mbl.is

Ó, þjóð mín þjóð!

Skv. meðfylgjandi frétt, hangir snara um hálsinn á fyrirtækjum í landinu, sem blæðir smátt og smátt út.

Í fréttinni kemur einnig fram spá um að um 3.500 fyrirtæki stefni í þrot innan næstu 12 mánaða.  Hvað ætli starfsmenn þessara fyrirtækja séu margir?  Hvað ætli margir þeirra munu innan nokkurra mánaða vera komnir á atvinnuleysisbætur, sem eru að hámarki kr. 150.000.-pr. mán.  Atvinnubætur eru að sjálfsögðu ekki skattfrjálsar.

Já, já, lifum með þessu, því það er ekkert við þessu að geraCrying.....eða hvað?

Þeir sem ekki hafa nú þegar gert bloggsíðu Láru Hönnu Einarsdóttur að skyldulesningu eru hvattir til að lesa þessa færslu hennar.

"Þjóðin" mætir vonandi á Austurvöll í dag kl. 15:00

Ávörp flytja:

Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur 
Lárus Páll Birgisson, sjúkraliði 

 

Fundarstjóri er Hörður Torfason.

 


mbl.is Fyrirtæki hanga í snöru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki langt eftir - hér verður allt komið í þrot um mitt næsta ár.

Lika nýju bankarnir, fyrirtækin, fjölskyldurnar og ríkisstjóður.

ÞA (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 10:53

2 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Blessuð Sigrún mín. Gott nýtt ár. Segi bara gangi ykkur vel þarna heima. Er með þér í huga og hjarta.    Baráttukveðjur til þín, mín kæra.             Kv Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 10.1.2009 kl. 11:02

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Las og ætla að mæta! Vantar bara mótmælaspjald sem á stæði: MUNDU MIG - ÉG MAN ÞIG!

Hrönn Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 11:04

4 identicon

Það er aðeins gullgröftur, demants- og olíuvinnsla sem geta staðið undir svona háum vöxtum.

 

Fólk ættu að fara kynna sér gömlu kreppulögin um kreppulánasjóð, sem sett voru þegar bændur voru að missa jarðir sínar hér á kreppuárunum. Þau geta átt við núna um fólk og fyrirtæki.

 

Það eru alltaf  færar leiðir ef hugsunin er nógu skýr. Það þýðir ekkert að súta það þó að það verði að afskrifa fjármagn ef það er gert á skipulagðan hátt og með jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að leiðarljósi.

 

Atvinnufyrirtækin og framleiðslan verða að ganga svo við höfum eitthvað að selja.

Þorsteinn H. Gunnarsson (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 11:19

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sjáumst á Austurvelli

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.1.2009 kl. 11:35

6 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Hæhæ eg er ansi hrædd um land og þjóð fyrir þetta áriðÞeir fróðustu menn íslands eru allir sammála að þetta ár verði okkur íslendingum erfitt.Ætla að reyna að komast á austurvöll.vona að það fari allt friðsamlega fram,þar sem börnin mín verða með í för

Sædís Hafsteinsdóttir, 10.1.2009 kl. 12:04

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyr, heyr.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.1.2009 kl. 13:20

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk öll fyrir innlit og innlegg

ÞA, ég held því miður að spá þín sé rétt.  

Þorsteinn H. þetta er allt satt og rétt hjá þér, en þessu verður ekki breytt með núverandi valdhafa við stjórnvölinn.

Gott að heyra að þú ætlar að drífa þig Hrönn, því ég kemst því miður ekki í dag, einhver flensupest tók aftur völdin hjá mér í nótt

Sigrún Jónsdóttir, 10.1.2009 kl. 13:47

9 identicon

þú bregst ekki frábæra kona

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 16:49

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hrollvekjandi tilhugsun

Hólmdís Hjartardóttir, 10.1.2009 kl. 17:25

11 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það er um 55.000 skráð fyrirtæki á Íslandi, þannig að það er hægt að reikna með að það vinni 3 - 4 í hverju fyrirtæki að meðaltali.

Axel Þór Kolbeinsson, 10.1.2009 kl. 20:07

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er svo óheppin, ég hitti enga bloggvini á mótmælunum í gær.  Ég mætti með tvær dætur mínar með mér.    Fundurinn var mjög góður. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.1.2009 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband