Leita í fréttum mbl.is

Vér jarðbundnir! Burt með spillingarliðið!

Mér finnst þetta merkileg frétt á vef Mbl.is.  Breskur veðmangari vill höfða til "áhættufíkla" um afstöðu þeirra til þess hvort Guð sé tilW00t.  Kannski er hér komin gróðaleið fyrir Íslenska áhættufíklaTounge.

Sr. Jóhannes Pálmason 1946Ég fékk ósköp venjulegt "kristilegt" uppeldi eins og það gerðist víðast hvar á Íslandi eftir miðja síðustu öld.  Ég var líka að eigin mati mjög heppin með sóknarprest, sem að mati okkar litla samfélags var eldrauður kommanistiWink.

Hann hélt því blá kalt fram að Guð væri til....en að hann væri ekki hvíthærður kall, sem lifði skýjum ofar, heldur væri hann  hluti af okkur sjálfum, í samvisku okkar og gjörðum.  Ég trúði honum og geri ennHeart.

Sr. Jóhannes Pálmason, var frábær, jarðbundinn og gamansamur maður.  Hann tók virkan þátt í öllu samfélagsstarfi og Súgfirðingar munu ávalt þakka fyrir hans innlegg í þorpsmyndina.

Hann súmmeraði þorpslífið og heimsmyndina upp í gamanvísum, sem sungnar voru á menningarhátíðum þorpsbúa, hvort sem það voru Þorra- eða Góufagnaðir, barnaskemmtanir eða bara stórafmæli einstakra þorpsbúa.

jesus_of_nazareth.jpgÍ Sunnudagaskólanum var alltaf þéttsetin kirkjan okkar, því hann hafði það fyrir sið að lesa fyrir okkur spennandi framhaldsögur, sem hann þýddi úr erlendum tungumálum á staðnum, svo við gátum ekki leitað uppi bókina á milli sunnudagaGrin.  Við fengum reyndar Jesú myndir eins og "lög" gerðu ráð fyrir.....en það var bara bónusWhistling.

Messurnar á aðfangadagskvöld eru líka minnisstæðar, því maður fór heim með hugann við hungraðan heim.....og ég hugsa ennþá til barnanna í Konsó, þegar ég sest að veisluborðinu þetta kvöldFrown.

Þegar Sr. Jóhannes flutti frá Súgandafirði til Borgarfjarðar og varð sóknarprestur í Reykholti, varð mikill söknuður hjá þorpsbúum og leit hófst að nýjum presti.  

Nokkrir sóttu um brauðið, en var hafnaðW00t.....enginn umsækjanda þótti fylla skarð Sr. Jóhannesar.  Þá rak á fjörur þorpsbúa prestlærð kona og var hún ráðin án mikilla málalengingaHeart.

au_ur_eir_720995.jpgSr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrsta konan sem fékk prestvígslu á Íslandi, var boðin velkomin til Súgandafjarðar.  Þar fékk fyrsta konan sitt fyrsta "brauð".  Þarna tel ég að Súgfirðingar hafi sýnt í raun hvað þeir höfðu meðtekið af boðskap "kommúnistans" og prestsins Sr. Jóhannesar Pálmasonar:  Fyrir Guði eru allir jafnir og kyn skiptir þar engu máli.  Samviska okkar og siðferði er okkar GuðdómurHeart.

 

 

 

 

Ég myndi aldrei taka þátt í veðmáli þessarar bresku veðmálastofu......þótt ég telji mig vita fullvel að Guð er til.......hann er samviska okkar og siðferði.  Eða eins og Sigga amma mín orðaði svo vel:  Guð er kærleikurinn, sem er sterkasta aflið í heiminumInLove.

 

 

 


mbl.is Auknar líkur á tilvist Guðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Séra Jón M. Guðjónsson á Akranesi skýrði mig, fermdi og uppfræddi. Hann var skemmtilegur og fræðandi karl en ég man alltaf eftir hneykslun á mínu æskuheimili þegar Auður Eir varð prestur á Súgandafirði, fæðingarstað móðurfölskyldu minnar. Ekki vegna þess að hún var kona, heldur út af einhverju unglingaheimli fyrir stúlkur sem hún stjórnaði á Seltjarnarnesi. Það er enn í rannsókn eins og Breiðavík. - Fyrirgefðu Sigrún.

Haraldur Bjarnason, 6.11.2008 kl. 23:57

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Haraldur,þetta með unglingaheimilið var kjósendum sóknarinnar vel ljóst....en þeir leifðu frúnni að njóta vafans.  Sennilega innræting frá Sr. Jóhannesi, enda var hún aldrei sakfelld.  Mín kynni af Sr. Auði voru góð og dætur hennar eru sagðir góðir prestar.

Á þessum tíma þurftu Súgfirðingar prest, sem ekki var hægt að bera saman við þann sem þeir misstu.....og Auður var öðruvísi, en góð á allt annan hátt.  Hún hefur reynst okkur Súgfirðingum góður vinur.

Sigrún Jónsdóttir, 7.11.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hin trúlausa ég  á engan guð.  En presturinn á Húsavík var fjölskylduvinur og minnist ég hans af hlýhug.  En skírð var ég á Grenjaðarstað. Dæturnar skírðar í kapellu Landspítala af skólabróður mínum Akurnesingnum sjúkrahúsprestinum Braga. Föðurfjölskyldan hefði ekki lifað af ef börnin hefðu ekki verið skírð

Hólmdís Hjartardóttir, 7.11.2008 kl. 00:50

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hólmdís, var það Bragi Skúla. sem skírði dætur þínar? - Hann var nú bara pjakkur á Skaganum þegar ég var að alast upp þar. Enda eruð þið svo ung.

Haraldur Bjarnason, 7.11.2008 kl. 00:57

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Halli...Bragi Skúla er eldri en ég!!!!!!!!!  Svo munar heilu ári held ég. Góður drengur sem átti ekkert of gott í uppvextinum.   Yngri dóttir mín var fædd 18 merkur eins og Bragi....sem var þó minnstur af sínum 5 systkinum.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.11.2008 kl. 01:11

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Séra Audur Eir Var títt inn á heimili mínu á Sudureyri vegna vinskapar vid módur mína.

Audur er yndisleg manneskja og dætur hennar líka.Audur ser oftar en ekki um giftingar ,skírnir og annad í minni fjölskyldu og kunnum vid vel ad meta hana.Mikid hef ég heyrt talad um séra Pálama en var aldrey svo heppin ad hitta tann mæta mann.Mér er tad mjög ljóst ad hann átti mjög sterkan tátt í lífi súgfirdinga.Meyra en bara ad tjóna teim  vid kirjkunnar störf.Tad hefur kannski ekki verid beint audvelt fyrir Séra Audi Eir ad taka vid ad svo mikklum manni...En hún tjónadi Súgfirdingum vel.

Gudrún Hauksdótttir, 7.11.2008 kl. 06:41

7 Smámynd:

Það er merkilegt hvað kristniuppeldið situr í manni  Ég flutti svo oft milli staða að ég tengdist í raun engum presti fyrr en hann séra/herra Ólafur Skúlason fermdi mig. Hann reyndist mér og minni fjölskyldu ákaflega vel og hún amma mín hafði á honum mikið álit. Eftir að hann hætti prestskap hef ég lítið sótt kirkju en lenti svo í hremmingum fyrir 4 árum og þá var hann Bragi Skúlason mín stoð og stytta. Hann er líka svo yndislega prestslegur í útliti . Kannski er þetta hræsni en mér finnst nú alltaf gott að hugsa að ég sé undir Guðlegri forsjá. A.m.k. þegar á móti blæs 

, 7.11.2008 kl. 11:40

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Falleg færsla. Svo eru það vestfirsku genin kona, vestfirsku genin.

Rut Sumarliðadóttir, 7.11.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband