Leita í fréttum mbl.is

Ég er svartsýn

því get ég ekki neitað.  Mér finnst ástandið hörmulegt í þjóðfélaginu og ég finn til með öllu því fólk sem nú þegar hefur misst atvinnuna og á eftir að missa vinnuna.

Sjálfsagt getum við flest verið sammála um að þenslan í byggingaframkvæmdum hér á höfuðborgarsvæðinu hafi verið úr hófi fram.  Hér var ætt áfram í gengdarlausum fjárfestingum án þess að innistæða eða raunveruleg þörf væri fyrir þeim.  Þetta var allt afleiðing af gervi fjármagninu sem bankarnir buðu upp á...sennilega með veði í hlutabréfum, sem bankastjórnendur létu prenta með reglulegu millibiliShocking.

sparibaukakast.jpg

Mér finnst langlundargeð landans alveg með ólíkindum.  Hér ríkir stjórnleysi og upplausn.  Upp koma spillingarmál nær daglega....en við bara bíðum eftir að eitthvað verði gert.  

Þetta gengur ekki lengur.  Nú verða allir sem geta því við komið að mæta á Austurvöll næsta laugardag kl. 15:00 og sýna samstöðu í mótmælum.

 

Burt með spillingarliðið, sama hvar í flokki þeir standa! 

 Rolling Stones túlka hugsanir mínar þessa dagana:  Paint it black


mbl.is Um 70% samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég er að drepast í hálsinum, .... svartsýn á að það lagist, þrátt fyrir pilluát  ... en samt líklegra að það lagist frekar en efnahagsástandið!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.11.2008 kl. 00:27

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jóhanna mín, þú hefur alla mína samúð

Sigrún Jónsdóttir, 6.11.2008 kl. 00:49

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já ég kem um leið og ég verð í bænum. Við verðurm að breyta þessu bulli. Fer kannski norður á Sigló um helgina og Akureyri þá næstu! Knús.

Vilborg Traustadóttir, 6.11.2008 kl. 00:53

4 identicon

Loforð ég mæti, með hnefann á lofti. Sjáumst kl: 14.59

kristján (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 01:09

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Burt með spillingarliðið

Hólmdís Hjartardóttir, 6.11.2008 kl. 01:53

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Madur er svo dofinn vegna ástandsins...Finnst tú svo mikil hörku kona Sigrún mín madur fær svona fiber kraft setur hnefann á loft  og segir yes yes ..Tegar madur les bloggid titt.

Er nefnilega á rólegu nótunum  tessa daganna

Stórt fadmlag til tín

Gudrún Hauksdótttir, 6.11.2008 kl. 07:37

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er komið gott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.11.2008 kl. 10:13

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ástandið er alltaf að verða verra og verra meir að segja ég er farin að arga mig hása hér stundum. 

BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ!

Ía Jóhannsdóttir, 6.11.2008 kl. 14:41

9 Smámynd: Marta smarta

Ég er bara dofin gagnvart þessu öllu saman.  Hvað verður á borðinu á morgun þegar við "venjulega fólkið" vöknum ?  Held því miður að við séum bara rétt að byrja erfiðleikana.  Reynum að vera góð við hvort annað og byrja á að hlúa að eigin ungum ( skrifar ljónamamman ) og svo halda áfram, við eigum sjálfsagt öll nóg af umframfötum, og ýmsu öðru dótaríi sem aðrir gætu nýtt sér.  Vona að mín laun minnki ekki, það eru semsagt örorkubæturnar.  En ég á nóg af öllu öðru en peningum, hvert fer maður með svona hluti ? Föt og ýmiskonar auka-raftæki, potta og pönnur, ég er algjör græningi með þetta allt saman.

Hjálpumst að að hjálpa öðrum.  Knús knús.

Marta smarta, 6.11.2008 kl. 18:46

10 Smámynd:

Íslenskir pólitíkusar virðast upp til hópa siðblindir. Hvar annarsstaðar í hinum vestræna heimi komast þingmenn og ráðherrar upp með að sitja bara áfram og áfram þegar upp hefur komist um spillingamál í þeirra ranni - og ekki bara smávegis eða einu sinni -? Menn hafa sagt af sér fyrir minni sakir víða í Evrópu. En nei okkar menn sitja eins og klessur og þikjast ekki heyra í okkur almúgaræflunum. Við getum bara étið það sem úti frýs svo lengi sem við höldum okkur að vinnu og borgum skatta sem þeir geta ausið í óhófið og vitleysuna. Hvílíkt bananalíðveldi.

Burt með spillingarliðið, sama hvar í flokki þeir standa! 

, 6.11.2008 kl. 21:32

11 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Einfalt: Burt með spillingarliðið

Haraldur Bjarnason, 6.11.2008 kl. 21:45

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Starfsmönnum Kaupþings var hlíft við skuldunum á fundi 25. september. Hann hrundi í byrjun október. Hvað vissu þeir sem almenningur vissi ekki og tók þar af leiðandi skellinn? 

Helga Magnúsdóttir, 6.11.2008 kl. 22:22

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég þakka innlit og innlegg....þið eruð frábær

Sigrún Jónsdóttir, 6.11.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband