Leita í fréttum mbl.is

Trúverðugleiki er það sem við þurfum.

Ég held að Steingrímur J. sé að "lesa" þjóðina sína rétt.  Ríkisstjórnin nýtur ekki trausts og hefur almenning ekki með sér.

Svo er haft eftir honum:

".........lagði Steingrímur áherslu á að ný ríkisstjórn og ný andlit verði að leiða uppbyggingarstarfsemina. Þjóðin treysti ekki þeim sem komu henni á kaldan klaka til að gera það".

Ég er honum hjartanlega sammála, en ég er ekki viss um að hann skynji að það sem mörg okkar vilja er að allur núverandi þingheimur stigi til hliðar og að skipuð verði utanþingsstjórn.

Kannski vantrauststillagan sé fyrsta skrefið í þá átt.....en ég er ekki viss Woundering

Ég hef sagt það áður og segi það enn:

Ég lýsi vantrausti á allan þingheim og vil utanþingstjórn sem fyrst, öðruvísi getum við ekki byggt upp réttlátt þjóðfélag með breyttum formerkjum.

Það fólk sem nú situr á alþingi, var kosið þangað í allt öðru umhverfi en við erum að upplifa núna.  Þau þurfa flest að kúvenda sínum fyrri skoðunum og kokgleypa margt af því sem þau hafa áður sagt.  Það verður aldrei trúverðugt.

Ég vil samt kosningar.......þegar utanþingstjórnin hefur "tekið til"Wink


mbl.is Hefur almenning ekki með sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmæli og piparkökumálun.

pabbi_og_mar_daniel_-2000.jpgPabbi minn Jón Valdemarsson fæddist í Súgandafirði 23. nóvember 1915.  Hann var fjórði í röðinni af börnum föður síns Valdemars Örnólfssonar,  en elstur af 5 börnum ömmu minnar Guðrúnar Sveinbjörsdóttur og Valdemars afa.

7 ára gamall fór hann í nokkurs konar fóstur að Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundarfirði og var þar fyrst í 7 ár, en fór síðan aftur þangað sem vinnumaður, þegar hann var orðin eldri.  Súgandafjörðurinn var samt alltaf hans heimabyggð og þar átti hann alltaf sitt heimili og stundaði sín störf.  Fyrst sem verkamaður en síðar sem verslunar og skrifstofumaður.

Pabbi var hrjúfur maður á yfirborðinu en í raun var hann ljúfmenni, sem ekkert aumt mátti sjá.  Ég er yngst of okkur systkinunum 5 og fékk oft að heyra að ég væri dekurbarn og að allt væri látið eftir mér.  Þetta er alls ekki rétt, því fékk sko ekkert alltErrm......kannski flest, en alls ekki alltCool.  

Ég man t.d. eftir Philips segulbandstækinu....þið munið þetta í töskunni, sem hægt var að ganga með um allt og maður gat endurspilað Lög unga fólksins hvar sem maður var staddur, í tjaldútilegum eða bara á spássitúrum um eyrina.  Mig langaði í svoleiðisJoyful...Ásta vinkona átti eitt, fékk það örugglega í afmælisgjöf í September eitt árið, en ég talaði fyrir daufum eyrumUndecided.  Ég á afmæli í Desember og þrátt fyrir neitun, lét ég mig dreymaHalo

Ekki kom tækið á afmælinu en í jólapakkanum þetta árið var stórt og flott 6 rása tekk segulbandstæki.....ekki alveg það sem mig dreymdi um, en ég komst náttúrulega að því seinna að bræður mína, sem þá voru í hljómsveitar- og músik pælingum bráðvantaði alvöru "upptökutæki" og töluðu því pabba inn á þessa gjöf fyrir mig.......  Eftir að ég var komin með bílpróf notuðu þeir sér þessa eftirlátsemi pabba við mig;  Ertu ekki til í að lána Sigrúnu bílinn til að skutla okkur á ball?

Ég er löngu búin að viðurkenna fyrir sjálfri mér að ég var "dekurbarn".....en ég hefði nú ekki haft gott af því að vita það þáWink.  Á myndinni hér að ofan er hann með yngri syni mínum Ómari Daníel um jólin árið 2000, fyrstu jólin eftir að mamma mín Guðjóna Albertsdóttir lést.

Pabbi minn hefði orðið 93 ára í dag, ef hann væri á lífi.  Hann lést þann 4. júlí 2002.  Ég var blessuð með hann sem föðurHeart.

kristrun_og_robert_mala_piparkokur_735649.jpgÍ dag fór ég með barnabörnunum mínum Kristrúnu Amelíu og Róberti Skúla í langþráð piparkökumálunar boð hjá Vilmundi vini mínum og mömmu hans, Önnu.  Langþráð segi ég, því það eru komnir nokkrir mánuðir síðan okkur var boðið.  Boðið stóð undir væntingum, margt um manninn og mikið fjör.  Skv. talningu Kristrúnar Amelíu voru "listamennirnir" 12 talsins og svo ábyggilega 12 fullorðnir, sem gerðu nú lítið annað en tala samanWhistling

piparkokumalun_735657.jpgÉg er komin með svona hálfgerða "aukaaðild" að þessari frábæru fjölskyldu og barnabörnunum mínum finnst það nú ekki leiðinlegt.....því þau skemmtu sér konunglegaHeart 

Hér kemur svo ein yfirlitsmynd yfir "listamanna" borðið og áhuginn leynir sér ekki, enda var afraksturinn á við flotta myndlistarsýninguWizard

Anna og fjölskylda, takk fyrir frábæran dagHeart

 

 


0,0% stuðningur v/Austurvöll.

Ef hringt hefði verið í alla símana, sem voru í veskjum eða vösum mótmælenda á Austurvelli í gær, hefði stuðningur við ríkisstjórn verið 0,0%.  Á Austurvelli voru þúsundir manna.....veit ekki hversu margar þúsundir en alla vega mun fleiri en þau 6 - 8 þúsund, sem voru þar um síðustu helgi.

Nú er hætt að birta "opinberar" tölur, það þykir ekki henta yfirvöldum.

Fréttablaðið hringdi í 800 manns og af þeim sem svöruðu sögðust 31,6% styðja ríkisstjórnina....mér finnst það frekar lélegt, svona miðað við það að það var bara hringt í fólk, sem ekki sá ástæðu til að vera úti að mótmæla....ok, það eiga ekki allir heimangengt á mótmæli, t.d. vegna fjarlægðarWink.

Auðvitað sáu fjölmiðlar meiri ástæðu til að sýna frá róstusömum mótmælum við lögreglustöðina við Hlemm, þar sem nokkur hundruð manns söfnuðust saman, en mörg þúsund manna mótmælin fengu þó sinn skerf, sem er skref í rétta átt.

Meðfylgjandi myndum "nappaði" ég af síðu Láru Hönnu bloggvinkonu:

sigrun_og_holmdis_a_motmaelafundi_734790.jpgholmdis.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Í kvöld mun ég síðan hafa smá fjölskyldufærslu, þar sem 23. nóvember var afmælisdagur pabba míns.  Er annars að fara með barnabörn í piparköku - málunar partý og er því ekki til setunnar boðiðWizard


mbl.is 31,6% stuðningur við stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli við Austurvöll kl. 15:00 í dag!

Alveg er það merkilegt þetta "fréttamat" blaðamanna!  Ég hélt að ungir jafnaðarmenn ætluðu að vera á flokkstjórnarfundi Ingibjargar Sólrúnar í dag og leggja áherslu á lýðræðið!

Stærsti blaðamannafundur lýðveldisins, sem haldinn hefur verið til þessa verður á Austurvelli í dag og ég hef verið að bíða eftir fréttatilkynningu þess efnisWoundering.

Fann þessa tilkynningu inn hjá Herði Torfa:

Mótmæli á Austurvelli klukkan 15.00, laugardaginn 22. nóvember 2008

20. nóv 2008 kl. 16:10 | Hörður Torfason

Frá 11. október hefur hópur fólks, sem kallar sig Raddir Fólksins, staðið fyrir mótmælafundum á Austurvelli vegna þess ástands sem skapast hefur í þjóðfélaginu. Yfirskrift fundanna hefur verið "Breiðfylking gegn ástandinu ". Hópurinn, sem hefur einnig það markmið að sameina þjóðina og skapa með henni samstöðu og samkennd, hefur fengi til liðs við sig ræðumenn sem víðast að og hvatt alla til að mæta á fundina.
Á undan fundinum á laugardag munu Lúðrasveit Íslands leika ættjarðarlög og Hjalti Rögnvaldsson, leikari, lesa baráttuljóð.

Ræðumenn:
Sindri Viðarsson, sagnfræðinemi
Katrín Oddsdóttir, laganemi
Gerður Pálma, atvinnurekandi frá Hollandi

Fundarstjóri Hörður Torfason

RADDIR FÓLKSINS
Styrktarlína hjá BYR 1132-05-41500

Mbl.is verður vonandi á staðnumSmile

Sjáumst!Whistling

 


mbl.is Boðið að kasta krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fastir liðir eins og venjulega....

geir_og_solla.jpgÉg setti mig í stellingar til að hlusta á fasta liði eins og venjulega. Blaðamannafundir stjórnarforystunnar eru orðnir fyrirsjáanlegir bæði hvað tímasetningu varðar og eins er umræðuefninu ætlað að slá á þessa hvimleiðu ólgu sem brýst fram í "skrílnum á laugardögum.  Ég lagðist semsagt í sófann, beið átekta en var steinsofnuð áður en Geir sagði "velkomin".....eða er það ekki þannig sem hann byrjar þessa fundiFootinMouth.

Eftir að hafa skannað netmiðlana sé ég að "dúsan" er ekki alveg að gera sig og "skríllinn" mun fjölmenna sem aldrei fyrr á Austurvöll á morgun og mótmæla ríkjandi stjórn og heimta nýtt stjórnarfar.  Geir fer fram á launalækkun frá kjararáðiWhistling, þessu sama kjararáði og hækkaði launin hans fyrir örfáum vikum síðan.....kannski sú launahækkun hafi verið ákveðin með tilliti til óska forsætisráðherra um launalækkunWoundering.

Eftirlaunaósóminn kominn á dagskrá.  Gott mál.  En of seint, og of litlu á að breyta.  Þegar utanþingsstjórnin mín kemst á koppinn innan örfárra vikna mun hún afskrifa eftirlaunaósóman með öllu og þingmenn og aðrir forréttindahópar hjá ríkinu munu þurfa að sætta sig við sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn......og hana nú.

bjorg_og_darri_733775.jpgBróðurdóttir mín Björg Sveinbjörnsdóttir er búsett á Spáni í vetur, þar sem hún stundar nám.  Með henni í för er sonur hennar Darri Kristjánsson.  Ef Björg væri hér heima, myndi hún örugglega mæta með mér á Austurvöll, hún fékk nefnilega "skrílsgenin" bæði úr móður og föðurættWink.  En þar sem hún er fjarri "vígstöðvunum" sendir hún okkur baráttukveðjur:

http://www.reverbnation.com/tunepak/907841   

Mætum á Austurvöll á morgun, laugardaginn 22. nóvember kl. 15:00.....Mótmælafundur....fastir liðir eins og venjulega....vér mótmælum allir!  SjáumstWhistling 


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dream on!

Vantrauststillagan frá stjórnarandstöðunni er góð svo langt sem hún nær.  Ég á síður von á því að hún verði samþykkt....en það kemur væntanlega í ljós....ef þingheimur fær hana til afgreiðsluErrm.

Ég lýsi vantrausti á allan þingheim og vil utanþingstjórn sem fyrst, öðruvísi getum við ekki byggt upp réttlátt þjóðfélag með breyttum formerkjum.  

Fram hafa komið ýmsar góðar tillögur frá "skrílnum" í bloggheimum um hvernig þannig stjórn geti litið út og get ég tekið undir margar af þeim tillögum, hjá rannveigh  er t.d. ágætis umræða og tillögur um hvernig svona stjórn gæti litið útSmile.

Utanþingstjórn þarf að starfa það lengi að stjórnmálaflokkarnir fái tíma til að íhuga sín mál, taka til hjá sér og átta sig á því að þjóðin vill alvöru lýðræði og heiðarlegt fólk.  Froðusnakk og óheilindi eiga ekki lengur upp á pallborðið hjá almenningi í landinuAngry.

Dagdraumar eiga það til að rætast.....ef við einbeitum okkur að því að láta þá verða að veruleikaWhistling

The Monkees létu sig líka dreyma:


mbl.is Vantrauststillaga komin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er stundum sagt að vika...

....sé langur tími í pólitík!

Geir Haarde, hafði þetta að segja þann 24. september 2008:Wink

.....svo hrundu þessir bankar, sem að áliti Geirs voru "in prittý gúd sheip" innan 2ja vikna frá þessum töluðu orðumW00t

Þessi pólitíska vika er orðin að 10 vikumShocking.

Hefur einhver heyrt talað um "þrumu úr heiðskýru lofti"?

Og hvenær var það aftur, sem Ingibjörg Sólrún lofaði að afnema "eftirlaunaósómann"?


Að lesa hug þjóðarinnar......

hefur ekki verið forgangsatriði framsóknarmanna.  Það höfum við séð svo oft í gegnum tíðina.  Að vera "hækja" sjálfstæðismanna virðist vera draumur sumra þeirra enn þann dag í dagW00t

„Við sitjum hér og horfum upp á ríkisstjórnarflokkana berja hvorn annan í beinni útsendingu, í alvarlegu máli,“ sagði Siv. Sagðist hún vorkenna forsætisráðherra, sem reyndi að standa vaktina, og bætti við að hún hefði ekki lyst á að taka aftur til máls um þetta hneyksli".

Já, já, "greyið Geir"Shocking

En ég tek undir með Helga Hjörvar:

"Það hlýtur að vera forsenda fyrir því að veita Seðlabankanum fé að ekki sé sama stjórn yfir honum og keyrði hann í þrot. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á Alþingi í dag í umræðum um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og áréttaði að meirihluti væri fyrir því á Alþingi að koma á faglegri yfirstjórn bankans".

En Helgi, er þá ekki tilvalið að láta þingið kjósa um þetta?

P.s.  Svo væri náttúrulega tilvalið að kjósa eftirlaunaósóman út af borðinu...og koma svoWhistling 

 


mbl.is Nýja Seðlabankastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki að breyta fleiri lögum?

Nú eru stjórnarliðar í kapphlaupi við tímann.  Mér finnst þetta eiginlega grátlega fyndið.  Davíð talaði í 1 klst. í gær......og það er tekið mark á hans orðumWhistling

"En sjá menn þá í þessari sameiningu tækifæri til að endurnýja yfirstjórnina þar? „Það hefur ekki beinlínis verið rætt á þeim nótum," segir Ágúst. „En auðvitað er vitað mál að núverandi bankastjóri nýtur ekki trausts." Hins vegar sé markmið sameiningar stofnananna fyrst og fremst að styrkja stjórnkerfið og eftirlitsþáttinn. „Þetta er ekki gert í neinum annarlegum tilgangi."

Lagabreytingu þarf til að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið en Ágúst segir að slík lagasmíð og –samþykkt ætti að geta gengið greitt fyrir sig. Hins vegar sé ekki búið að taka ákvörðun þar um. „En ég á von á því að menn taki þessa ákvörðun hratt og fljótt."

Þjóðin er búin að öskra sig hása í 7 vikur en það er auðvitað ekki hlustað á svoleiðis skrílAngry.

Lagabreytingu þarf til að breyta eftirlauna ósómanum, það gerist hægt og hljótt....ef það geristUndecided.

Burt með allt spillingarliðið, strax!

 


mbl.is Ákvörðun tekin fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á þetta að þýða?

Leyfum Sveinu Múladóttur, frá "Svalbarða" að hafa orðiðWhistling .

Annars er Davíð komin í bullandi vörn....það er góðs vitiJoyful.


mbl.is Fréttaskýring: Vígreif varnarræða seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband