23.4.2009 | 11:40
Gleðilegt sumar :)
Sumarið er víst komið samkvæmt almanakinu og maður verður bara að trúa því. Ekki annað í boði, er það nokkuð?
Skoðaði sumarkveðjur nokkurra bloggvina minna í morgun og fann t.d. þetta frá mínum góða vini Róbert Schmidt á sudureyri 10 cm jafnfallinn snjór yfir mínum gömlu æskuslóðum sem minnir mig á af hverju ég fékk nóg af þessari hvítu ofankomu á mínum uppvaxtarárum Sé samt að Röggi æskuvinur minn rognvaldurthor er ágætlega ánægður með þessa hvítu slæðu þótt ég telji víst að hann sé farið að lengja í gróðursetningartíð á sumarplöntunum sínum
Í minningunni var það Hvítasunnan, sem markaði hin raunverulegu árstíðaskipti á mínum æskuslóðum. Drullupollarnir sem þá einkenndu moldargöturnar voru hinir raunverulegu sumarboðar og þá hófust stökkæfingar ungra Stefnismanna, sem sópuðu síðan að sér verðlaunum í langstökki og þrístökki á héraðsmótunum á Núpi síðar um sumarið
Ég veit ekki hvernig aðrir koma undan vetri, en ég er allavega þreytt, bæði í sinni og líkamlega. Þrátt fyrir árlega flensusprautu á haustmánuðum, hef ég fallið fyrir hverri pestinni á fætur annarri og gengur illa að ná þessu úr mér. Ónæmiskerfið hjá mér virðist hafa hrunið á svipuðum tíma og hið íslenska efnahagskerfi
En sumarkoman er alltaf gleðiefni. Bara tilhugsunin um að sumarið sé framundan og veturinn að baki, vekur hjá manni von um betri tíð og blóm í haga
Gleðilegt sumar kæru vinir
Frost á Suðurlandi og Vestfjörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
gleðilegt sumar og gifturíka kosninganótt:)
Hólmdís Hjartardóttir, 23.4.2009 kl. 12:02
Gleðilegt sumar kæra bloggvinkona.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2009 kl. 13:59
Takk og sömuleiðis Sigrún mín, vonum að sumarið gefi okkur betri tíð. Ekki veitir af, kem líka svona hálf vonlaus og þreytt undan vetri. Vonandi verður hækkandi sól (og auðvitað útkoma kosninga) til þess að það létti á sálinni.
Rut Sumarliðadóttir, 23.4.2009 kl. 14:00
Gleðilegt sumar ljúfust. Ég deili með þér lumbrunni er eitthvað slöpp og lítil í mér eins og sagt er.Aldurinn?
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 15:27
Gleðilegt sumar Sigrún mín já það er frekar kalt um að litast hér í dag. En svo batnar þetta bara.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2009 kl. 17:06
Gleðilegt sumar. Þegar það kemur fyrir alvöru fara pestirnar veg allrar veraldar.
Helga Magnúsdóttir, 23.4.2009 kl. 17:53
Gleðilegt sumar Sigrún mín
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 23.4.2009 kl. 19:08
Gleðilegt sumar
Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 23:05
Gleðilegt sumar.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.4.2009 kl. 00:51
Gledilegt sumar kæra Sigrún.Vona a dtú farir ad ná upp treki og hressast.Ég hef verid ad taka pólarolíuna sem á ad passa uppá lidi og vödva og svo er ég ad taka Turbo Greens sem er grænt duft og tek ég tad á hverjum morgni.Tetta fæst í heilsuhúsinu og er ad virka vel Ég var búin ad vera ansi lasin um tíma en tetta er hreinlega ad redda mér.Algjört möst er ad taka tetta á hverjum morgni.
Prufadu tetta.
Stórt fadmlag til tín . hèdan úr sólinni.
Gudrún Hauksdótttir, 24.4.2009 kl. 07:08
Gleðilegt sumar elskuleg. Ég kem þreytt undan vetri eins og þú, líkaminn ekki alveg uppá það besta vegna gigtarinnar, mér finst ég versna ár frá ári, en lit alltaf til sumarsins með tilhlökkun og gleði og útileganna ;)
Góða helgi elskuleg og góða skemmtun á kostningavöku á laugardaginn ;)
Aprílrós, 24.4.2009 kl. 10:06
Gleðilegt sumar Sigrún mín. Vonandi hristist slenið af þér þegar kosningar eru um garð gengnar og sumarið hefur fest sig betur í sessi. Þangað til er um að gera að vefja sig inn í teppi með heitt te og létta lesningu og vona bara það besta
, 24.4.2009 kl. 14:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.