15.4.2009 | 17:23
Ég vel jafnaðarstefnu!
"Kjaraskerðing hjá opinberum starfsmönnum er þegar hafin, að sögn Guðlaugar Kristjánsdóttur, formanns BHM. Hún sagði að orð Katrínar Jakobsdóttur, oddvita VG í Reykjavík norður, um að fremur eigi að lækka laun opinberra starfsmanna en að fækka störfum, hitti BHM illa fyrir."
Auðvitað er forysta BHM kvíðin vegna væntanlegs niðurskurðar t.d. í heilbrigðiskerfinu, því það eru væntanlega félagsmenn innan þeirra raða, sem eru á ofurlaunum miðað við aðra sem starfa í þessum geira þar sem allir "hlekkir" eru jafn mikilvægir!
Miðað við það sem fulltrúar VG og Samfylkingar sögðu á ekki að fækka störfum í þessari þjónustu, heldur verða laun lækkuð í anda jafnaðarstefnu. Það hlýtur að vera augljóst að ekki verða laun lækkuð hjá þeim hópum, sem hingað til hafa verið talin skammarlega lág í f.v. velferðarþjóðfélaginu Íslandi. Fékk það reyndar staðfest á fundi trúnaðarmanna í heilbrigðisþjónustu með heilbrigðisráðherra í síðustu viku að ekki stæði til að lækka laun heilbrigðisstarfsmanna sem ekki næðu einhverri X upphæð....man ekki lengur hver upphæðin var því persónulega næði ég aldrei þeirri upphæð, þó ég stæði vaktir allan sólarhringinn!
Var annars að horfa á útsendingu RÚV frá kosningafundinum á Nasa, þar sem ég hafði misst af honum vegna vinnu minnar í gærkvöldi.
Ég var ánægð með báða fulltrúa ríkisstjórnarinnar og fannst þeir báðir málefnalegir.
Illugi hefur ágætis talanda en talaði með lítilsvirðingu um þá 3 milljarða, sem hann telur að innheimtist með hátekjuskatti Bendi honum á að þennan pening hefði verið hægt að nota til að stoppa upp í fjárlagagat ríkisspítalanna.
Sigmundur vill ekki heldur hátekjuskatt, enda ekkert sérlega spenntur fyrir þingmannsdjobbinu. Sumum finnst að hann hafi verið að tala sig "inn á" VG, en ég gat ekki betur séð en að atkvæði greitt honum kæmi Sjálfstæðisflokknum best...please, not again!
Ég elska húmorinn hans Þráins
Karl er örugglega góður prestur
Ástþór, fæst orð bera minnsta ábyrgð
Finnst annars fyrirkomulagið á þessum sjónvarpsútsendingum hundleiðinlegt og þáttarstjórnendur bæði frekir og hlutdrægir. Hvernig væri að þeir settu reglur í upphafi fundar um þann tíma sem frambjóðendum er ætlað?
Kjaraskerðing þegar hafin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Ef ég gæti kosið fengi Þráinn mitt atkvæði bara vegna þess að hann er svo hrikalega mikill vinur minn. Hehehe.. Ætti jafnvel að sverja mig inn á kjörskrá bara fyrir O- ið ?
Allir hinir sem hafa vermt stóla þingsins undanfarið eru með sama rassafarið so sorrí hef ekki trú á einum einasta manni. Það fer allt í sama andsk. farið Sigrún mín. Þetta eru bara leppar og gungur öll með tölu.
Ía Jóhannsdóttir, 15.4.2009 kl. 20:46
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.4.2009 kl. 21:47
Sú stefna að lækka laun þeirra sem mest hafa, er þegar í gangi og hefur örugglega komið í veg fyrir einhverja uppsagnir hafa ekki orðið að veruleika. Þegar verið er að vinna úr slíkum risavanda, verður oft að gera fleira en gott þykir
Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.4.2009 kl. 21:57
Hólmfríður, ég veit að þetta ferli er byrjað. Reykjavíkurborg reið á vaðið undir stjórn D og B....en flokkssystkin þeirra í þjóðmálunum þykjast ekki ætla að gera það sama
Jóna Kolbrún
Ía mín, ef ég tryði því ekki að sumir stjórnmálamenn væru heiðarlegir, væri eins gott að gefast bara upp fyrir þessum líð...strax
Sigrún Jónsdóttir, 15.4.2009 kl. 22:27
Enda ef ekki væru konur með góða trú þá væri heimur í verri vanda.
Lítt fannzt mér nú sérann sjarmera með sínum líkkiztuhúmor.
Steingrímur Helgason, 15.4.2009 kl. 23:29
Mér finnst það sanngjarnt að lækka laun þeirra sem mest hafa til að sem flestir geti haldið vinnunni. Og ég er líka sammála þér með það að það þarf að gæta jafnræðis við tímatakmörkun á þeim sem eru í andsvari fyrir flokkana.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2009 kl. 10:35
Auðvitað á að lækka ofurlaun, það er ekki spurning. Þau eiga bara ekki við og af tvennu illu er betra að lækka þau en fækka störfum.
Rut Sumarliðadóttir, 16.4.2009 kl. 13:48
Vinnuhlutfallið hjá mér hefur verið skert og þar með launin lækkað. Mér er eiginlega alveg sama svo framarlega ég hafi vinnu. Ég held að atvinnuleysi fari verr í fólk en flest annað.
Helga Magnúsdóttir, 16.4.2009 kl. 15:16
Þegar Sjálfstæðismenn segjast vera á móti skattahækkunum eiga þeir einungis við hátekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. Venjulegt launafólk mun að sjálfsögðu fá skattahækkun.
Finnur Bárðarson, 16.4.2009 kl. 17:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.