Leita í fréttum mbl.is

Þingmenn eiga að skammast sín....

ragnhei_ur_lafsdottir.jpgOg hún lét þá heyra það sómakonan Ragnheiður Ólafsdóttir, nýr varaþingmaður Frjálslynda flokksins eins og sjá má hér.  Tók mér það bessaleyfi að linka á myndbandið inni hjá Láru HönnuSmile.

Er það kannski svona fólk sem við eigum að skima eftir í kosningabaráttunni?  Fólk með bein í nefinu og sem er löngu vaxið upp úr sandkassaleikjum litlu strákanna, sem eru nýskriðnir af skólabekk.

Þetta var hressandi og til eftirbreytni.  Takk fyrir Ragnheiður.

 

 

 

p.s.  Annars voru framboðsfundirnir fyrir vestan algjör snilld og þaðan hefur maður sennilega þennan óbilandi áhuga á pólitíkWhistling


mbl.is Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er óþolandi hvernig þingmenn starfa, gaspra út í eitt um mál sem ekki varða beint að ná tökum á kreppunni og aðgerðir vegna hennar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.2.2009 kl. 00:31

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég held að við þurfum íslenska alþýðu á þing....Sigrún?!!!!! þú myndir hækka í launum...............








Hólmdís Hjartardóttir, 12.2.2009 kl. 00:43

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

....Bara ef þú kemur líka Hólmdís

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 01:03

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Mér sýnist að það þurfi á svona konum að halda inn á þing! Kannski þarf líka leikskólakennara og siðgæðisverði. Það er fáránlegt að fylgjast með því hvernig þetta lið leyfir sér að láta eins og þeir sitji uppi með einhverja við sjtórnvölinn sem hafi rænt þá völdunum á þeirra einkaheimili

Rakel Sigurgeirsdóttir, 12.2.2009 kl. 01:30

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég tek undir þetta ágætu konur. Það er til nóg af ábyrgu og heiðarlegu fólki í landinu og ég skil ekki af hverju við sitjum upp með svo marga vitleysinga á þingi.

Ég vil nýtt fólk inn á þing.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.2.2009 kl. 01:59

6 Smámynd: Auður Proppé

Flott hjá henni

Auður Proppé, 12.2.2009 kl. 07:30

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Ragnheiður var flott í ræðustól í gær, enda kvenskörungur mikill.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 08:42

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott kona.  En allir eru að missa sig yfir að það skuli koma almennileg manneskja með eðlilega skynsemi í ræðustól Alþingis.

Hvað segir það okkur um þá samkundu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.2.2009 kl. 08:54

9 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Jenný: Eigum við að segja að ástæðan kunni að vera sú að þeir skammist sín en eru að reyna réttlæta sig samt? Vilja ekki viðurkenna að hún hefur fullt leyfi til að setja niður í við þá sem haga sér þannig. Annars hef ég ekkirekist á þessa umræðu og er forvitin.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 12.2.2009 kl. 09:34

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jenný, ég held það segi okkur að flestir eru komnir með upp í kokk af þeirri leiksýningu sem þar fer fram og vilja undirstrika það með því að taka undir með málflutningi Ragnheiðar

Takk annars allar fyrir innlit og innlegg

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 10:34

11 Smámynd:

Flott hjá henni - svona á fólk að vera.

, 12.2.2009 kl. 11:17

12 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Sammála með Ragnheiði. Sagði það sem þingheimur þurfti að heyra. Flott kona. Reyna að þagga niður í þessu fólki sem er bara að karpa og kveina og benda hvert á annað. Meira svona fólk takk.

Rut Sumarliðadóttir, 12.2.2009 kl. 11:35

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já hún er flott þessi kona og það sem ég tók vel eftir að hún var ekki kvíðin eða hikstaði eigi á orðum eins og sumir gera.
Inn með konur eins og hana.
Sigrún mín þú mundir sóma þér vel við hennar hlið.

Kveðjur
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.2.2009 kl. 11:45

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan dag mínar kæru

Ragnheiður sagði það sem segja þurfti og ég er henni þakklát

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 11:59

15 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þessi kona er alveg meiriháttar, svo meiriháttar að ég er viss um að hún kemst ekki á þing í næstu kosningum.

Helga Magnúsdóttir, 12.2.2009 kl. 20:31

16 identicon

Helga er með þetta held ég? Og hvað segir það um okkur sem kjósum?.Í alvöru.  Hvað erum við að velja í kosningum. Ekki þar fyrir við þekkjum svona raddir. Eins og til dæmis þig Sigrún. Sem reynir á sjálfum þér hvern einasta dag hvernig þetta er að virka allt saman. Ekki bara sitjandi við tölvuna. Heldur reynandi það í lífinu. Maður á mann. Vinnandi við eitt erfiðasta starf sem unnið er. Þess vegna ertu svo trúverðug. Takk fyrir mig..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband