Leita í fréttum mbl.is

Fékkstu sprautu?

Þetta er ein algengasta spurningin á mínum vinnustað á inflúensusprautu tímabilinu, sem er í okt./nóv.

Ég þigg alltaf sprautuna, þar sem ég fékk "flensuna" einhvertíma svo slæma að ég lenti á sjúkrahúsi.  En hvað er í sprautunni.  Það fer víst eftir því hvort það er verið að sprauta fyrir stofni a, b eða cErrm

Við sem vinnum í heilbrigðisgeiranum fáum þessa sprautu fríttSmileen auðvitað borgar hana einhver....því það er víst ekkert frítt í henni veröldWink

Nú er ég búin að liggja í pest/flensu í 10 daga og í dag fékk ég lyf sem eiga að herja á þessu helvíti, þau voru ekki ókeypisFrown   kr. 10.000.- takk fyrir takkAngry

En hvað er í þessari flensusprautu?  Hér kemur ein kenningin:

Er það nokkuð skrítið að maður liggi?Tounge

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

hehehe farðu vel með þig bloggvinkona.

Ía Jóhannsdóttir, 14.1.2009 kl. 18:39

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Rut Sumarliðadóttir, 14.1.2009 kl. 19:08

3 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Ha ha Sigrún mín fékkstu svona spautu iss. Illa farið með fólkið í heilsugeiranum  En verðið á lyfjunum ertu ekki að grínast Vona að þau  virki vel og haldi þér frá að lenda á spítala í niðurskurði. Finn til með þér ljúfan og  góðan bata

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 14.1.2009 kl. 19:52

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég gleymdi að fara í sprautu og sé eftir því

Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2009 kl. 20:13

5 identicon

Tíu þúsund kall? Hvur djöf...Ætla rétt að vona að þetta fari að rjátla af þér Sigrún mín

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 20:50

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...skal ég sprauta þér???....ææ...nú skar ég of djíúpt!! Hvað ætli skurðlæknirinn segi.....ég er búinn að stórskemma nýja skurðarborðið! (Saxi)

Haraldur Bjarnason, 14.1.2009 kl. 21:25

7 identicon

Ég tók meðvitaða ákvörðun að fara ekki í sprautu.  Hef gert það einu sinni og veiktist eftir það.  Sem betur fer lendi ég afskaplega sjaldan í þessum flensuskít.  Ó já, dýrt er drottins...lyf í þessu tilfelli.  Það kostar sko að vera veikur, takk fyrir. Farðu vel með þig Sigrún mín og vonandi virka dýru fínu lyfin þín á þessum andskota.  

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 21:28

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir heimsóknir og batakveðjur

Eflaust einhverjum sem finnst þetta dýrt en svona lýtur dæmið út:

Doxylin 100 mg. töflur x 20 = kr. 4.566.-

Seretide (púst) x 2 og ventolin (púst) x1 = kr. 5.255.-

Samtals lyf kr. 9.821.-

Læknisheimsókn kr. 1.000.-

Læknisvottorð kr. 1.200.- (fæ endurgreitt!)

Já dýrt er að veikjast í þessu ....volaða landi

Sigrún Jónsdóttir, 14.1.2009 kl. 22:29

9 Smámynd:

Ég hef einmitt líka fengið mér flensusprautu síðan ég fékk lungnabólgu upp úr flensunni og var í marga mánuði að jafna mig. En í öllum barlómnum þá gleymdi ég henni bara þetta árið. Vona að ég sleppi samt. Óska þér góðs bata

, 14.1.2009 kl. 22:32

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sleppi flensusprautunni. Tvisvar verið sprautuð og var veik af bóluefninu.

Svo venst það að fá lungnabólgu Góðan bata gamla mínvið þurfum á þér að halda

Hólmdís Hjartardóttir, 15.1.2009 kl. 00:52

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi fer þessi flensa að rjátla af þér, ég vona að þér batni fljótt og vel af þessum dýru lyfjum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.1.2009 kl. 01:02

12 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

He he.  Ég fékk sprautu og þrjár pestir í kjölfarið.  Eina strax - spurning hvort það var bóluefnið, eina gubbu/niður pest og svo eina sem tók tæpan mánuð.  20 dagar á pensilíni + púst.  Helv.... dýrt.  Mánuður frá vinnu.... helv.....dýrt.

Veit ekki hvort ég þigg svona sprautu aftur - verð sjaldnast veik nema einmitt þegar ég á "ekki að verða það"......

Láttu þér batna vinkona - þetta hefst fyrir rest

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 15.1.2009 kl. 01:08

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit og kveðjur stelpur

Ætlaði snemma í bólið, en eftir að hafa horft á borgarafundinn er ég upptjúnuð með von í hjarta.  Fundurinn var magnaður

Sigrún Jónsdóttir, 15.1.2009 kl. 01:28

14 Smámynd: Aprílrós

Góðan bata elskan ;)

Aprílrós, 15.1.2009 kl. 07:01

15 Smámynd: Hulla Dan

Það ætla ég að vona að þér fari að batna.
Samt kannski synd að þér batni strax þegar þú ert búin að eyða öllum þessum peningum í lyf ... njé láttu þér bara batna.

Knús til þín.

Hulla Dan, 15.1.2009 kl. 08:40

16 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fór ekki í flensusprautu, held ég sé ekki með típíska flensu heldur, hmmmm.... aðallega með hálsbólgu. Kannski tala ég of mikið, eða of lítið??

Góða heilsu í þitt hús!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.1.2009 kl. 13:30

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jóhanna ég var einmitt að kommenta hjá þér

Takk fyrir innlit og kveðjur allar

Sigrún Jónsdóttir, 15.1.2009 kl. 13:33

18 identicon

Sæl Sigrún.

 Eitthvað er til í þessu .

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 15:51

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha, láttu þér batna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.1.2009 kl. 17:47

20 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Einu sinni sagði læknir sem var spurður hvað maður væri lengi að jafna sig á flensu: Ef þú liggur í rúminu, ferð vel með þig og tekur lyf tekur það viku, ef þú gerir ekki neitt tekur það sjö daga.

Helga Magnúsdóttir, 15.1.2009 kl. 21:10

21 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

hehe Helga, þessi hefur haft húmor....og kannski rétt fyrir sér.  Ég álpaðist of snemma í vinnuna og lagðist aftur verri en áður.

Takk öll fyrir innlit og kveðjur.

Sigrún Jónsdóttir, 15.1.2009 kl. 21:16

22 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

ÆÆÆláttu þer batna sigrún mín

Sædís Hafsteinsdóttir, 15.1.2009 kl. 22:07

23 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.1.2009 kl. 23:16

24 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha eins gott að varast svona sprautur.  En láttu þér batna sem fyrst Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2009 kl. 09:42

25 Smámynd: Heidi Strand

Ég óska þér góðan bata.

Heidi Strand, 16.1.2009 kl. 22:15

26 Smámynd: Hörður Þórðarson

Þeim mun minna rusl sem við látum inn í líkama okkar, því betra.

Hörður Þórðarson, 17.1.2009 kl. 08:26

27 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Vona að þú sért að hressast kæra. Góða helgi til þín og þinna.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 17.1.2009 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband