Leita í fréttum mbl.is

ASÍ er líka undir smásjá......launþega

Ég er fyrir lifandis löngu búin að missa allt álit á Verkalýðsforystu, hvar í samtökum sem hún stendur.  Nýkjörin forseti ASÍ segir:

"Þá séu lífskjör öryrka og lífeyrisþega skert með harkalegum hætti í tillögum stjórnvalda"

Með þínu blinda auga hefur þú hr. forseti, sem framkvæmdastjóri þessara launþegasamtaka, séð til þess að þessir sömu hópar lifa nú þegar langt undir framfærslu- og fátæktarmörkum.  SveiattanDevil

Bætur öryrkja og ellilífeyrisþega taka nefnilega mið af lægstu launatöxtum Gylfa og félagaAngry

Ég vil breytt viðhorf.....líka hjá launþegasamtökum.  Hugum að framfærsluviðmiði áður en lagðar eru fram kröfur.  Vinnum "gegnsætt"....allsstaðarSmile


mbl.is Endurskoðun samninga frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Skil ekki alveg hvernig Gylfi þykist vera að verja laun þeirra sem minnst mega sín með þau laun sem hann hefur.

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tek undir hvert orð.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 20:46

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bara komment á myndina af ,,jólasveinunum"  starfsgleðin ,,skín"  eins og sól í heiði heheheh...

Ía Jóhannsdóttir, 11.12.2008 kl. 21:15

4 identicon

Þú hefur virkilega áhugaverðar skoðanir, og meira en það, tillögur að því hvernig hægt er að bæta kjör þeirra verst stöddu.  Búinn að vera lesa mig í gegnum þær.Það er bara svo ergilegt að forysta verkalýðsfélaganna sbr. Gylfi eru svo gegnsýrðir af hinu rotna fjármálalífi.  Hafa orðið hagsmuni að gæta, sumir persónulega, og virðast algjörlega blindir fyrir þeim raunveruleika sem þeirra skjólstæðingar lifa í. 

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 21:59

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég skil ekki hvernig fólk getur framfleitt sér á þessum bótum (enda gerir það það sennilega ekki)

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.12.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.12.2008 kl. 22:15

7 Smámynd:

Rétt hjá þér. Það er skömm að verkalýðsforystunni

, 11.12.2008 kl. 23:27

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sjáið þetta - tær snilld!

Lára Hanna Einarsdóttir, 12.12.2008 kl. 01:08

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Góð færsla, flott teiknimyndasagan sem Lára Hanna vísar á.  Svona gerast kaupin á eyrinni. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.12.2008 kl. 01:13

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigrún, ef við viljum í fullri alvöru hreinsa til þá mega hálaunaðir verkalýðsforingjar og stjórnir "þeirra" ekki verða útundan.  Þeir sitja svo notalega ævilangt í forystunni að það er nær borin von að breyta lögum stéttarfélaganna, t.d. í þá lýðræðislegu veru að sama stjórn megi aldrei sitja lengur en X mörg ár.  

Í reynd er nær ekkert lýðræði í stærstu stéttarfélögum landsins - og ASÍ farið að misskilja hlutverk sitt illilega.

Kolbrún Hilmars, 13.12.2008 kl. 14:07

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er þér alveg sammála þarna Kolbrún.

Sigrún Jónsdóttir, 13.12.2008 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband