24.10.2008 | 23:30
Hver var mín ábyrgð? Og hver verður mín refsing?
"Ætli samfélagið beri ekki meira og minna vissa ábyrgð á því"? Svo mörg voru orð viðskiptaráðherra í lok viðtals sem haft var við hann í Kastljósi kvöldsins. Spurningin var: Hverjir bera ábyrgð á það fór sem fór?
Hvaða samfélag ætli ráðherrann sé að fjalla um? Ætli þetta sé mitt samfélag eða þeirra samfélag? Ég er allavega orðin ansi þreytt á því að mér sé bendlað við samfélag veruleikafirrtra græðgis spekúlanta, hvort sem þeir voru í útrásargenginu og stuðningsliði þeirra, eða metnaðarlausa stjórnmálamenn, sem tala fyrir félagshyggju en dýrkuðu frjálshyggjuna í ræðu og riti. Flott hjá Helga Seljan að "grafa upp" bloggfærslu Viðskiptaráðherrans frá því í ágúst, þótt blogginu hans hafi verið lokað af einhverjum ástæðum fyrir nokkrum dögum síðan.
Ég vil að hér verði velt við öllum steinum. "Samfélagið" mitt á rétt á því að vera hreinsað af svona getgátum Viðskiptaráðherra og annarra sem svona tala. Við viljum réttarhöld strax.
Gæti ég kannski kært Viðskiptaráðherra fyrir að vera með þessar aðdróttanir í garð míns samfélags, svo ég fái úr því skorið sem fyrst? Eða er kannski til einhver annar kanall, sem "samfélagið" borgar fyrir og gæti gert út um þetta? Umboðsmaður Alþingis kannski?
Annars var þetta viðtal við Viðskiptaráðherrann stórfurðulegt og mér fannst allan tíman að hann hefði fests í einhverjum vef, sem hann gat ekki klórað sig út úr.
Geri hér tilraun til að setja viðtalið úr Kastljósi kvöldsins inn, en ef það kemur ekki vísa ég á vef RÚV.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki þurft að koma vestrænu ríki til hjálpar síðan árið 1976. Þá þurftu þeir að koma bretum (m. litlu b) til hjálpar eftir að þeir höfðu tapað Þorskastríðinu við Íslendinga.....Þeir eru langræknir helvískir
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Athyglisverður pistill Sigrún. Ég sé að ég hef misst af ,,fróðlegu"viðtali í Kastljósi í kvöld. Kippi því í liðinn og commentera síðar.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 24.10.2008 kl. 23:55
Hér þarf að velta við steinum....þó ekki Rolling Stones sem eru fyrirmyndar bretar
Hólmdís Hjartardóttir, 25.10.2008 kl. 00:36
Sæl Sigrún !
Húrra: Stórglæsilegur pistill.
Tjallinn gleymir seint eða aldrei. Kannski er hann að hefna sín vegna
ófaranna í þorskastríðinu, hver veit ?
Umboðsmaður Alþingis étur úr fötu ráðamanna, ekki eyða tíma þínum
í að tala við hann.
Kv. K.H.
..., 25.10.2008 kl. 03:40
Sæl Sigrún.
Stórgóður pistill hjá þér,eins og alltaf þegar þú dýfir niður penna..Þeir eru seinþreyttir á að fara í ginið á okkur geyin .Hver er þversumman af árinu 76 ?
Kærleikskveðjur.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 07:28
Húrra fyrir Frú Ingibjörgu Sólrúnu...ùt med Davíd og ekki nóg med tad heldur bankarád einnig.
Menn virdast geta kært mann og annann eda tjód og tjódir...Hvar stöndum vid med rétt okkar?
knús
Gudrún Hauksdótttir, 25.10.2008 kl. 07:41
Sigrún mín, að vanda les maður með ánægju pistil þinn þessi er nú eigi síðri en hinir, já við viljum velta steinum og það strax.
Knús í helgina þína, Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.10.2008 kl. 10:16
Sigrún mín, ég ætla ekki að axla ábyrgðina á þessu krassi, ég vil láta þá sem stóðu að því bera hana. Stjórnvöld, seðlabanka, eftirlit og útrásarpésa, og svo auðvitað líka bretana, þeir bötuðu nú ekki um helv....
Knús á þig og eigðu yndislega helgi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2008 kl. 11:43
Ég er alsaklaus af þessu eins og mestur hluti þjóðarinnar er. Við, þjóðin, eigum að bera ábyrgð á klúðri örfárra manna.
Góð samantekt eins og þín var von og vísa.
Rut Sumarliðadóttir, 25.10.2008 kl. 12:03
Ég þakka innlit og innlegg
Sigrún Jónsdóttir, 25.10.2008 kl. 12:40
Við eigum þau nokkur heimsmetin að eigin áliti nema eitt. Við berum aldrei ábyrg.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 16:05
Takk fyrir samveruna í dag
Hólmdís Hjartardóttir, 25.10.2008 kl. 16:53
Bara svona í tilefni tess ad ég var ad læra ad sækja svona myndir og setja inn....Tá sendi ég tessa ...
Knús á tig.
Gudrún Hauksdótttir, 25.10.2008 kl. 17:43
æææ Heldur stór..
Gudrún Hauksdótttir, 25.10.2008 kl. 17:43
Ekki benda á mig er það ekki vinsælasta lagið í dag. Flottur pistill að vanda. Njóttu helgarinnar
Ía Jóhannsdóttir, 25.10.2008 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.