29.6.2008 | 12:59
Frábært átthagamót!
Komin heim eftir frábæra skemmtun á skjálftaslóðum. Kom reyndar með seinni skipunum í gærkvöld, las nokkrar frábærar færslur hjá bloggvinum og hrundi svo í rúmið og hef verið meðvitundarlaus síðan.
Ég er farin að halda að þetta með hlýnun jarðar sé einhver ímyndun í fólki. Við Ásta æskuvinkona lögðum af stað úr bænum seinnipart föstudags í glaðasólskyni og 19° hita. Þegar við komum að næturgistingarstað hjá Evu Ástusystur á Selfossi var svo mikil rigning að varla var fært frá bíl að Evu dyrum. Við sátum af okkur rigninguna í Evu eldhúsi og nærðum okkur á lystagóðri humarsúpu með þeim Evu og Hafliða. Skiptum svo yfir í kuldagallann, þ.e.a.s. eins mikinn kuldagalla og vitsmunir segja að pakka skuli þegar lagt er af stað í 19° hita.
Eftir veislutrakteringar hjá Evu og Hafliða héldum við á vit Sumargleðinnar á Laugarvatni, sem Súgfirðingafélagið stóð þar fyrir. Þar hafði ekki komið rigningardropi úr lofti allan daginn, en hann blés hraustlega að norðan og eins og staðkunnugir vita þá skín sólin ekki á tjaldbúa við Laugarvatn eftir kl. 19:30, þannig að það var kalt. En gleðin og vináttan sem skein úr andlitum tjaldbúa (eða réttara sagt felli- og hjólhýsabúa .ætli Geir viti þetta?) hlýjaði okkur inn að hjartarótum. Þarna eyddum við notalegri kvöldstund með frábæru fólki og rifjuðum upp gömul kynni frá æskuslóðum.
Þarna var t.d. Ásta Sínu, sem er systir Báru Ingimars, Magga Sínu, Fribbu Ingimars, Sigga Sínu og Gumma Ingimars og Rögnu Sólberg. Þarna var líka Einsi Óla, sem er m.a. bróðir tvíburanna Ella Gunnu Valda og Óla Óla. Ekki fundum við Maju Helgu Maju, sem er systir Hebbu og Ægis Hallbjörns., en ég nefni þetta sem dæmi um þá umræðu sem kom upp, þ.e. hvernig börnin voru annað hvort kennd við föður eða móður þótt um alsystkini væri að ræða.
Við Ásta eyddum svo nóttinni á Hótel Evu og eftir góðan morgunverð, sem dróst fram eftir degi í góðu spjalli við hótelhaldara, og alltof stuttu stoppi hjá Hrönn eðalbloggvinkonu, drifum við okkur aftur á svæðið. Þar hafði heldur betur bæst í hópinn og er talið að hátt í 200 Súgfirðingar og vinir þeirra væru á staðnum.
Þarna voru t.d. 8 krakkar úr ´48 árgangi ásamt mökum og afleggjurum. Við vorum 6 úr ´52 árgangi, en náðum því ekki að hittast sem hópur, því sumir voru bara að keyra í gegn eins og sagt er. Eyrún (af Hallbjarnarætt, Haraldur minn!) hafði t.d. komið í heimsókn meðan við Ásta vorum ennþá að drolla niður á Selfossi. Beggi kom aðeins við og við Ásta náðum að smella á hann kossi og þar sem við fermingarsystur, ég, Ásta og Helga Stefáns, sátum og spjölluðum yfir kaffibolla kom ungur maður og smellti kossi á kinn okkar systra. Á svona mótum kyssir maður alla og spyr svo: Hver ert þú nú aftur? Það gerði ég í þessu tilviki og varð að algjöru athlægi. Þarna var þá komin Liljar fermingarbróðir ásamt dóttursyni sínum Kristófer Liljari. Þeim stutta fannst nú alveg nóg um hvað afi gamli þurfti að kyssa margar kellingar.
Undirbúningsnefnd Sumarhátíðar 2008 stóð sig með miklum ágætum. Þarna var farið í ýmsa leiki og keppt í þrautum. Allir sem tóku þátt fengu medalíur og var enginn skilin útundan. T.d. mætti sonarsonur minn Róbert Skúli (Haraldur, pabbi hans er Skagamaður af Súgfirskum ættum!) í smáheimsókn á svæðið með foreldrum sínum, fór í kollhnís og fékk medalíu!
Eftir skemmtilegan dag í góðra vina hópi, lögðum við Ásta íann og vorum komnar í okkar eingin rúm á skikkanlegum ömmutíma.
Ég er ekki myndavélavædd, þannig að myndþyrstir lesendur geta farið inn á heimasíðu Súgfirðingafélagsins, http://www.sugandi.is og skoðað herlegheitin eftir nokkra daga.
Það má eiginlega segja að þarna hafi ég fengið forsmekkinn af því, sem ég mun upplifa á Súgfirskri Sælu, en þangað ætla ég að mæta eftir rúma viku.
Bloggvinum mínum þakka ég innlit og kveðjur við síðustu færslu.
Að lokum vil ég enda á vísu með texta eftir Sr. Jóhannes Pálmason, sem Súgfirðingar af nokkrum kynslóðum syngja alltaf þegar þeir koma saman:
Gamla fatan.
Hve ljúft er í hillingum liðinna daga
Að líta þig bernskunnar dýrlegu slóð.
Hinn blómgvaða hvamm undir laufskógar leiti
Þar lágreisti bærinn hans föður míns stóð.
Hið sólgyllta vatn þar sem vindmillan rumdi
Hinn veðraða klett þar sem lækurinn flaug
:,: og fjárhúsið, hlöðuna, fjósið og brunninn
og fötuna gömlu, sem hékk þar í taug:,:
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Já, það leikur sér veðrið og við fljúgum með. Þetta hefur nú samt verið gaman þrátt fyrir rok og rigningu, allt gott sem endar vel og fallegt er ljóðið
Ásdís Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 14:08
Þessi helgi hefur væntanlega verið ógleymanleg, þrátt fyrir kulda og trekk.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 29.6.2008 kl. 15:59
Til hamingju með vel heppnaða helgi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 16:43
Ég elska svona samkundur með góðum gömlum vinum.
Ía Jóhannsdóttir, 29.6.2008 kl. 20:08
Hólmdís Hjartardóttir, 29.6.2008 kl. 20:17
Til hamingju með vel heppnaða ferð
Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2008 kl. 22:11
Aldrei að sleppa tækifæri til kossaflangss ;)
Takk fyrir komuna og græjuna og ég vil endilega að þú/þið komið betur við hjá mér næst
Hrönn Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 22:28
Takk fyrir frábæra helgi Sigrún mín.
Já það var gaman að koma á Laugarvatn og hitta þetta frábæra fólk og hvað við skemmtum okkur alltaf vel er við hittumst. Þetta tókst í alla staði mjög vel, breiður hópur fólks sem átti góðar stundir saman.
Ég tók nokkuð skemmtilegar myndir, kem til með að láta setja þær inn á suganda síðuna.
Þá er bara næsta hátíð hjá manni, Írskir dagar á næstu helgi, þú kemur auðvitað á gamlar slóðir er það ekki?
Svo er það hin Súgfirska Sæla á Suðureyri eftir hálfan mánuð hjá okkur og auðvitað verðum við þar
Kveðja af Skaganum
Anna Bja (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 22:59
Oh, hvað það hefur verið yndislega gaman, þrátt fyrir veðratilbrigðin.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 30.6.2008 kl. 00:04
Takk kæru konur fyrir innlit og kveðjur. Anna mín við sjáumst alveg örugglega á Sælu, en ég veit ekki með Írska daga.
Hallgerður, ég hitti ekki Ásdísi, því miður, en ég kom við hjá Hrönn en stoppaði alltof stutt. Það eina sem kom mér á óvart með Hrönn, var að mér fannst hún "unglegri", svona stelpulegri, en ég hafði ímyndað mér. Að öðru leiti það sama og þér finnst og eins og að ég hefði bara alltaf þekkt hana.
Sigrún Jónsdóttir, 30.6.2008 kl. 22:34
Frábær helgi á laugarvatni hjá ykkur Ônnu Bj.Já Kristófer mínum Liljari hefur fundist nóg um hjá afa gamla ad turfa kyssa allar tessar kellingar.Teir eru svo miklir vinir nafnarnirTad hefur bara verid svona vel mætt á svædid trátt fyrir svona leidinlegt vedur.
Knús á tig mín kæra Sigrún inn í góda viku.
Gudrún Hauksdótttir, 1.7.2008 kl. 05:02
Sigrún, varla hefur þetta verið Eyrún Huld dóttir mín, sem þarna kom af Hallbjarnarætt. Hún kom ekki til landsins fyrr en á laugardag. Var í heimsókn hjá ættingjum í móðurætt í Noregi. Afastrákurinn, tæpra þriggja ára, sagði stoltur við mig í gær: "Ég er nú bara á Íslandi núna afi," enda mikið sigldur maður og hefur komið til tveggja heimsálfa, þótt ekki sé eldri. - En ég er viss um að þú hefur skemmt þér vel með einhverjum ættingjum mínum þarna, þekki því miður allt of fáa, nema þá sem eru hér í nágrenni við mig núna.
Haraldur Bjarnason, 1.7.2008 kl. 22:09
Haraldur, Eyrún fermingarsystir er barnabarn Kristeyjar Hallbjarnardóttur. Afastrákurinn þinn er náttúrulega flottastur...eins og minn ömmustrákur á sama aldri.
Sigrún Jónsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:21
Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 12:21
Sá Báru niður á sjúkrahúsi í dag. Rögnu þekki ég líka vel. En veistu að það var 24°hiti á Suðureyri í gær, mér sagt af manni sem leit á mælinn, það er samt vandlega þagað yfir svona fréttum að vestan í útvarpinu. En hér er bara svon notalega hlýtt og gott. Ég er að mála kerin áSuðureyri fyrir Sæluvikuna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.7.2008 kl. 22:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.