Leita í fréttum mbl.is

Góða helgi!

Ég er að fara í ferðalag.  Hef varla farið út fyrir bæjarmörk stór-Reykjavíkursvæðis síðan í fyrra sumarBlush.  Nú er ferðinni heitið austur fyrir fjall (skjálftasvæðið) að hitta gamla og nýja vini af Súganda kyniSmile.  Búin að pakka, allt klárt og er með 1 stk. sítrónupressu í farangriWink.

Set hér inn auglýsingu frá Súgfirðingafélaginu til áminningar fyrir þá sem hafa gleymt þessum merka viðburði:

Sumarhátíð Súgfirðingafélagsins verður haldin um helgina á tjaldsvæðinu að Laugarvatni 27-29 júní en Súgfirðingurinn Guðmundur Hermannsson og Bryndís Einarsdóttir kona hans sjá um tjaldsvæðið. Um er að ræða fjölskylduskemmtun þar sem ungir og aldnir hittast og eiga góðar stundir í söng og leik. Farið verður í ýmsa leiki t.d. boðhlaup, reiptog, pokahlaup og fótbolta. Tjaldsvæðið er rúmgott og tilvalið að slá upp gamla tjaldinu eða mæta með fellihýsið, tjaldvagninn eða hjólhýsið á staðinn og ekki gleyma góða skapinu. Aðgangseyrir inná tjaldsvæðið er kr 500 pr mann fyrir 13 ára og eldri. 

Laugarvatn er fjölskylduvænn staður þar sem boðið er uppá margvíslega þjónustu og afþreyingu. Á staðnum er verslun, veitingahús, sundlaug, golfvöllur og einnig ágæt veiði í ám og vötnum í grenndinni. Einnig er stutt til Gullfoss og Geysis og á fleiri sögustaði.

ATH að þeir sem kunna á hljóðfæri t.d. gítar, munhörpu eða harmonikku eru eindregið hvattir til að mæta með þau á staðinn og taka þátt í fjörinu.

Sjáumst eldhress um helgina og munið að allir vinir og vandamenn eru velkomnir.
Söngbók og armband er selt á kr. 300


Sumarhátíðarnefnd Súgfirðingafélagsins.

Við Ásta æskuvinkona (og fermingarsystir) ætlum ekki að tjalda, þekkjum eigin skrokk betur en þaðWink.  Höfum fengið vilyrði fyrir gistingu út á Selfossi og ætlum að nýta okkur það.  Hef fregnað að "fallegur maður" gangi þar laus og mun ég gera mitt besta til að finna það fyrirbæriWhistling.

Ísbjörn í sólbaðiÉg hef litlar áhyggjur af "skjálftum" en vegna hlýnunar jarðar er víst vissara að vera við öllu búin, þannig að ég hef með mér sólarvörn......og kannski smávegis deyfilyf því ég er ekki með byssuleyfiTounge .

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góða skemmtun og hlakka til að sjá þig - ef þú mögulega kemst

Hrönn Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 17:32

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hah! Það stendur nú til að opna deild á Vogi! Til að venja fólk af mér   ....eða var það við mig? Man það aldrei

Hrönn Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 19:42

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

góða skemmtun

Hólmdís Hjartardóttir, 27.6.2008 kl. 20:30

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þið eruð afar skemmtilegar, er í kasti yfir ykkur.
Góða skemmtun Sigrún mín, en passaðu þig endilega á Ísbjörnum í hvernig formi sem þeir reynast vera.
                Knús kveðjur
                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.6.2008 kl. 21:08

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góða skemmtun og passaðu þig á Hrönn, hún er skaðvaldur mikill.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2008 kl. 22:17

6 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Hljómar mjög vel, skemmtu þér og njóttu. Gangi þér vel með þennan fallega sem gengur laus........

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.6.2008 kl. 23:33

7 identicon

jiiiiii ... en gaman....það verður nú líka haldin smá hátíð súgfirðinga hérna í Boston núna í næstu viku (þmt. á þjóðhátíðardegi USA fólks) - En Erna Guðmundsdóttir dóttir Guðmunds Ingimars og Siggu á Laugum (talar maður ekki alltaf svona þegar maður er utan af landi;) ) ætlar að heimsækja Berglindi (bróðurdóttir Sigrúnar Jónsdóttur ...dóttir Jóns Valdimarssonar og Guðjónu Albertsdóttir) - þar munu þær halda uppi stemningunni og spóka sig um í sólinni - allir velkomnir :) skemmtu þér vel Sigrún og hlakka til að lesa ferðasöguna:)

Berglind (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 00:07

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Er þetta líka fyrir svona langt í burtu Súgfirðinga? -  Ég meina, mamma var fædd þar þótt hún hafi flutt til Akraness 11 ára gömul árið 1927...er ég þá Súgfirðingur???

Haraldur Bjarnason, 28.6.2008 kl. 04:40

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Njóttur helgarinnar Sigrún mín

Ía Jóhannsdóttir, 28.6.2008 kl. 09:16

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Njóttu ferðarinnar Sigrún mín, og hafðu það sem allra allra best.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.6.2008 kl. 12:39

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært, vona að þú skemmtir þér rosa vel. Ég á kaffi á könnunni á morgun ef þú ert á ferð í gegn s: 8658698

Ásdís Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 20:29

12 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Góða skemmtun Sigrún mín og knúsaðu alla þarna frá mér með svona "súgfirðingaknúsi" . Ég held mig bara hérna heima í firðinum okkar fallega og ég get nú svarið fyrir það að það var hvítt í toppunum í morgun (samt ekki ísbirnir )

Halldóra Hannesdóttir, 28.6.2008 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband