20.3.2009 | 14:18
Ljúfur söngur og hjáróma raddir!
Ég "heyrði" i vorinu síðustu tvo morgna, þar sem ég var á næturvakt. Söngur fuglanna var byrjaður fyrir kl. 06:00 og þessi tónlist var ljúf og notaleg
Annars er það kunnugleg "tónlist", sem farin er að hljóma þetta vorið, þar sem kosningar eru í nánd Yfirboðin og skætingurinn er eitthvað sem ætti að hlífa okkur landsmönnum við um þessar mundir. Las snilldarfærslu frá góðum "Eyjupenna" núna áðan, sem afgreiðir bæði Tryggva Þór og harða andstæðinga ESB í vel skrifaðri færslu.
Lóan er fallegur fugl og mér þykir ákaflega vænt um hana
Lóan er komin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.3.2009 | 22:00
Gimme hope, Jo´anna....
Mikið er ég fegin að Jóhanna svaraði þessu kalli. Það hefði ekki bætt pólitískt ástand, ef formannsslagur hefði herjað á Samfylkinguna.
Tími Jóhönnu okkar er svo sannarlega kominn og vonandi tekst henni að gefa okkur von á framtíð þessa lands.
Eddy Grant orti ljóð til annarrar Jóhönnu (..og alls ekki góðrar Jóhönnu) í Suður Afríku en hægt er að nota viðlagið sem ákall til okkar Jóhönnu:
Gimme hope, Jo'anna
Hope, Jo'anna
Gimme hope, Jo'anna
'Fore the morning come
Gimme hope, Jo'anna
Hope, Jo'anna
Hope before the morning come
Getur einhver sagt mér af hverju var kveikt á Lennon síðustu nótt? Friðarsúlunni
Jóhanna svarar kalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.3.2009 | 00:59
Ætli það snjói í NASDAQ?
Merkilegur fjandi sem ég uppgötvaði núna rétt áðan. Fyrir hrun eða FH eins og Hrönn bloggvinkona kallar það, voru svona regluleg innslög í fréttatímum RÚV frá fjármálaheiminum. Fréttaþulirnir sögðu okkur brosandi frá gengisvísitölum, væntingarvísitölum, hvernig þeir höfðu það þarna á NASDAQ og hvernig kaupin höfðu gerst á hlutabréfamörkuðum og svoleiðis rugl, sem ég skildi náttúrulega ekki baun í....þetta var svona WC tími hjá mér ........því auðvitað voru þessi innslög sérhönnuð fyrir "óreiðumennina"
Nú er öldin önnur, við vitum ekkert hvernig eskimóarnir í NASDAQ hafa það en nú horfum við á fréttir af dapurlegum endalokum fjármálastarfseminnar sem þessi innslög RÚV voru byggð á.
Ekki veit ég hvernig lífeyrissjóður tannlækna stendur EF (eftir hrun). Ætli þeir þurfi kannski að hækka hjá sér taxtana?....ég vona ekki, ég er búin að vera með tannpínu í allt kvöld
Hvernig væri að RÚV kæmi nú með svona sérhannaðan fréttaauka fyrir neytendur á hverju kvöldi, þar sem útlistað væri á svona myndrænan hátt hvar hægt er að gera bestu kaupin? Hvaða vara hefur hækkað og hvaða vara hefur lækkað o.sv.frv.
Þetta var nú bara það sem ég var að pæla í fyrir svefninn
Money með The Beatles, gjörið svo vel
Fimm lífeyrissjóðir í rannsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.3.2009 | 00:28
Afmæliskveðja!
Litli fjörkálfurinn minn og draumadísin Erica Ósk er 2ja ára í dag
Eitthvað var fjölskyldan að spara afmælisdagana því hún fæddist á afmælisdegi mömmu sinnar Guðrúnar Freyju, sem á því líka afmæli í dag
Erica Ósk er búin að vera heilmikið lasin undanfarna viku og er enn veik, svo sennilega bíða veisluhöld betri tíma
En hún er dugnaðarstelpa og finnst fátt skemmtilegra en að "hræra í eina köku eða svo og fer léttilega með það Ég hefði getað valið úr úrvali mynda við hin ýmsu tækifæri, þar sem skvísan sést við bökunariðju sína
Kannski er kakan hér til hliðar, sem hún er að gæða sér á ásamt pabba sínum úr hennar smiðju, gæti bara vel verið
Ég ætla að skreppa til hennar í dag og knúsa hana og kyssa áður en ég fer í vinnuna
Elsku Erica Ósk og Guðrún Freyja til hamingju með afmælin ykkar Ég elska ykkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
15.3.2009 | 17:37
Prófkjör og persónukjör!
Það er ágætis tilbreyting að taka sér frí frá bloggheimum annað slagið. Aðeins að skoða út fyrir ramman og tóninn sem þar er gefin.
Af mér er allt gott að frétta. Ætlaði að hella mér á fullt í prófkjörsbaráttu í vikunni og gerði það að frátöldum 2 dögum, vegna magapestar, sem á mig herjaði og er í þessum skrifuðum orðum á góðu undanhaldi.
Nei, nei, er ekki komin í framboð og er ekki á leiðinni í framboð! Er ekki einu sinni endanlega búin að ákveða hvaða flokk ég ætla að kjósa eða hvort ég skila auðu. Veit bara hvaða flokka ég ætla ekki að kjósa.
Þeir sem til mín þekkja, vita að ég hef lengi barist fyrir "opinberum viðurkenndum framfærslugrunni", þ.e. að kjör verði skilgreind þannig allir geti framfært sér og sínum á þeim launum/bótum sem þeir hafa yfir að ráða.
Lægstu laun og bætur hér á landi eru náttúrulega til háborinnar skammar og úr því að launakjör þessara hópa voru ekki "lagfærð" í góðærinu er ekki mikil von til að þau verði bætt mikið í því hallæri sem við göngum nú í gegn um nema viðhorf almennings/verkalýðsforystu og stjórnmálamanna hafi raunverulega breyst í því áfalli sem þjóðin varð fyrir.
Til þess að eiga möguleika á því að framfæra sér og sínum hafa þessir lágtekjuhópar þurft að taka "neyslulán", yfirdráttarheimildir og smálán, sem að sjálfsögðu hefur þurft að standa skil á ásamt rándýrum vöxtum.
Bankarnir voru líka til skamms tíma mjög "viljugir" að lána en hirtu ekkert um það hvernig viðkomandi ætluðu að borga þessar skuldir og jafnframt halda áfram að lifa. Vítahringurinn varð erfiðari og erfiðari hjá mörgum láglaunamanninum. Beggja sök segja sumir kannski, en að mínu mati alger neyð hjá þeim sem þurftu á þessum lánum að halda.
Fljótlega eftir að núverandi ríkisstjórn tók til starfa heyrði ég að til stæði að endurlífga og endurbæta frumvarp, sem ekki náðist samstaða um í síðustu ríkisstjórn. Frumvarp um greiðsluaðlögun, þar sem bankarnir yrðu hreinlega skikkaðir til að dreifa skuldum til lengri tíma svo afborganir kæmu ekki niður á framfærslu fólks. Þ.e. að tryggt væri að eftir afborganir af lánum, hefði fólk samt nægilegt fé til ráðstöfunar fyrir persónulegri framfærslu. Þannig hafa hin Norðurlöndin haft þetta um árabil en hingað til hefur ekki verið hljómgrunnur fyrir svona aðgerðum hér á landi. En nú eigum við bankana, ekki satt og því hæg heimatökin.
Það er skemmst frá því að segja að ég fylgdist með framvindu mála og tók eftir að málið virtist mest vera á könnu þingmannsins Árna Páls Árnasonar, alþingismanns Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. Ég gerðist "vinur" hans á facebook og lét hann vita af minni afstöðu....eitt leiddi af öðru og áður en ég vissi af var ég búin að samþykkja að koma í "stuðningsliðið" hans og hjálpa til í prófkjörsbaráttunni.....og lenti svo í vinningsliðinu, aldrei slíku vant.
Þetta var ekki "harðsnúið" stuðningslið eins og sumir vilja meina. Aðallega voru þetta vinir og vandamenn Árna Páls, yndislegt fólk sem lét aldrei styggðaryrði falla, hvorki um pólitíska andstæðinga né samherja sem voru í baráttu um sama sæti.
Eftir þessi kynni mín af Árna Páli og hans afstöðu til manna og málefna, vona ég að hann verði einn af forystufólki Samfylkingarinnar eftir landsfund hennar síðar í þessum mánuði.
Ég sagði hérna áðan að ég væri ekki viss um hvað ég ætlaði að kjósa í komandi kosningum en ég gekk í Samfylkinguna til að geta haft áhrif á uppröðun fólks á framboðslista hennar hér í Reykjavík (liður í persónukjöri), en verð að viðurkenna að ég ætti mjög erfitt með að kjósa lista með Össur í öndvegi....vona bara að hann lendi sunnan megin í Reykjavík, þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því.
P.s. svo á náttúrulega ennþá eftir að samþykkja þetta frumvarp um greiðsluaðlögun og ég á líka eftir að kynna mér það í endanlegri útgáfu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
8.3.2009 | 00:49
8. mars - Alþjóðlegur baráttudagur kvenna.
Hugmyndina að sérstökum baráttudegi kvenna átti Clara Zetkin, þýsk kvenréttindakona og sósíalisti, sem bar hana fyrst upp á fundi Alþjóðasamtaka sósíalískra kvenna sem haldinn var í Kaupmannahöfn árið 1910. Þann fund sóttu 130 konur frá 16 löndum. sjá meira hér.
Þær voru framsýnar og flottar þessar konur sem mótmæltu á götum New York árið 1913. Pilsaþyturinn hefur örugglega hljómað jafnvel og búsáhaldatónlist okkar byltingar
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars 2009 |
Dagskrá verður í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 14:00, undir yfirskriftinni: Breytt samfélag - aukinn jöfnuð!
Fundarstjóri: Halldóra Friðjónsdóttir, form. jafnréttisnefndar BHM
Ávörp flytja (í stafrófsröð):
- Eyja M. Brynjarsdóttir, heimspekingur
- Lárus Páll Birgisson, sjúkraliði
- Maria del Pilar Acosta, í stjórn Samtaka kvenna af erlendum uppruna
- María S. Gunnarsdóttir, form. Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK
- Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
- Steinunn Gunnlaugsdóttir
Vox feminae syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur
Dansatriði frá Kúbu.
Ljóðalestur.
Allir velkomnir
/////////////////////////////////////////////////////////////////////
Afmælisdagar jafnréttissinnuðu kvennanna Elínar Bergsdóttur og Jónu Láru Sveinbjörnsdóttur mynda umgjörð um alþjóðlegan baráttudag kvenna
Elsku Ellý mágkona, til hamingju með afmælið þitt í gær
Elsku Jóna Lára, til hamingju með þitt afmæli á morgun
Ég óska öllum baráttukonum til hamingju með daginn í dag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
6.3.2009 | 16:51
Lýðræðið getur verið dýrt..
Geir Hilmar. Þetta veistu, því til þess að flokkurinn þinn geti tekið þátt í lýðræðinu, þarf þjóðin að styrkja ykkur um háar upphæðir árlega....að auki þarftu að snapa fullt af pening frá velviljuðum auðmönnum til að þú og þinn flokkur getið tekið þátt
Ég legg til að þú Geir Hilmar, leggir til að í endurskoðaðri stjórnarskrá verði þingmönnum alþingis fækkað...sparnaður þar. Láttu það vera þitt síðasta verk Við þurfum ekki svona margar rándýrar blaðurskjóður á þing.
Þú hefur svo margoft sagt okkur það Geir Hilmar, að lýðræðið kosti peninga. Er eitthvað erfiðara að kyngja því núna, þegar þú þarft ekki lengur á því að halda? Þ.e. lýðræðinu eða peningunum fyrir því
Telur stjórnlagaþing kosta meira en milljarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.3.2009 | 16:03
Nýtt Ísland í Vesturheimi??
"Stjórnvöld í Manitobafylki munu gefa út tímabundin atvinnuleyfi fyrir faglærða Íslendinga samkvæmt samkomulagi, sem stjórnvöld á Íslandi og í Manitoba hafa gert með sér".
Er þetta tálsýn, lausn og/eða veruleiki morgundagsins?
Verður "Nýja Ísland" margra Íslendinga á slóðum gamalla vesturfara?
Ég er orðin ansi þreytt klisjunni um "nýtt Ísland" á sama tíma og ekkert er aðhafst í átt til breytinga hér á landi. Held hreinlega að þetta hugtak sé bara tálsýn, sem frambjóðendur allra flokka eiga eftir að nýta sér í botn.
Við getum öll látið okkur dreyma um morgundaginn en það er bara staðreynd að það er dagurinn í dag sem skiptir mestu máli. Þingmenn farið að vinna
Everybody talks about a new world in the morning. A new world in the morning so they say.
I, myself don't talk about a new world in the morning. A new world in the morning, that's today.
And I can feel a new tomorrow comin' on.
And I don't know why I have to make a song. Everybody talks a bout a new world in the morning. New world in the morning takes so long.
I met a man who had a dream he had since he was twenty. I met that man when he was eighty-one. He said too many people just stand and wait up til the mornin', Don't they know tomorrow never comes.
And he would feel a new tomorrow coming on. And when he'd smile his eyes would twinkle up in thought. Everybody talks about a new world in the morning. New world in the morning never comes.
And I can feel a new tomorrow coming on.
And I don't know why I have to make a song. Everybody talks about a new world in the morning. New world in the morning takes so long.
Tímabundin atvinnuleyfi í Manitoba | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
4.3.2009 | 14:12
Tónlistarhús og vöruskiptajöfnuður!
"Afgangur á vöruskiptum í febrúar"
Þetta er gleðileg frétt og þá er um að gera að staldra aðeins við hana, ekki veitir af.
Í febrúar fyrir ári síðan, þegar bankarnir voru í fyrirrúmi og útrás þeirra í hámarki með stuðningi ráðamanna að meðtöldum forseta voru vöruskiptin óhagstæð okkur íslendingum um ca. 12,5 milljarða. Skv. bráðabirgðatölum fyrir febrúar á þessu ári eru vöruskiptin u.þ.b. 6 milljörðum okkur í vil......fjárglæframenn hafa um stund verið settir af og vonandi fyrir fullt og allt.
Við höfum náttúrulega ekkert leyfi til að kalla okkur "sjálfstæða þjóð" ef við getum ekki séð fyrir okkur sjálf og það gerum við með framleiðslu og sölu á gjaldeyrisskapandi afurðum en ekki fjárhættuspili bankadrengja og annarra fjárglæframanna.
Mitt í hinu meinta góðæri var ákveðið að við þessi auðuga, gáfaða og menningarlega sinnaða þjóð yrðum að eignast almennilegt tónlistarhús...ekki bara eitt, því helst þurfti að koma upp svona "menningarhúsum" í hverju bæjarfélagi þar sem íbúafjöldinn næði einu þúsundi
Við vorum jú komin á spjöld "heimsmenningarinnar" með framlagi Bjarkar og Sigurrósar. Ekki það að þau væru neitt sérstaklega að leggja að okkur að byggja fyrir þau hallir, því hingað til hafa kirkjur og opin græn svæði dugað þeim ágætlega til að koma list sinni á framfæri
Bygging tónlistarhússins fór því á fullt en listunnandi bankamenn, sem ætluðu með framlagi sínu að tryggja sjálfum sér ódauðlegt minnismerki á við Óperuhús Ástrala í Sydney höfðu víst aðeins misreiknað auð sinn.....hann var jú bara loftbóla
Nú ætla yfirvöld borgar og þjóðar að "klára verkið", en ansi er ég hrædd um að þeirra "minnismerki" komi til með að verða okkur dýrt ef ekki verður hugað að alvöru fjármagni....þið vitið þetta sem verður til við vinnslu og sölu útflutningsafurða.
Ég er því með tillögu. Gerum húsið þannig úr garði að þar verði hægt að reka fiskvinnslu næstu 10 til 15 árin. Húsið er vel staðsett til þess arna. Aukum fiskveiðiheimildir smábátasjómanna og fullvinnum aflann í tónlistarhúsinu.
Við þetta verður til alvöru fjármagn, sem nýtist bæði borg og þjóð.
Þetta mun líka verða okkur í hag hvað varðar vöruskiptajöfnuð, því í stað þess að flytja inn útlenda listamenn og kaupa hljóðfæri frá útlöndum fyrir dýran gjaldeyri, þá framleiðum við gjaldeyrin á færibandi fiskvinnslunnar
Þegar kreppan er yfirstaðin og þjóðin hefur fundið rætur sínar, getum við farið að huga að "hámenningunni". Þá getum við breytt innvolsi hússins og haldið Júróvision með stæl.....en munum að undirstaða okkar og draumar byggjast á undirstöðuatvinnuvegum okkar og að: Lífið er Saltfiskur
P.s. Er það ekki rétt munað hjá mér að Listasafn Íslands er staðsett í gömlu frystihúsi?
Peninga/flæðilínumyndir fékk ég að birta með góðfúslegu leyfi bloggvinar míns Róberts, sem heldur úti síðunni sudureyri.....hinum "nappaði" ég án leyfis
Smá viðbót kl. 17:44. Ætlum við virkilega að hafa þetta svona: Siglt úr landi með óunninn aflann!
Afgangur á vöruskiptum í febrúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
3.3.2009 | 20:46
Refsingin verður ákveðin í kjörklefanum.....
Vona ég. Það er orðið helv. hart, þegar maður getur ekki tekið þessar afsökunarbeiðnir alvarlega. Bæði er það hvernig þær koma fram og eins tímasetningin.
Jú, jú, ég skal sko alveg biðjast afsökunar fyrir mína hönd......en hinir voru samt miklu meiri sökudólgar "Ekki er það einum bót þótt annar sé verri", er það nokkuð?
Svo er það tímasetningin. Frambjóðendur til alþingis þurfa ekkert að velkjast í vafa um að kjósendur hafa engu gleymt og vita upp á hár hverja þeir vilja ekki á "næstu vakt ". Löngu tímabærar afsökunarbeiðnir munu ekki hafa nein áhrif þar á núna.
Í Guðs bænum nýtið þann tíma, sem eftir er af þinginu til annars en að flytja framboðsræður.
Sekt og sakleysi á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson