Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Skelfilegt ástand að mati tuðara!

Ég var að hugsa um að láta síðustu færslu mína standa í einhvern tíma og vonaði að bjartsýniskastið, sem fram kemur í henni myndi myndi duga mér í einhvern tíma.  Það er nefnilega talað um okkur sem gagnrýnum aðgerðir/aðgerðaleysi stjórnvalda, sem tuðara dauðans og ég "grínstrumpurinn" er sko ekki ein af þeim!Woundering

Í hvert sinn, sem ég fletti dagblöðum, horfi á fréttir eða eins og ég gerði í gærkvöldi, horfði á "Silfrið" hans Egils, þá hrapa ég niður í "ægisvart" þunglindi og tuðarinn í mér brýst fram.

Sálfræðingurinn, sagði að "trukkabílstjórnar" kynnu ekki stradigíuna við mótmæli.  Þeir hefðu eytt sínum sparnaði og lánum í kaup á rándýrum atvinnutækjum og sætu uppi með það, hann aftur á móti hefði menntað sig og þess vegna veit hann sjálfsagt allt um stradegíu mótmæla!GetLost

Þingfréttaritarinn vissi af "mótmælaskóla" einhverstaðar í Afríku held ég að hún hafi sagt og dró upp fagra mynd af "faglegum mótmælum"!Sleeping

Þingmaðurinn dirfðist að minnast á undir kraumandi óánægju þegnanna, en var kveðinn í kútinn af "faglega" "stradegíu" fólkinu!

Rithöfundurinn was my man!  Mikið vildi ég að það hefði tekist að koma honum á þing á sínum tíma.  Hann virðist hafa góða sýn á þankagang þjóðarinnar.Cool

Gafst upp í miðju viðtali við utanríkisráðherrann, því það læknaði mig síður en svo af svartsýnis tuðinu.

En er nokkuð skrítið að við tuðarar séum langt niðri.  Hér eru sýnishorn af fréttum dagsins á Mbl.:

Helst í fréttum

Ég er sammála talsmönnum ASÍ um að verðbólgan sé skelfileg.  Verða þá sett lög á flugstjóra og flugfreyjur. Landsspítala "háskólasjúkrahúsi" verður kannski bara lokað og aðrir væntanlegir kröfuhafar um betri kjör verða bara múlbundnir eða gasaðir???.Whistling

 Nú hafa launþegasamtök 2 daga til að koma sínum umbjóðendum í gegnum "mótmælendanámskeið" sem kennir okkur, hinum tuðandi almenningi "stradegíuna" fyrir 1. maí. 

"Fram þjáðir menn í þúsund löndum"

P.s. Svo eru Norsarar farnir að stela frá okkur!  Þeir halda kannski að Haarde hafi fengið yfirráðin fyrir hönd "föðurlandsins". Tounge


mbl.is Verðbólgan „skelfileg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarið er komið....

og tilhlökkunin mikil hjá flestum.  Spáð er góðu veðriSmile, en miðað við hitatölur á landinu síðustu nótt tel ég líklegt að Sólin verði á norður helmingi eyjunnar okkar í sumarWhistling

En hvað sem veðri líður mun þessi árstíð heita Sumar með stóru S.

Hjólið hennar Kristrúnar

 

 

 

 

 

 

 

 Kristrún Amelía fer að taka fram hjólið sittSmile.

Nýji fararskjótinn hennar Ericu Óskar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Erica Ósk er kominn upp úr vagninum og sest í kerruSmile.

Traktorsbílstjórinn - Róbert

 

 

 

 

 

 

 

 Róbert Skúli skreppur örugglega í sveitina og tekur til hendinniCool.

Hjólagarpurinn Róbert Skúli

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þetta verður fararskjóti Róberts Skúla í borginniWink.

En amman er að spá í labba svolítið í sumarCool, bara spá í það skoBlush.  Við sjáum tilWink.

Gleðilegt og gott sumar, hvernig sem viðrarWhistling.


Verða mótmæli leyfð þann 1. maí?

1. Maí er eftir viku.  Það verður forvitnilegt að sjá hvort hin hefðbundna "skrúðganga" breytist nú loksins í alvöru KRÖFUGÖNGU, þar sem gengdarlausum hækkunum á nauðsynjum verður MÓTMÆLT, eins og óskrifuð lög gera ráð fyrir og er þá tími til kominn.

Er ekki kominn tími til að "landinn" sýni nú loksins hvað í honum býr og mótmæli þeim gengdarlausu hækkunum, sem dynja á okkur þessa dagana.  Heyrði í konu í gær sem fer reglulega í litun og plokkun.  Hækkunin frá síðasta mánuði var rosaleg og í raun alveg út í hróa.  Núna kostuðu herlegheitin kr. 3.300 en kostuðu í síðasta mánuði kr. 2.200!!!  Þetta er bara oggulítið dæmi um það hvernig sumir notfæra sér "hækkun í hafi" og hafa hingað til komist upp með það Angry.

Ég held að reiði almennings birtist að einhverju leiti í samstöðu þeirra með bílstjórum og það væri gott ef þessi vakning verður til þess að launþegar sýni þá samstöðu sem þarf á baráttudegi verkalýðsins því oft var þörf en nú er nauðsyn.  

Launþegar allra stétta, sameinumst og stöndum vörð um réttlætið.  Af nægu er að taka.  Vaxtahækkanir, matvöruverðshækkanir og allt sem getur hækkað hefur hækkað.........nema launin, þau standa í stað og lækka í verðgildi.  

Atvinnubílstjórar, haldið áfram að halda okkur hinum við efniðWink.


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göltur v Súgandafjörð

Ég á mér uppáhaldsfjall.  Fjallið heitir Göltur og er það vinstra megin þegar siglt er inn Súgandafjörð.  Norðanmegin í þessu fjalli er lítil vík, sem heitir Keflavík og þar er Galtarviti.  Veðurathuganir eru ekki lengur stundaðar í Galtarvitanum, þannig að það er svolítið langt síðan maður hefur heyrt:  Galtarviti, norð, norð, vestan 8, hiti 2 stigErrm.  Það eru miklu hlýlegri veðurlýsingarnar frá veðurathugunarstöð Ásthildar í Kúluhúsinu á Ísafirði, og þær duga mérWink, en kannski ekki sjófarendum og þeir eru æði margir þarna um sumarmánuðina.

Ég hef einu sinni gengið út eftir Galtarfjallinu og alveg út á enda.  Skátafélagið Glaðherjar á Suðureyri stóð fyrir þeirri ferð með Birki Friðbertsson í Birkihlið, sem fararstjóra.  Við púkarnir í hópnum vorum nokkuð viss um að þetta hvíta, sem við sáum við sjóndeildarhringinn væri GrænlandTounge, þeir fullorðnu voru ekkert að draga úr því, sögðu að þetta væri í það minnsta hluti af Grænlandi, sem sagt Ísjaki, sem þeir vonuðu að snéri nú bara heim á leið aftur.

Eftir nokkrar e-mail sendingar á milli mín og bloggvinar míns og góðs félaga, Róberts Schmidt, hefur okkur tekist að prýða síðuna mína flottri mynd af Súgandafirðinum með Göltinn í forgrunni.  Það er tilefni þessarar færslu.

Súgandafjörður með Göltinn í forgrunni

Súgandafjörður

GÖLTUR

Gölturinn frá Halldóru Hannesar

Göltur úr hafinu gnæfir hátt,

gnípuna ber við loftið blátt, 

jafnvægi og tign er í fjallsins fasi,

hér fjarar aldrei í tímans glasi,

því hamrarnir standast tímans tönn,

sem tinna þeir brjóta af sér klaka og fönn. 

(Guðmundur Ágústsson orti ljóðið og myndina tók Halldóra Hannesdóttir)  


Einkavæðing fyrir ESB aðild?

Getur það verið að samhliða viðræðum um núverandi ríkisstjórnarsamstarf hafi verið unnið að öðrum sáttmála á bak við tjöldin?  Einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar, með millilendingu í h/f ingu fæst fyrir Evrópusambandsaðildar-umsókn!

Ætli kjörnir fulltrúar viðkomandi flokka viti af þessu? 


mbl.is Landspítalinn opinbert hlutafélag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður þetta sumar hinna mörgu verkfalla?

Ég tek undir með nöfnu minni hjá Flugfreyjufélagi Íslands, sem lýsir yfir undrun á því að ekkert fundarboð hafi borist í dag frá ríkissáttasemjara í kjaradeilu flugfreyja og flugþjóna við Icelandair.

Ég hef það á tilfinningunni að Ásmundur (er hann ekki annars yfirsáttasemjari?), ætli að reyna að endurheimta dýrðarljómann sem hann baðaði sig í forðum daga, þegar hinir ríkisstjórnarvænu þjóðarsáttarsamningar voru settir á láglaunafólk þessa lands.Angry  Ég mun alltaf muna eftir konu, sem féll í grát, þegar hún opnaði fyrsta launaseðilinn eftir þessa margumræddu samninga, hún hafði lækkað í launumCrying.  Hún vann við fiskvinnslu, var dugleg og bónusgreiðslur höfðu verið eftir því.  Nú brá svo við að elsku karlinn (og góðvinur pabba míns), hann Einar Oddur (blessuð sé minning hans), fiskvinnslufrömuður á Flateyri, ákvað að taka hluta af bónusstuðli inn í tímakaupið og minnka vægi bónusgreiðslna!  Gott og vel tímakaupið hækkaði, en vægi bónusgreiðslna lækkaði.  Duglega konan hafði í rauninni borgað sjálf þá hækkun sem hún fékk á tímakaupið og þar sem bónusvægið minnkaði, lækkaðu heildarlaun hennar.  Launaútgjöld fiskvinnslunnar lækkuðu eða stóðu í stað!

Ég skil vel aðkomu Einars Odds að þessum svokölluðu þjóðarsáttarsamningum en ég mun seint fyrirgefa forystumanni launþegahreyfingarinnar, Ásmundi Stefánssyni þennan gjörning. 

Annars fór ég á trúnaðarmannafund hjá mínu stéttarfélagi í síðustu viku og ég verð að segja að ég er ekkert svakalega bjartsýn fyrir hönd okkar sjúkraliða eftir þann fundAngry.  Ekki mikið að frétta frá samninganefndinni!!  En ítrekað bent á gylliboð einhvers flugfélags okkur til handaBlush.  En við förum nú varla langt á núverandi launakjörum og því síður ef flugfreyjurnar eru að fara í verkfallWink.

Áfram flugfreyjur! 


mbl.is Ekkert fundarboð hefur borist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að "grúska" í gamalli tíð!

Ég geri rosalega lítið þessa dagana.  Hef verið í "lamasessi" síðan um Páska og ekki getað stundað mína gefandi og skemmtilegu vinnu.  Þetta hefur gefið mér tækifæri til að horfa vel í kringum mig á heimilinu og sjá "allt" sem ég þyrfti nú að gera.  Nú gæti ég t.d. verið í "vorverkunum", en það eru þessi þrif, sem ég tel mér alltaf trú um fyrir Jólin að ég geri bara á vorinBlush.  En déskotans öxlin, er ekkert betri til heimilisverka heima hjá mér en á vinnustað, þannig að ég geri ekki neittErrm.

Ég gæti bloggað, eins oft og ég sest við tölvuna (sem er æði oft), en það er eins og hugurinn tæmist í þessu aðgerðaleysi.  Sumir kalla það "bloggstíflu" en í mínu tilfelli held ég að það sé algert "sinnuleysi", vegna skorts á framkvæmdagetu.  Einhverstaðar segir að "hugur og hendi fylgist að", en þegar höndin getur ekki framkvæmt það sem hugurinn vill, verður maður hálf hokinn um tíma....eða þar til það venst (það er vont en það venst syndrómið!).

Ég hef verið að "glugga" í gamla pappíra undanfarna daga, sem komu í mína umsjá eftir að foreldrar mínir féllu frá og það má eiginlega segja að ég hafi horfið heila öld aftur í tímannSmile.  Þetta er sko skemmtilegra en að fylgjast með fréttum líðandi stundar.  Ef ég byggi yfir meiri tæknikunnáttu, væri ég svo sannarlega búin að deila einhverju úr þessum fjársjóði með ykkur.  En koma tímar, koma ráð.

Mig langar þó til að deila með ykkur "kveðju" af 100 ára gömlu póstkorti, sem afi minn, Albert Finnur Jóhannesson fékk, frá frænda sínum og "kunningja" Guðmundi Kristjánssyni, sem þá var staddur í Danaveldi:

Albert F. Jóhannesson,

Suðureyri. 

Góði frændi og kunningi.

Þökk fyrir allt gamalt og gott.  Hvernig hefir þú það annars núna.  Jeg hef það heldur gott.  Mikið er hjer af stúlkum skal jeg segja þjer, en þó vantar mikið á að þær sjeu eins laglegar og heima.

Hvernig gengur annars með kærustuna þína, heilsaðu henni og fleirum frá mér.

Ertu hættur að kveða gamlar vísur í rökkrunum og fleira?  Jeg gæti vel liðið að þú skrifaðir mjer fáeinar línur ef þú hefðir list til.

Jeg óska þjer æfinlega alls góðs, vertu sæll,

G. Kristjánsson. 

Á framsíðu þessa póstkorts, er síðan mynd af sendandanum (rosalega flottur náungi!), þar sem hann skrifar:

Þú þekkir peiann vona jeg.

sami. 

Fyrir Hallgerði, mína ljúfu bloggvinkonu:  Albert Finnur, afi minn og Guðmundur Kristjánsson voru bræðrasynir.  Synir Jóhannesar Alberssonar og Kristjáns Albertssonar, en afi þeirra Albert Jónsson, var oft nefndur faðir Suðureyrar ættleggsins!   Guðmundur þessi var bróðir Kristjáns Alberts Kristjánssonar, langafa barnanna þinnaHeart.


Gagn og gaman!

Róbert Skúli, 3ja ára sonar sonur minn er hjá mér núna og við erum búin að eiga saman yndislegt og fræðandi kvöld.  Á þessari mynd er er hann loksins búin að ná þeim langþráða áfanga að verða 3ja áraWizard.

3ja ára

Við horfðum saman á Útsvarið og Söngvakeppni Framhaldsskólanna með hléum, því hann þurfti líka að kenna ömmu sinni á Bubbi byggir tölvuna sína.  Tölva þessi er algjört undratæki.  Hann fékkBubbi Byggir hana í afmælisgjöf í byrjun febrúar og í dag kann hann alla stafina og tölustafina, bæði á ensku og íslensku!  Hann á nú eina ætt að rekja til Englands svo það er nú í lagi að hafa tilfinningu fyrir því máli líkaWink.

Á myndinni hér til hliðar er hann að kenna Jóni Eric frænda sínum og Ericu Ósk frænku sinni á tölvuna sína. 

Þegar í ljós kom, að hann var farin að þylja stafrófið á ensku var farið að halda að honum því íslenska og í kvöld þegar hann var að stafa (lesa) fyrir ömmu sína, gat hann alveg aðskilið tungumálinWhistling.

Nú sé ég fram á að ég þarf að fara að sanka að mér bókum, sem kenna lestur á skemmtilegan hátt, því það er náttúrulega um að gera að kenna þetta meðan áhugi er fyrir hendi og verkefnið er skemmtilegt, en ágætu foreldrar: ég lofa að þröngva þessu ekki upp á hannSmile.

Í gær átti ég svo góða stund með sonardætrunum, Kristrúnu Amelíu og Ericu Ósk, þannig að þessi helgi er bara búin að vera nokkuð fjölskylduvæn hjá mérHeart.

Kristrún Amelía og Erica Ósk með ömmu sinni.

 Næstu daga er ég svo að hugsa um að finna fleiri raddir í "grátkór" fjármálaráðherraPolice.


Eru launþegar hættulegir?

Nú standa fyrir dyrum kjarasamningar við fjölmennustu stéttir ríkisstarfsmanna.  Að stærstum hluta eru þetta hinar svokölluðu "kvennastéttir".  Kennarar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar eru að fara í endurnýjun sinna kjarasamninga. 

Grátkórar, koma fram fyrir hönd ríkissjóðs og munu á næstu mánuðum verða háværari og "falskari" þannig að engin mun leggja við hlustir, nema "innvígðir" og "innmúraðir", sem flestir hafa lífsafkomu sína af verslun með "áhættu" verðbréf.Frown

Stjórnvöld eru í startholunum og munu koma bönkum og öðrum verðbréfasölum til hjálpar við fyrsta mjálm!Whistling

Meðan núverandi stjórnvöld voru ennþá á biðilsbuxunum til kjósenda var öldin önnurJoyful

Hjá Seðlabankanum starfa "reynsluboltar", sem vita að kjarasamningar geta verið stórhættulegir, og þá sérstaklega gagnvart, fólkinu, sem samið var fyrirWoundering.

Launaskrið er næstum því óþekkt fyrirbrigði hjá "kvennastéttum" ríkis og borgar, en samt hafa reynsluboltarnir hjá Seðlabankanum fundið það hjá einhverjum láglaunastéttum :

"Á hinn bóginn er líklegt að hækkun lægstu launa skríði ekki jafn ört upp launastigann á næstu árum og gerðist árin 2006 og 2007 þegar mikill skortur var á vinnuafli, samkvæmt Peningamálum".

Ætli Eflingarstarfsmenn í heilbrigðiskerfinu hafi orðið varir við þetta launaskrið???


mbl.is Kjarasamningar fela í sér hættu á launaskriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirtíðaspenna......!!!

Ég fékk eftirfarandi bréf í e-maili frá vinkonu minni í Ástralíu í dag.  Íslenskar konur hafa á stundum gert grín að, eða pirrað sig á auglýsingum frá framleiðendum dömubinda.  Sumar láta sér nægja að skipta um stöð þegar svona auglýsingar eru sýndar, aðrar loka augum og halda fyrir eyru, en svo eru til konur sem "henda sér í vegg"!!Wink

Wendi Aarons frá Austin Texas, tekur þetta skrefinu lengra......................LoLWhistling

 

MENSTRUAL LAUGHTER !

Always ultra

 


 

 
 

This is an actual letter from an Austin woman sent to American company Proctor and Gamble regarding their feminine products. She really gets rolling after the first paragraph ... PC Magazine's 2007 editors' choice for best webmail-award-winning letter.

 

Dear Mr. Thatcher,

 

I have been a loyal user of your 'Always' maxipads for over 20 years and I appreciate many of their features. Why, without the Leak Guard Core or Dri-Weave absorbency, I'd probably never go horseback riding or salsa dancing, and I'd certainly steer clear of running up and down the beach in tight, white shorts. But my favorite feature has to be your revolutionary Flexi-Wings. Kudos on being the only company smart enough to realize how crucial it is that maxi pads be aerodynamic. I can't tell you how safe and secure I feel each month knowing there's a little F-16 in my pants.

 

Have you ever had a menstrual period, Mr.Thatcher? Ever suffered from the curse'? I'm guessing you haven't. Well, my time of the month is starting right now. As I type, I can already feel hormonal forces violently surging through my body. Just a few minutes from now, my body will adjust and I'll be transformed into what my husband likes to call 'an inbred hillbilly with knife skills.

 

Isn't the human body amazing? As Brand Manager in the Feminine-Hygiene Division, you've no doubt seen quite a bit of research on what exactly happens during your customers monthly visits from 'Aunt Flo'. Therefore, you must know about the bloating, puffiness, and cramping we endure, and about our intense mood swings, crying jags, and out-of-control behavior. You surely realize it's a tough time for most women. In fact, only last week,my friend Jennifer fought the violent urge to shove her boyfriend's testicles into a George Foreman Grill just because he told her he thought Grey's Anatomy was written by drunken chimps. Crazy!

 

The point is, sir, you of all people must realize that America is just crawling with homicidal maniacs in Capri pants...Which brings me to the reason for my letter. Last month, while in the throes of cramping so painful I wanted to reach inside my body and yank out my uterus, I opened an Always maxi-pad, and there, printed on the adhesive backing, were these words: 'Have a Happy Period.' Are you fu*ing kidding me? What I mean is, does any part of your tiny middle-manager brain really think happiness --actual smiling, laughing happiness is possible during a menstrual period? Did anything mentioned above sound the least bit pleasurable? Well, did it, James?

 

FYI, unless you're some kind of sick S&M freak girl, there will never be anything 'happy' about a day in which you have to jack yourself up on Motrin and Kahlua and lock yourself in your house just so you don't march down to the local Walgreen's armed with a hunting rifle and a sketchy plan to end your life in a blaze of glory. For the love of God, pull your head out, man! If you just have to slap a moronic message on a maxipad, wouldn't it make more sense to say something that's actually pertinent, like 'Put down the Hammer' or ‘

Vehicular Manslaughter is Wrong', or are you just picking on us?

 

Sir, please inform your Accounting Department that, effective immediately, there will be an $8 drop in monthly profits, for I have chosen to take my maxi-pad business elsewhere. And though I will certainly miss your Flexi-Wings, I will not for one minute miss your brand of condescending bullsh*t. And that's a promise I will keep. Always....

 

Best,

Wendi Aarons

Austin, TX


Go Wendi!!

Takk fyrir þetta Helga mínSmile

 


Næsta síða »

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband