Leita í fréttum mbl.is

Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilega páska

Ég vil bara óska þér gleðilegra páska kæra bloggvinkona. Hafðu það sem best um hátíðarnar.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, sun. 12. apr. 2009

TIL HAMINGJU

Komdu sæl gamla vinkona. Ef það er rétt hjá mér átt þú afmæli í dag, ég óska þér til hamingju með daginn. Jólakveðja Skúlla

Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 8. des. 2008

Sigrún Jónsdóttir

Benni minn...

Ég væri sko alveg til í það.....Veljum okkur svo fallegan Norskan fjörð og setjumst þar að....

Sigrún Jónsdóttir, fim. 13. nóv. 2008

Göngum Noregskonungi á hönd í annað skiptið

Gamli sáttmáli var samkomulag Íslendinga við Hákon gamla, Noregskonung. Sáttmálinn var gerður 1262 og fól hann það í sér, að konungur Noregs væri jafnframt konungur Íslands og að Íslendingar væru skattþegnar Noregskonungs. Á móti skuldbatt Noregskonungur sig til þess að halda uppi siglingum til Íslands og skyldu ekki færri en sex skip koma til Íslands frá Noregi árlega með nauðsynjavarning. Þótti þetta vera misjafnlega efnt af hálfu Noregskonungs. Ekki var lokið við að undirrita samninginn fyrr en árið 1264 þegar Magnús lagabætir var orðinn konungur í Noregi, og er því venjan að tala um að Íslendingar hafi gengið Noregskonungi á hönd árið 1262/64. Konungur taldi Gamla sáttmála fallinn úr gildi eftir Kópavogsfundinn 1662 og þegar frelsisbarátta Íslendinga stóð sem hæst á 19. öld undir forystu Jóns Sigurðssonar forseta, vísaði hann oftar en ekki til ákvæða Gamla sáttmála og hélt því alltaf fram að hann væri í fullu gildi, þó að það væri mjög umdeilt. Þetta var samt hans sterkasta vopn og ásamt öðrum reyndist það bíta. Texti Gamla sáttmála er svohljóðandi: Í nafni föður ok sonar ok heilags anda. Var þetta játað ok samþykt af öllum almúga á Íslandi á Alþingi með lófataki: At vér bjóðum (virðuligum herra) Hákoni konungi hinum kórónaða vára þjónustu undir þá grein laganna, er samþykt er milli konungdómsins ok þegnanna, þeirra er landit byggja. Er sú hin fyrsta grein, at vér viljum gjalda konungi skatt, ok þingfararkaup slíkt sem lögbók váttar, ok alla þegnskyldu, svá framt sem haldin er við oss þau heit, sem í móti skattinum var játað. Utanstefningar viljum vér aungvar hafa, utan þeir menn, sem dæmdir verða af várum mönnum á Alþingi í burt af landinu. Item at íslenzkir sé lögmenn og sýslumenn á landi váru af þeirra ættum, sem at fornu hafa goðorðin upp gefit. Item at sex hafskip gangi á hverju ári til landsins forfallalaust. Erfðir skulu ok upp gefast fyrir íslenzkum mönnum í Noregi, hversu lengi sem staðið hafa, þegar réttir arfar koma til eðr þeirra umboðsmenn. Landaurar skulu upp gefast. Slíkan rétt skulu hafa íslenzkir menn í Noregi sem þeir hafa beztan haft. Item at konungr láti oss ná íslenzkum lögum ok friði eptir því sem lögbók váttar ok hann hefir boðið í sínum bréfum, (sem guð gefr honum framast afl til). Jarl viljum vér hafa yfir oss meðan hann heldr trúnað við yðr, en frið við oss. Halda skulum vér ok vorir arfar allan trúnað við yðr meðan þér ok yðrir arfar halda við oss þessa sættargerð, en lausir, ef rofin verðr af yðvarri hálfu at beztu manna yfirsýn. Anno M. ijc lxiij. Hér eptir er eiðr Íslendinga. Til þess legg ek hönd á helga bók ok því skýt ek til guðs at ek sver herra Hákoni konungi ok Magnúsi konungi land ok þegna ok æfinlegan skatt með slíkri skipan ok máldaga sem nú erum vér á sáttir orðnir ok sáttmálsbréf várt váttar. Guð sé mér hollr, ef ek satt segi, gramr ef ek lýg.

Benni Brunó (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 11. nóv. 2008

Gitta Vinkona

Hæ vinkona. Sorry, ég les og les.....en kvitta aldrei! En núna: kvitt-kvitt-kvitt-kvitt-kvitt, er ég skuldlaus á kvittinu ,-) Sakna þín mikið!

Gitta (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 16. sept. 2008

Sigrún Jónsdóttir

Úbs.....

Ég gleymi alltaf að skoða gestabókina mína!!! Elsku Skúlína og Jóna gaman að "heyra" í ykkur og takk kærlega fyrir kveðjur.

Sigrún Jónsdóttir, þri. 15. júlí 2008

Heimsókn

Halló Sigrún gaman að sjá hvað strákarnir eru flottir þeir hafa greinilega fengið góða liðsögn frá Mömmu,láttu nú sjá þig á skaganum kveðja Jóna

Jóna Adolfsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. júlí 2008

Komdu sæl vinkona

Hæ Hæ gamla vinkona þetta er frábær síða hjá þér og maður sér að þú ert alltaf jafn dugleg að skrifa. Það er mjög gaman að sjá hvað strákarnir þínir eru duglegi og miklir fjölskyldu menn til hamingju með allt þín gamla vinkona Skúlína H

Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 25. júní 2008

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilegan 19. júní

Gleðilegan 19. júní bloggvinkona :)

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fim. 19. júní 2008

Marta smarta

Velkomin.

Já takk, gaman að vera þín bloggvinkona, eitthvað minnir mig að bæði Hallveig og Ásrún hafi nú verið að reyna að verða tengdadætur þínar á sínum tíma :-)). En, eins og þær segja, nú erum við öll "vinkonur" þ.e. Jón Eric, Guðrún og þær. Verðum í bandi. Kv Marta

Marta smarta, þri. 13. maí 2008

Allt finnur maður á netinu

og líka bloggið þitt. Ótrúlega skemmti ég mér vel við lesturinn. Skoðaði líka myndir og það eru meira að segja tvær myndir af mér :) KVeðja Ína Rut...

Ína Rut Stefánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 21. mars 2008

Gitta Vinkona

Hæ ljúfust! Rek trínið uppúr kassa númer 107, til að segja þér að mín verðu á svæðinu eftir nákvæmlega viku! Elska skrifin þín og sárnar mikið að vera ekki frá Suðureyri, það hefur verið frábært! Verð að láta mér nægja að vera frá Keldstrup og Akureyri! Sakna þín og hlakka mega mikið til að knúsa þig í næstu viku! Fulla ferð áfram!

Gitta Vinkona (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 5. mars 2008

Kveðja frá Ísafirði

Sæl frænka. Flott síða, gaman að fylgjast með þér og skoða myndirnar. Hittumst bráðlega. Kveðja Maja

María Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 21. feb. 2008

Gitta Vinkona

Bara að segja bless, nú er komið að því! Frí á Kanarí! Síðasti vinnudagur í dag, snöft, snöft, verð aldrei drottning aftur! Skil hvers vegna Magga Þórhildur drottning fer ekki á eftirlaun, það er svo gott að vera drottning! En, lífið bíður uppá svo margt, bara taka við öllu með bros á vör! Sjáumst eftir stuttar ca. 3 vikur! Knús kæra frá okkur Kristjáni

Birgitta Hlín Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 15. feb. 2008

Kveðja af Skaganum

Sæl Sigrún, gaman að fylgjast með þér og því sem þú tekur þér fyrir hendur. Komst ekki á Þorrablótið allt uppselt!!! Sjáumst fljótlega.

Anna Bjarna (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 12. feb. 2008

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Kveðja frá bloggvini

Sæl nýja bloggvinkona. Kvitta fyrir komu minni hér og vonast til að sjá þig á minni síðu af og til.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þri. 12. feb. 2008

takktakk

Leiðinlegt að geta ekki commentað nema vera með blogsíðu sjálfur hjá mogganum, er þetta ekki e-r stilling sem þú getur breytt?

Guðrún Helgadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 8. feb. 2008

Gitta Vinkona

Hæ mín kæra og til lukku með "afkvæmið"! Ég er auðvita afskaplega stolt af þessum heiðri, takk fyrir það! Guð gefi þér fulla ferð í bloggið, ég bíð spennt! Sjáumst svo fljótlega, jíííí, hvað ég hlakka til! Knús, þín Gitta

Birgitta Hlín Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 7. feb. 2008

Ómar Daníel

VeiVeiVeiVei!! en ÓTRÚLEGA GAMAN að þú sért farin að blogga.. :) Gangi þér vel með þetta móðir kær, mun fylgjast spenntur með.

Ómar Daníel (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. feb. 2008

Til lukku

sko þig .. bara orðin stafræn :P til hamingju með bloggið

Jón Eric Halliwell (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. feb. 2008

Hallóhalló

Hvar er allt sem þú þarft að segja??

Guðrún Helgadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. feb. 2008

Hvar er ,hvar er .hvar er bloggid titt hvar er bloggid titt

Sæl Sigrún mín. Fann síduna tína hjá Robba og datt í hug ad kíkja á skrifin en ekkert var ad sjá ?????? Bestu kvedjur til tín mín kæra og hafdu tad sem best. Velkomin á mína sídu blog.central.is/gurrublogg kvedja Gurra

Gudrún Hauksdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 25. jan. 2008

Bloggsíða án bloggs...hmmm!

Sæl Sigrún, Hvurslags er þetta! Þetta er örugglega eina bloggsíðan sem ekki hefur blogg. Þú verður að bæta úr þessu mín kæra og stinga niður penna hið snarasta. Róbert Schmidt

Robbi Schmidt (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 22. jan. 2008

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband