Leita í fréttum mbl.is

Göltur v Súgandafjörð

Ég á mér uppáhaldsfjall.  Fjallið heitir Göltur og er það vinstra megin þegar siglt er inn Súgandafjörð.  Norðanmegin í þessu fjalli er lítil vík, sem heitir Keflavík og þar er Galtarviti.  Veðurathuganir eru ekki lengur stundaðar í Galtarvitanum, þannig að það er svolítið langt síðan maður hefur heyrt:  Galtarviti, norð, norð, vestan 8, hiti 2 stigErrm.  Það eru miklu hlýlegri veðurlýsingarnar frá veðurathugunarstöð Ásthildar í Kúluhúsinu á Ísafirði, og þær duga mérWink, en kannski ekki sjófarendum og þeir eru æði margir þarna um sumarmánuðina.

Ég hef einu sinni gengið út eftir Galtarfjallinu og alveg út á enda.  Skátafélagið Glaðherjar á Suðureyri stóð fyrir þeirri ferð með Birki Friðbertsson í Birkihlið, sem fararstjóra.  Við púkarnir í hópnum vorum nokkuð viss um að þetta hvíta, sem við sáum við sjóndeildarhringinn væri GrænlandTounge, þeir fullorðnu voru ekkert að draga úr því, sögðu að þetta væri í það minnsta hluti af Grænlandi, sem sagt Ísjaki, sem þeir vonuðu að snéri nú bara heim á leið aftur.

Eftir nokkrar e-mail sendingar á milli mín og bloggvinar míns og góðs félaga, Róberts Schmidt, hefur okkur tekist að prýða síðuna mína flottri mynd af Súgandafirðinum með Göltinn í forgrunni.  Það er tilefni þessarar færslu.

Súgandafjörður með Göltinn í forgrunni

Súgandafjörður

GÖLTUR

Gölturinn frá Halldóru Hannesar

Göltur úr hafinu gnæfir hátt,

gnípuna ber við loftið blátt, 

jafnvægi og tign er í fjallsins fasi,

hér fjarar aldrei í tímans glasi,

því hamrarnir standast tímans tönn,

sem tinna þeir brjóta af sér klaka og fönn. 

(Guðmundur Ágústsson orti ljóðið og myndina tók Halldóra Hannesdóttir)  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tignarlegt fjall og gott ljóð. 

Ásdís Sigurðardóttir, 21.4.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Já hann er flottur og tignarlegur Gölturinn okkar, ég mátti til með að senda þér mynd af honum sem ég tók á sjómannadaginn í fyrra

Halldóra Hannesdóttir, 22.4.2008 kl. 11:29

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Halldóra mín, takk fyrir þessa sendingu.  Eins og þú sérð er ég búin að bæta þinni mynd í færsluna!

Sigrún Jónsdóttir, 22.4.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Hehe verði þér að góðu

Halldóra Hannesdóttir, 22.4.2008 kl. 13:16

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottar myndir!

Man einmitt eftir þessari veðurathugunarstöð og röddinni í konunni sem las veðurfregnir á þeim árum....

...Galtarviti - sjór, ládautt, gráð, hiti fjögur stig..........

Skildi ekkert af þessu nema hitastigið og skil ekki enn!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 15:49

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sæl Hrönn, takk fyrir bloggvináttu! (skrifin þín eru flott).

...Svo mátti bóka að það væri rigning eða þoka í GREND!

Sigrún Jónsdóttir, 22.4.2008 kl. 18:35

7 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Kom þarna árið 2000 og þá voru einhverjir hafnardagar eða eitthvað,dorgveiðikeppni og margt annað,en þetta er fallegt fjall þetta Göltur og hver veit nema ég fari þarna vestur og labbi Gölt?

Magnús Paul Korntop, 23.4.2008 kl. 00:23

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

flottar myndir.

Hólmdís Hjartardóttir, 23.4.2008 kl. 01:11

9 identicon

Magnús Paul, þetta kallast "Sæluhelgin" sem þú ert að tala um og hefur hún verið haldin núna í nokkur ár, þá alltaf aðra helgina í júlí svo vertu bara velkominn aftur  Ég verð nú að taka það fram hérna, að alltaf er ég að rekast á fólk sem hefur mætt á "sæluna" ég var að panta mér hjól  um daginn sem er nú ekki í frásögur færandi, en maðurinn sem ég talaði við var nú fljótur að grípa mig þegar hann vissi hvar ég ætti heima, sagðist nú hafa verið svo frægur að hafa komið vestur á sælu árið 2005 hélt hann. Bara gaman að þessu

Halldóra Hannesdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:00

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk

Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 22:49

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já hann er flottur Gölturinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.4.2008 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband