Leita í fréttum mbl.is

Verða mótmæli leyfð þann 1. maí?

1. Maí er eftir viku.  Það verður forvitnilegt að sjá hvort hin hefðbundna "skrúðganga" breytist nú loksins í alvöru KRÖFUGÖNGU, þar sem gengdarlausum hækkunum á nauðsynjum verður MÓTMÆLT, eins og óskrifuð lög gera ráð fyrir og er þá tími til kominn.

Er ekki kominn tími til að "landinn" sýni nú loksins hvað í honum býr og mótmæli þeim gengdarlausu hækkunum, sem dynja á okkur þessa dagana.  Heyrði í konu í gær sem fer reglulega í litun og plokkun.  Hækkunin frá síðasta mánuði var rosaleg og í raun alveg út í hróa.  Núna kostuðu herlegheitin kr. 3.300 en kostuðu í síðasta mánuði kr. 2.200!!!  Þetta er bara oggulítið dæmi um það hvernig sumir notfæra sér "hækkun í hafi" og hafa hingað til komist upp með það Angry.

Ég held að reiði almennings birtist að einhverju leiti í samstöðu þeirra með bílstjórum og það væri gott ef þessi vakning verður til þess að launþegar sýni þá samstöðu sem þarf á baráttudegi verkalýðsins því oft var þörf en nú er nauðsyn.  

Launþegar allra stétta, sameinumst og stöndum vörð um réttlætið.  Af nægu er að taka.  Vaxtahækkanir, matvöruverðshækkanir og allt sem getur hækkað hefur hækkað.........nema launin, þau standa í stað og lækka í verðgildi.  

Atvinnubílstjórar, haldið áfram að halda okkur hinum við efniðWink.


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Ég er nú bara orðlaus eftir að hafa fylgst með þessum fréttum, það eiginlega kraumar í mér reiði........ já svolítil MIKIL reiði!! Var einhver þörf á að beita þessari hörku??? tja....ekki skrýtið að maður spyrji sig að því

Halldóra Hannesdóttir, 23.4.2008 kl. 14:56

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Góður pistill Sigrún.

Svo er að heyra á forsætisráðherra að hvers kyns mótmæli verði ekki liðin, af hvaða toga þau eru nefnd.

Hrædd um að stjórnvöld munu standa við þau orð, bæði í baráttu atvinnubílstjóra sem er farin að verða barátta þjóðarinnar sem og stéttarfélaga. Hjúkrunarfræðingar á LSH verða látnir frekar ganga út og hætta en að semja. Stjórnvöld hafa sent tóninn og hrokan vantar ekki. 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 23.4.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góður pistill. Gleðilegt sumar.

Hólmdís Hjartardóttir, 24.4.2008 kl. 01:26

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þarfar áminningar. - Gleðilegt sumar

Haraldur Bjarnason, 24.4.2008 kl. 09:21

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég ætla að mæta með kröfuspjald fyrir utan ÁTVR og krefjast lækkunar á rauðvíni.......

Ertu með?

Hrönn Sigurðardóttir, 24.4.2008 kl. 09:34

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég þakka innlit og komment!

Mig langar til að gera 1. maí að degi allra launþega og neytenda.  Finnst þessi dagur vanmetinn sem baráttudagur.

Hrönn, ég verð þessi með sólgleraugun og derhúfuna! Sjáumst.

Gleðilegt Sumar kæru vinir.

Sigrún Jónsdóttir, 24.4.2008 kl. 09:58

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Löggan verður mætt með gassprautur, kylfur og annan búnað.  Við erum að sigla inn í lögregluríki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.4.2008 kl. 13:07

8 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilegt sumar bloggvinkona - takk fyrir bloggsamskiptin í vetur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.4.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband