Leita í fréttum mbl.is

Gagn og gaman!

Róbert Skúli, 3ja ára sonar sonur minn er hjá mér núna og við erum búin að eiga saman yndislegt og fræðandi kvöld.  Á þessari mynd er er hann loksins búin að ná þeim langþráða áfanga að verða 3ja áraWizard.

3ja ára

Við horfðum saman á Útsvarið og Söngvakeppni Framhaldsskólanna með hléum, því hann þurfti líka að kenna ömmu sinni á Bubbi byggir tölvuna sína.  Tölva þessi er algjört undratæki.  Hann fékkBubbi Byggir hana í afmælisgjöf í byrjun febrúar og í dag kann hann alla stafina og tölustafina, bæði á ensku og íslensku!  Hann á nú eina ætt að rekja til Englands svo það er nú í lagi að hafa tilfinningu fyrir því máli líkaWink.

Á myndinni hér til hliðar er hann að kenna Jóni Eric frænda sínum og Ericu Ósk frænku sinni á tölvuna sína. 

Þegar í ljós kom, að hann var farin að þylja stafrófið á ensku var farið að halda að honum því íslenska og í kvöld þegar hann var að stafa (lesa) fyrir ömmu sína, gat hann alveg aðskilið tungumálinWhistling.

Nú sé ég fram á að ég þarf að fara að sanka að mér bókum, sem kenna lestur á skemmtilegan hátt, því það er náttúrulega um að gera að kenna þetta meðan áhugi er fyrir hendi og verkefnið er skemmtilegt, en ágætu foreldrar: ég lofa að þröngva þessu ekki upp á hannSmile.

Í gær átti ég svo góða stund með sonardætrunum, Kristrúnu Amelíu og Ericu Ósk, þannig að þessi helgi er bara búin að vera nokkuð fjölskylduvæn hjá mérHeart.

Kristrún Amelía og Erica Ósk með ömmu sinni.

 Næstu daga er ég svo að hugsa um að finna fleiri raddir í "grátkór" fjármálaráðherraPolice.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þÚ ERT RÍK

Hólmdís Hjartardóttir, 13.4.2008 kl. 01:57

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með þriggjaára stubbinn þinn og flottar stelpur.  Þetta eru flottar myndir, krúttleg þessi síðasta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2008 kl. 16:06

3 Smámynd: Brynja skordal

Falleg eru ömmukrúttin þín flottar myndir Duglegur er sá litli sjá áhugan á myndinni hjá honum

Brynja skordal, 15.4.2008 kl. 01:28

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndisleg börn.  Amman líka flott.  Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband