4.12.2008 | 14:51
Þvagprufu takk.
Ég get alveg tekið undir með Birki að það sé grafalvarlegt að bankamálaráðherrann hafi ekki rætt við aðalbankastjóra Seðlabankans í heilt ár og það á tímum, sem flestallir gerðu sér grein fyrir að blikur væru á lofti í efnahagsmálum þjóðarinnar. Við hverja var bankamálaráðherrann annars að tala í aðdraganda bankahrunsins......fyrir utan Darling og Hús og hýbýli....eða var það Séð og heyrt?
Mér finnst þar að auki grafalvarlegt að formaður Samfylkingarinnar virðist vera haldin sömu einræðistilburðum og f.v. formaður Sjálfstæðisflokksins. Fram hefur komið að form. Samfylkingar fundaði með seðlabankastjóra í nokkur skipti á þessu tímabili, en hún virðist ekki hafa séð ástæðu til að hafa bankamálaráðherrann sinn með í ráðum eða upplýsa hann um innihald þessara funda. Bankamálaráðherrann var einfaldlega hundsaður. Var honum bara ætlað að vera til skrauts?
Mér finnst það líka grafalvarlegt að æðstu menn í stjórnkerfinu okkar og þingmenn Íslands skulu ekki þurfa að skila inn heilbrigðisvottorði, hvað þá vottorði um geðheilbrigði þegar þeir takast á við þessi ábyrgðar miklu störf.
Það þykir sjálfsagt að íþróttamenn, skili þvagprufum reglulega, svo ganga megi úr skugga að þeir séu ekki að neyta ólöglegra lyfja. Er ekki sjálfsagt að gengið sé úr skugga um að æðstu ráðamenn þjóðarinnar, séu ekki "í rússi"?
Þvagprufur geta líka sýnt fram á ýmis einkenni sjúkdóma, sem óæskilegir eru í fólki í stjórnunarstöðum. Svæsin þvagfærasýking getur nefnilega valdið "ruglástandi".....og það getur hægðatregða líka gert
Mér finnst staðan í þjóðfélaginu vera grafalvarleg svo ekki sé meira sagt. Ég legg til að meðfram málamynda rannsókn á aðdraganda bankahruns, verði gerð rannsókn á geðheilsu þingheims og annarra yfirmanna valdastofnana hér á landi. Einföld þvagprufa gæti losað okkur við "sjúka" einstaklinga......án mikillar fyrirhafnar eða kostnaðar
Þessi færsla var í boði sjúkraliðans
Hitti Davíð ekki í tæpt ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Já eða DNA!!! Ég er viss um að þetta séu geimverur!!!
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 15:02
Það skyldi þó ekki vera Ragnheiður!
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 15:09
Ía Jóhannsdóttir, 4.12.2008 kl. 15:26
hahahah þú ert frábær! Hús og hýbýli
Hrönn Sigurðardóttir, 4.12.2008 kl. 15:28
Hvað með niðurgang? Getur hann líka valdið rugli? Þeir virðast alltaf vera að gera upp á bak þarna í stjórnarráðinu.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 4.12.2008 kl. 16:17
Já Jakobína.. Hægðatregða, getur valdi niðurgang og er það þá kallað "framhjáhlaup"
Hrönn, ég las það í einhverju blaði á biðstofu að ráðherrann hefði keypt sér hús í nágreni við þig....og þá voru húsin hans orði 2
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 16:26
Svo sammála,
hef annras mjög góðar hægðir, segir það einhvað um mig?
Rut Sumarliðadóttir, 4.12.2008 kl. 16:33
Rut, þú ert allavega skýr í kollinum
Farin í vinnuna......þar sem vel er fylgst með "útskilnaði"
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 17:13
Láta þetta lið míga í glös alveg endilega
Haraldur Bjarnason, 4.12.2008 kl. 19:30
ISG er spegilmynd af DO. Hvað seigir þú með lygamæli? Færsla sjúkraliðans er alveg með þetta á tæru.
Rannveig H, 4.12.2008 kl. 20:40
Er hægt að sjá í hlandi hvort fólk er klikkað?
Víðir Benediktsson, 4.12.2008 kl. 21:29
Takk fyrir innlit öll
Víðir, ekki alveg.....en ef það er sýking, getur hún valdið ruglástandi, efast samt um að fúkkalyf dugi á suma þarna
Rannveig, þetta hef ég oft sagt....en kann þó alveg ágætlega við ISG. Lygamælir er nauðsynlegur, helst áður en fólk fer í framboð og svo reglulega eftir það
Halli, kannski eru sumir þarna á ofskynjunarlyfjum, manni finnst það alla vega stundum Þvagprufu takk
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 23:49
hahahaha..............blóðpruf og þvagprufu takk. Persónuleikapróf og MMSE (MINNISPRÓF).
Hólmdís Hjartardóttir, 4.12.2008 kl. 23:50
Hólmdís, ræðum þetta við landlækni
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 23:52
Pizzum á Davíð ...
Steingrímur Helgason, 4.12.2008 kl. 23:58
Heyr heyr allt liðið í lyfjapróf
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.12.2008 kl. 01:08
Lyfjapróf og lygamælar á liðið .
;)
Aprílrós, 5.12.2008 kl. 07:38
Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.12.2008 kl. 10:50
Góðan daginn öll og takk fyrir innlit.
Sigrún Jónsdóttir, 5.12.2008 kl. 10:59
Já og nú má mæla ótta fólks á lyktinni....og það sem meira er hún er smitandi. Annars kæmi mér elkkert á óvart að eitthvað gruggugt myndi finnast í þvagi þessa fólks. Það er hreinlega allt GRUGGUGT sem að því snýr.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 5.12.2008 kl. 11:11
Góð, eins og venjulega. Lýst vel á þessa geðrannsókn á ráðamönnum. Og það sem fyrst.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.12.2008 kl. 11:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.