24.11.2008 | 14:54
Trúverðugleiki er það sem við þurfum.
Ég held að Steingrímur J. sé að "lesa" þjóðina sína rétt. Ríkisstjórnin nýtur ekki trausts og hefur almenning ekki með sér.
Svo er haft eftir honum:
".........lagði Steingrímur áherslu á að ný ríkisstjórn og ný andlit verði að leiða uppbyggingarstarfsemina. Þjóðin treysti ekki þeim sem komu henni á kaldan klaka til að gera það".
Ég er honum hjartanlega sammála, en ég er ekki viss um að hann skynji að það sem mörg okkar vilja er að allur núverandi þingheimur stigi til hliðar og að skipuð verði utanþingsstjórn.
Kannski vantrauststillagan sé fyrsta skrefið í þá átt.....en ég er ekki viss
Ég hef sagt það áður og segi það enn:
Ég lýsi vantrausti á allan þingheim og vil utanþingstjórn sem fyrst, öðruvísi getum við ekki byggt upp réttlátt þjóðfélag með breyttum formerkjum.
Það fólk sem nú situr á alþingi, var kosið þangað í allt öðru umhverfi en við erum að upplifa núna. Þau þurfa flest að kúvenda sínum fyrri skoðunum og kokgleypa margt af því sem þau hafa áður sagt. Það verður aldrei trúverðugt.
Ég vil samt kosningar.......þegar utanþingstjórnin hefur "tekið til"
Hefur almenning ekki með sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
heyr heyr
Hólmdís Hjartardóttir, 24.11.2008 kl. 15:14
Sammála, Þessi pólitísku líflitlu flokksþægu dauðyfli í þínginu eru svo gersneidd tegslum við okkur almenning, að ekki er von á neinu frá þeim til aunverulegra úrbóta. Ekki dugir að kjósa þetta sama fólk aftur, það væri að pissa í skóinn sinn. Við þurfum nýtt óþreytt fólk sem þorir.
Stefán Lárus Pálsson (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 15:53
Já ég er sammála - fyrst utanþingsstjórn og svo kosningar. En það er verst að spillingarliðið verður sjálfsagt áfram innanborðs í stjórnmálaflokkunum
, 24.11.2008 kl. 17:25
innlitskvitt fra islandi .
Gudrún Hauksdótttir, 24.11.2008 kl. 20:28
Aprílrós, 24.11.2008 kl. 21:48
Sammála þessu. það þarf að hreinsa ærlega til.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.11.2008 kl. 23:48
Þeir eru ekki á leiðinni neitt get ég sagt þér.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.11.2008 kl. 00:14
Heyr heyr, það þarf algjörlega nýtt fólk. Ferskt óspillt, launafólk sem er ekki á neinum spena frá ríkinu. Og fagmenn til að leiða fólkið.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.11.2008 kl. 02:17
Hvorki stjórnarliðar né stjórnarandstæðingar eru trúverðugir núna. Það þarf að stokka allt upp. Ef við höfum sama fólkið í kosningum, sem hljóta að verða á næsta ári, erum við ekkert betur sett.
Haraldur Bjarnason, 25.11.2008 kl. 10:29
Við þurfum utanþingsstjórn núna sem getur tekið á málum af ábyrgð og með hagsmuni heimilanna og þjóðar að leiðarljósi..út með allt liðið á alþingi og ráðherra. Vinnum okkur tima fram á vor að finna nýtt fólk með alvöru hugsjónir , nýjar lýðræðislegar leiðir til umbóta á samfélaginu okkar og kjósum svo í vor og hefjum uppbyggingu hins nýja Íslands á sterkum og heiðarlegum grunni. Skúrum skrúbbun og sópum út spillingaröflunum og gefum þeim aldrei færi á því aftur að ræna okkur og börnin okkar framtíðinni og lífinu. Aldrei!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.11.2008 kl. 12:21
Takk fyrir innlit, þið eruð frábær
Sigrún Jónsdóttir, 25.11.2008 kl. 12:56
Stjórnarliðar eru sjón- og heyrnarlaus. Þau vilja ekki skilja vilja okkar. Það hentar ekki. Sést best á svörum þeirra eftir borgarafundinn.
Tek undir með þér.
Rut Sumarliðadóttir, 25.11.2008 kl. 14:34
Örugglega rétt hjá þér Rut....það hentar þeim ekki að heyra
Sigrún Jónsdóttir, 25.11.2008 kl. 14:50
Sammála þessu.
Magnús Paul Korntop, 25.11.2008 kl. 20:33
Stend 100% með þér! Utanþingsstjórn nú! Gefur þingheimi frí og leyfum hlutaðeigandi að líta inn á við og sjá hvað þingmenn hafa unnið að, falli þjóðarlífsgæði á sjálfum góðæristímunum. Ég held að tími sé kominn fyrir nýtt stjórnmálaafl. Nýja flokka, nýjar hugmyndir og sýn.
Leyfum utanþingsstjórn að leiða okkur í 2 ár og kjósum svo upp á nýtt á nýtt og fámennara þing.
Baldur Gautur Baldursson, 25.11.2008 kl. 20:59
Tek undir hvert orð hjá þér, já hvert eitt og einasta orð.
Rannveig H, 27.11.2008 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.