21.11.2008 | 22:20
Fastir liðir eins og venjulega....
Ég setti mig í stellingar til að hlusta á fasta liði eins og venjulega. Blaðamannafundir stjórnarforystunnar eru orðnir fyrirsjáanlegir bæði hvað tímasetningu varðar og eins er umræðuefninu ætlað að slá á þessa hvimleiðu ólgu sem brýst fram í "skrílnum á laugardögum. Ég lagðist semsagt í sófann, beið átekta en var steinsofnuð áður en Geir sagði "velkomin".....eða er það ekki þannig sem hann byrjar þessa fundi.
Eftir að hafa skannað netmiðlana sé ég að "dúsan" er ekki alveg að gera sig og "skríllinn" mun fjölmenna sem aldrei fyrr á Austurvöll á morgun og mótmæla ríkjandi stjórn og heimta nýtt stjórnarfar. Geir fer fram á launalækkun frá kjararáði, þessu sama kjararáði og hækkaði launin hans fyrir örfáum vikum síðan.....kannski sú launahækkun hafi verið ákveðin með tilliti til óska forsætisráðherra um launalækkun.
Eftirlaunaósóminn kominn á dagskrá. Gott mál. En of seint, og of litlu á að breyta. Þegar utanþingsstjórnin mín kemst á koppinn innan örfárra vikna mun hún afskrifa eftirlaunaósóman með öllu og þingmenn og aðrir forréttindahópar hjá ríkinu munu þurfa að sætta sig við sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn......og hana nú.
Bróðurdóttir mín Björg Sveinbjörnsdóttir er búsett á Spáni í vetur, þar sem hún stundar nám. Með henni í för er sonur hennar Darri Kristjánsson. Ef Björg væri hér heima, myndi hún örugglega mæta með mér á Austurvöll, hún fékk nefnilega "skrílsgenin" bæði úr móður og föðurætt. En þar sem hún er fjarri "vígstöðvunum" sendir hún okkur baráttukveðjur:
http://www.reverbnation.com/tunepak/907841
Mætum á Austurvöll á morgun, laugardaginn 22. nóvember kl. 15:00.....Mótmælafundur....fastir liðir eins og venjulega....vér mótmælum allir! Sjáumst
Óska eftir launalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
- sudureyri
- schmidt
- vestfirdingurinn
- asthildurcesil
- holmdish
- hallibjarna
- jenfo
- hross
- hronnsig
- rognvaldurthor
- iaprag
- larahanna
- svanurg
- hildurhelgas
- milla
- ragnhildur
- jyderupdrottningin
- birgitta
- jogamagg
- beggita
- ammadagny
- steindora
- jonaa
- gudrunjona
- faereyja
- roslin
- liljabolla
- lehamzdr
- gurrihar
- helgamagg
- gledibankinn
- formosus
- gerdurpalma112
- silfri
- raksig
- rutlaskutla
- annaragna
- sylviam
- skessa
- hehau
- ringarinn
- kreppan
- don
- heidistrand
- korntop
- katrinsnaeholm
- danjensen
- joninaros
- tara
- kruttina
- manisvans
- valgeirskagfjord
- rannveigh
- emm
- olinathorv
- christinemarie
- bubot
- ksh
- jonthorolafsson
- skordalsbrynja
- kaffi
- icekeiko
- lillagud
- wonderwoman
- jonerr
- stinajohanns
- saedishaf
- himmalingur
- bjarnihardar
- katan
- gloppa
- helgigunnars
- strunfridur
- annakr
- credo
- fannygudbjorg
- lucas
- sveitaorar
- jakobk
- disdis
- sirri
- finni
- brahim
- heidathord
- sigrunzanz
- draumur
- naflaskodun
- stjornlagathing
- valdimarjohannesson
Athugasemdir
Heyr heyr
Hólmdís Hjartardóttir, 21.11.2008 kl. 22:35
Mér fannst nú dúsan smánleg, en það fór um mig algjör aulahrollur þegar lesið var upp úr skýrslu norska hernaðarmálasérfræðingnum
Það verður ömmuskríll á Austurvelli á morgunn. Sjáumst.
Rannveig H, 21.11.2008 kl. 22:53
Ég er svo sammála..ég vil þjóðstjórn og svo kosningar í vor. Það þarf tíma til að undirbúa þær og fyrir ný framboð að kma fram og kynna sig. Ég vil helst ekki sjá neitt af gamla liðinu..myndi allavega ekki kjósa neinn þeirra flokka. Austurvöllur verður heitur á morgun og ég er vissum að það verður metþáttaka. Sjáumst!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.11.2008 kl. 22:55
sérfræðingsins þannig a það að vera
Rannveig H, 21.11.2008 kl. 22:55
Sjáumst á morgun. Baráttukveðjur
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.11.2008 kl. 23:26
Þetta er orðið svo pínlegt með blaðamannafundina á föstudögum til að slá á skrílinn.
Jeræt eins og einhver taki þessu öðruvísi en þetta er. Snuð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.11.2008 kl. 23:47
Ég vil fá blaðamannafund þar sem eitthvaðkemu sem áaðgera fyrir fólkið
Hólmdís Hjartardóttir, 21.11.2008 kl. 23:57
Já Hólmdís, eitthvað annað en "snuð". En ég er ansi hrædd um að almenningur fái enga raunhæfa aðgerðaáætlun frá liðinu, sem rændi okkur bæði ærunni og aleigunni með sinnuleysi og firru.
Takk fyrir innlit allar, sjáumst á morgun
Sigrún Jónsdóttir, 22.11.2008 kl. 00:04
Baráttukveðjur til ykkar allra héðan úr sveitinni.
Ía Jóhannsdóttir, 22.11.2008 kl. 09:22
Geir og Ingibjörg hafa ekki samfæringu fyrir því sem þau eru að gera og þá verða þetta allt innantóm hjá þeim það vantar alla útgeislun og kraft í þau. Þau eru bara þarna.
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 22.11.2008 kl. 10:16
Góðan mótmæladag gott fólk og takk fyrir innlit
Jón Ólafur, enda eru þau bara að útfæra "hernaðaráætlun" Norska "hernaðarfræðingsins"
Sigrún Jónsdóttir, 22.11.2008 kl. 10:21
Takk Búkolla mín....ég mun "baula" fyrir þig
Sigrún Jónsdóttir, 22.11.2008 kl. 10:24
Þetta er ótrúlegur andskoti. Og svo er þetta heldur ekki löglegt, að því er mér skilst. Las það í bloggi einhversstaðar. En ertu búin að sjá viðtalið við Geir sem ekki var sýnt fyrr en í gær ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2008 kl. 11:44
Ásthildur, ráðherrum hlýtur að vera óheimilt að reyna með beinum hætti að hafa áhrif á kjararáð.
Já ég sá viðtalið, sem G. Pétur Matthíasson átti við Geir þ.v. fjármálaráðherra og n.v. forsætisráðherra
Sigrún Jónsdóttir, 22.11.2008 kl. 11:50
Innlitskvitt, eg mæti ekki á Austurvöll í dag. Er upptekin í öðru.
Aprílrós, 22.11.2008 kl. 11:59
Sæl Sigrún.
Kemst ekki, en minn hugur verður með fólkinu (Þjóðinni).
Baráttukveðjur
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 14:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.