31.10.2008 | 22:48
Ég mótmæli!
Ég mótmæli hroka íslenskra ráðamanna, sem telja sig færa um að vinna okkur frá því ástandi, sem þeir sköpuðu sjálfir. Ég vil utanaðkomandi úttekt á vinnubrögðum þeirra og sofandahætti, sem leitt hefur þjóðina á vonarvöl. Ég vil tímabundna neyðarstjórn" skipaða kunnáttu- og fagfólki og kosningar um leið og þess verður kostur.
Ég mótmæli því að bankastjórar Seðlabanka Íslands fái að sitja áfram, þrátt fyrir að almennt sé viðurkennt að þeir hafa verið leiðandi afl í kolrangri peningastefnu og átt sinn stóra þátt í hruni þjóðfélagsins. Ég vil óháða rannsókn á meintum afglöpum þeirra. Ég vil fagfólk til frambúðar, bæði í stjórn bankans og bankastjórastöður.
Ég mótmæli útrásarvíkingum", bæði í banka og einkageira, sem hafa ætt áfram af miskunnarlausri græðgi og siðleysi undanfarin ár. Ég vil utanaðkomandi úttekt á öllum þeirra gjörningum og þá sérstaklega á hringrásar" fyrirbærinu þeirra og að þeir verði sóttir til saka fyrir fyrir þeirra þátt í aðför að almannaheill!
Ég mótmæli því að það fólk, sem vinnur hjá fjármálaeftirlitinu og brást sínum eftirlitsskyldum svo hrapalega, sé ennþá við störf. Ég vil utanaðkomandi sérfræðirannsókn á þeirri stofnun og nýjan skipstjóra á þá skútu.
Ég mótmæli öllum þeim, sem vilja halda því fram að þjóðin hafi öll verið á góðærisfylleríi". Almennum laun- og bótaþegum var ekki boðið í það partý". Láglaunafólk, öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa í fjölmörg ár verið með tekjur, sem ekki hafa dugað fyrir mannsæmandi lágmarksframfærslu. Ég vil opinberan framfærslugrunn ekki seinna en strax, svo koma megi í veg fyrir að þær þúsundir íslendinga, sem nú eru eða eru að verða atvinnulausir verði ekki hnepptir í fátæktargildru. Ég vil gera stjórnvöld skaðabótaskyld gagnvart þeim fjölmörgu, sem nú þegar eru fastir í þeirri gildru.
Ég minni á mótmælafundinn á Austurvelli á morgun, laugardaginn 1. Nóvember kl. 15:00.
Ræðumenn:
Pétur Tyrfingsson
Lárus Páll Birgisson
Ávörp flytja:
Óskar Ástþórsson, leikskólakennari
Díana Ósk frá foreldrahúsi
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, eldri borgari og formaður Mæðrastyrksnefndar
Fundarstjóri: Hörður Torfason
![]() |
Óbarinn seðlabankastjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Ágúst 2014
- Apríl 2014
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Bloggvinir
-
sudureyri
-
schmidt
-
vestfirdingurinn
-
asthildurcesil
-
holmdish
-
hallibjarna
-
jenfo
-
hross
-
hronnsig
-
rognvaldurthor
-
iaprag
-
larahanna
-
svanurg
-
hildurhelgas
-
milla
-
ragnhildur
-
jyderupdrottningin
-
birgitta
-
jogamagg
-
beggita
-
ammadagny
-
steindora
-
jonaa
-
gudrunjona
-
faereyja
-
roslin
-
liljabolla
-
lehamzdr
-
gurrihar
-
helgamagg
-
gledibankinn
-
formosus
-
gerdurpalma112
-
silfri
-
raksig
-
rutlaskutla
-
annaragna
-
sylviam
-
skessa
-
hehau
-
ringarinn
-
kreppan
-
don
-
heidistrand
-
korntop
-
katrinsnaeholm
-
danjensen
-
joninaros
-
tara
-
kruttina
-
manisvans
-
valgeirskagfjord
-
rannveigh
-
emm
-
olinathorv
-
christinemarie
-
bubot
-
ksh
-
jonthorolafsson
-
skordalsbrynja
-
kaffi
-
icekeiko
-
lillagud
-
wonderwoman
-
jonerr
-
stinajohanns
-
saedishaf
-
himmalingur
-
bjarnihardar
-
katan
-
gloppa
-
helgigunnars
-
strunfridur
-
annakr
-
credo
-
fannygudbjorg
-
lucas
-
sveitaorar
-
jakobk
-
disdis
-
sirri
-
finni
-
brahim
-
heidathord
-
sigrunzanz
-
draumur
-
naflaskodun
-
stjornlagathing
-
valdimarjohannesson
Athugasemdir
Ég verð með ykkur í anda á morgun. Skilaðu bestu kveðjum til frænda, ég er stolt af honum, nú sem endranær
Baráttukveðjur
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 31.10.2008 kl. 23:14
Tek undir hvert einasta orð
Hólmdís Hjartardóttir, 31.10.2008 kl. 23:37
Ég mótmæli öllum sem að mótmæla þínum piztli.
Nema, náttla þegar kemur að því að úlpazt niður á torgi, ég eiginlega pazza alveg á þá aðferðarfræði vænnra velmeinandi.
Steingrímur Helgason, 31.10.2008 kl. 23:41
Algerlega 100% sammála þér.
Í burtu með þessa áhöfn og ekki seinna en STRAX
Landi, 1.11.2008 kl. 00:47
Ég mótmæli tessu líka .. punktur basta.Gott gengi á austurvelli vonandi sjáum vid sem flesta .Eigdu gódann dag kæra Sigrún.
Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 08:31
Er bara einn mótmælafundur, hvað með Kolfinnu gengið?
Ía Jóhannsdóttir, 1.11.2008 kl. 08:37
Heyr, heyr.
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2008 kl. 09:50
Mikið er ég ánægður að hin séríslenska þrælslund hafi ekki náð að smita alla. Gangi ykkur vel nú og alltaf. Hugsa hlýlega til ykkar héðan úr útlandinu. Bestu kveðjur!
Baldur Gautur Baldursson, 1.11.2008 kl. 10:41
Það styttist í kosningar
En klæddu þig vel Sigrún mín það er hryssingsveður.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 11:12
Hafðu ljúfa helgi elskuleg
Brynja skordal, 1.11.2008 kl. 15:04
Ég þakkainnlit og innlegg
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:31
Baldur, vertu velkomin í bloggvinahópinn
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:32
Hallgerður, ég klæddi mig eftir aðstæðum
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:32
Ía, ekki minnst á Kolfinnu í dag
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:36
Guðrún Jóna, þinn andi var með okkur
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:37
Steingrímur, hlakka til að sjá þig "úlpuklæddan" í alvöru mótmælum
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2008 kl. 19:39
Tek hér undir hvert orð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2008 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.