Leita í fréttum mbl.is

"Ömmublogg"

Helgin hefur verið ljúf þrátt fyrir lasleika ömmunnar.  Róbert Skúli 3,8 mán. hefur verið í ömmuheimsóknInLove.

stubbaakademian.jpgHöfum verið að dunda okkur hér heima við að mestu, horft á sjónvarp, lesið, teiknað og tölvast.  Að sjálfsögðu var mikið spjallað en ekki minnst á "kreppu".  Reyndum að koma auga á Jóa frænda á leik Vals og FH í gær, alla vega amman, en sá stutti fylgdist með boltanum og lýsti leiknum á sinn skemmtilega hátt......svo kom hálfleikur:  Hálfleikur er alveg jafnskemmtilegur og handbolti ammaCool.  Að leik loknum kom í ljós að "jafntefli" hafði unnið leikinnWizard

 

 

robert_skuli_i_ithrotta_akademiunni_696306.jpgJá, maður er sko komin í íþrótta-akademíuWhistling og þessi mynd er sérstaklega sett inn fyrir Albert frænda í Brisbane, vegna samtals, sem hann átti við ömmuna fyrir stuttuSmile.

 

 

 

 

 

vei_ima_urinn_me_pabba.jpgÞeir feðgar, Róbert Skúli og Ómar Daníelfóru í veiðiferð, með afa Helga til Grindavíkur á dögunum, sem tókst mjög vel að sögn aðal veiðimannsinsWhistling

 

 

 

 

 

aflinn_hja_rs_vei_imanni.jpgÞað er á hreinu að "gullkistan" okkar er ágætlega haldin, því aflinn var góður og gómsætur.  Róbert Skúli sagði reyndar að fuglarnir hefðu fengið þennanWoundering, en ég man að mér fannst steiktur koli í raspi eitt það besta fiskmeti, sem ég fékk sem krakkiSmile.

 

 

 

 

Þetta lag fékk amman að hlusta frekar oft á í gær, en það er "Court og King Caractacus" og ég set það hér inn sérstaklega fyrir Róbert SkúlaInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Vona að amma gamla hressist. Nýja Ísland þarf á henni að halda.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.10.2008 kl. 12:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.10.2008 kl. 12:50

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe pilturinn er með þetta alveg á hreinu, Hálfleikur er auðvitað rosalega skemmtilegur, og jafntefli var vel að sigrinum kominn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2008 kl. 13:27

4 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Rut Sumarliðadóttir, 12.10.2008 kl. 13:33

5 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 12.10.2008 kl. 14:04

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigrún mín, sendi þér mínar bestu bataóskir  

Les alltaf bloggin þín þótt ég setji sjaldnast inn athugasemdir - enda sossum ekkert athugasemdavert við bloggin þín

Kolbrún Hilmars, 12.10.2008 kl. 18:05

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ömmuhelgar eru flottar. Meira að segja þótt amman sé dálítið lasin en vonandi hressist hún fljótlega.

Helga Magnúsdóttir, 12.10.2008 kl. 18:07

8 Smámynd: Aprílrós

Góðan bata amma ;)

Aprílrós, 12.10.2008 kl. 18:53

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottur strákur! Enda ekki við öðru að búast... upplagið er svo gott

Hrönn Sigurðardóttir, 12.10.2008 kl. 20:48

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þakka innlit og batakveðjur.  Er að skríða saman og mæti í vinnu á morgun.

Sigurður Helgi, þetta var tímaskortur sem olli þessu, var að flýta mér vegna ömmustráks, en ég vissi að þetta myndi skiljast.  Breyti þessu ekki núna.

Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 21:34

11 Smámynd: Albertína Friðbjörg

Kæra Sigrún, langaði bara að segja takk fyrir kveðjurnar og skilaðu endilega kveðjum suður   Við ættum að reyna að hittast yfir kaffi næst þegar ég kem suður, eða þegar þú kemur vestur!

Albertína Friðbjörg, 12.10.2008 kl. 22:05

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Alveg endilega Albertína mín, hlakka til að heyra í þér, því ég á frekar von á því að þú eigir erindi "suður" en ég "vestur"

Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 22:10

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ekkert að afsaka Sigurður Helgi, ég er þér sammála.

Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 23:03

14 identicon

Sæl .

Já,svo sannarlega skulum við vona að "amman " hressist og það vel.

Kærleikskveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 03:02

15 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Sigrún mín vonandi ertu ordin hress svona á mánudasmorgni...Flottur strákur sem tú átt tarna.Ömmuhelgar eru svo ljúfar og yndislegar.

Fadmlag til tín

Gudrún Hauksdótttir, 13.10.2008 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband