Leita í fréttum mbl.is

Afmæliskveðja!

Hún fæddist á Selfossi þann 3. maí, árið 1963, tveimur mánuðum fyrir tímann og vó aðeins 6 merkur.  Hún var vafin í bómull, sett í skókassa og svo var brunað með hana suður til Reykjavíkur, á vökudeild Landsspítalans þar sem hún braggaðist vel og útskrifaðist úr sinni fyrstu “prófraun” á lífsleiðinni.  Síðan þetta var hefur hún háð fleiri og annarskonar “prófraunir” og staðist þær allar með sóma.  Í dag er hún 45 ára, yfir 1,70 cm á hæð, 2ja sona móðir og ónæmisfræðingur að mennt.

Ég kynntist henni fyrst í júlímánuði þetta sama ár en þá var ég 10 og ½ árs gömul.  Ég fékk það ábyrgðamikla hlutverk að fara í vist hjá stóru systur, móður litla krílisins.  Ég sat tímunum saman og horfði á hana og dáðist að henni og af litlu kjólunum hennar, sem mig langaði reyndar mjög mikið til að eiga, því þeir hefðu passað svo vel á dúkkuna mína, hana JóhönnuSmile.

Þetta 10 og ½ ár sem skildi okkur að í aldri var náttúrulega rosalega mikill aldursmunur fyrstu árin, en mér þótti alltaf ofurvænt um þessa litlu frænku mínaHeart.

Þegar ég var 19 ára mun ég hafa sagt henni að ég væri að fara til Englands til að heimsækja Bítlana og svo ætti ég heimboð í te hjá Elísabetu drottningu!Cool  8 ára barnið trúði þessu að sjálfsögðu og gerði það í nokkur ár.  Hún spurði alltaf frétta af Bítlum og drottningu þegar við hittumst í fríum frá þessari áralöngu “útlegð” minniTounge.

En svo “eyddist” aldursmunurinn og síðustu 30 árin eða svo, höfum við verið bestu vinkonur.  Hún hefur reyndar nokkrum sinnum verið spurð að því hvort hún sé dóttir mín, nú síðast í morgun, þegar130x130_sigridurbergtors við fengum okkur labbitúr í Kringlunni og það er sko í lagi mín vegna.  Það er ekki slæmt að vera líkt við þá glæsilegu ungu konu, sem Sigríður Bergþórsdóttir erWhistling.

Elsku frænka og vinkona, ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnumInLove. Til hamingju með 45 ára afmælið.  Megir þú lengi lifa! Wizard  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Til hamingju með frænku þína og vinkonu Sigrún

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.5.2008 kl. 16:01

2 identicon

Til hamingju með Siggu frænku.  Hún er glæsileg kona.

kv. Hugrún vinkona

Hugrún Hauksdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 17:36

3 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Hóhóhó....ég man nú eftir þessari fallegu konu, sem krakki þá kom hún á sumrin og var hjá ömmu sinni, við tvær lékum okkur mikið saman..... Sigrún til hamingju með frænku þína og vinkonu

Halldóra Hannesdóttir, 3.5.2008 kl. 18:28

4 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með þína Góðu frænku og vinnkonu Hafðu ljúfan sunnudag Elskuleg

Brynja skordal, 4.5.2008 kl. 12:29

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Til hamingju með frænku þína Sigrún.  Velkomin í bloggvinahóp minn.

Ía Jóhannsdóttir, 4.5.2008 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband