Leita í fréttum mbl.is

1. maí - Mín krafa!


Ég fer bara fram með eina kröfu á þessum baráttudegi verkamanna árið 2008.  Þessari kröfu beini ég að stjórnvöldum, samningsaðilum í kjarasamningum og öðrum þeim, sem finnst þeim málið varða.

 

Krafa mín er þessi:

 Ég vil réttlátt þjóðfélag!

 Greinargerð:

Lágmarkslaun og almannatryggingabætur þurfa að taka mið af raunverulegri framfærsluþörf, þess vegna þarf að vera til opinber og viðurkennd neysluviðmiðun, sem ákvarðar þann framfærslugrunn sem þarf til að einstaklingar geti lifað lífinu með reisn.    

Í dag lifa allt of margir Íslendingar undir fátæktarmörkum.  Fátækt er ljótur blettur á okkar þjóðfélagsmynd,  sem út á við sýnir ríkidæmi í þotuliðs glansmynd.  Fyrir nokkrum misserum síðan kom út skýrsla frá OECD,  þar sem fram kom  að ekki  færri en  5000  íslensk börn  lifðu við aðstæður undir fátæktarmörkum.  Það var á  góðæristímum.  Hvað verða þessi börn mörg  í  "hallærinu", sem margir spá að  við séum að ganga inn í?Crying

Þegar talað er um meðaltalstekjur þegnanna gefur það engan veginn rétta mynd af þeirri geigvænlegu tekjuskiptingu sem hér ríkir.  Meðaltalslaun bankastarfsmanna gefa til að mynda ekki rétta mynd af tekjuskiptingunni í þeim geira.  Ég get vel ímyndað mér að bankagjaldkerinn súpi kveljur þegar hann les um það í dagblöðum hversu langt undir ”meðaltalinu” hans laun eru.

Undanfarin ár höfum við, almennir launamenn látið hafa okkur af fíflum.  Stéttlausa samfélagið, sem við gátum státað okkur af er fokið fjandans til.  Íslenska þjóðin er orðin stéttskiptari en sjálfur Bretinn.Angry

Ef  gengið verður að þessari aumu kröfu minni um ”Réttlátt þjóðfélag”, er það frumskilyrði að taka upp ”opinbera og viðurkennda neysluviðmiðun”, þá yrði eftirleikurinn mun auðveldari fyrir launþega á almennum vinnumarkaði.  Þá hefðum við þann grunn, sem við gætum miðað okkur við í launakröfum okkar. 

Ég hef aldrei skilið forystumenn verkalýðsfélaga, sem hrópa einhverja tölu ”út í loftið”, sem þeirra kröfu um lágmarkslaun.  Þeir segja svo í tveggja manna tali að lágmarkstalan skipti ekki máli, af því að enginn fái hvort sem er greitt eftir henni!!!
Það er bara ekki rétt, því laun svo margra eru miðuð við þessa umsömdu tölu.

Vont og verst

Vont er að láta leiða sig,

leiða og neyða.

Verra að láta veiða sig,

veiða og meiða.

Vont er að vera háð,

verst að lifa af náð.

Gott er að vera fleyg og fær

Frjáls í hverju spori.

Sinnið verður sumarblær,

Sálin full af vori.

Höf. Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.

Launþegar til hamingju með daginn.  Sýnum samstöðu og tökum þátt í kröfugöngum dagsins um  land allt!


mbl.is Kröfuganga frá Hlemmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Frábært hjá þér Sigrún

Hólmdís Hjartardóttir, 1.5.2008 kl. 11:18

2 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Nú kom andinn yfir þig. Sammála

Anna Kristinsdóttir, 1.5.2008 kl. 11:32

3 Smámynd: Bergur Thorberg

Heyr, Heyr.

Bergur Thorberg, 1.5.2008 kl. 17:07

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir

Sigrún Jónsdóttir, 1.5.2008 kl. 21:02

5 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Frábær pistill Sigrún. Sammála þér í einu og öllu. Til hamingju með daginn

P.S Langar óskaplega til að ,,bísa" kveðskapnum af síðunni þinni. Er það í lagi? 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 1.5.2008 kl. 23:38

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Guðrún mín.  Gjörðu svo vel, ég klippti þennan kveðskap  einhvertíma út úr Mogganum í Árbók bókmenntanna, fannst kvæðið svo flott.  Höfundurinn fæddist árið 1857.

Sigrún Jónsdóttir, 1.5.2008 kl. 23:52

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hún er einföld krafan þín en vefst samt fyrir ótrúlega mörgum.

Haraldur Bjarnason, 2.5.2008 kl. 09:33

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hjartanlega sammála þér með kröfuna!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.5.2008 kl. 13:42

9 identicon

Tusund gang enig med dig..

hilsen fra danmark:)

Gurra

jyderupdrottningin (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband