Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega Páska!

Bara rétt að kíkja við og láta vita af mérSmile  Líður ágætlega í bloggfríi og er búin að afkasta heilmikið á heimilinu, sem hefur fengið að bíða vegna "blogganna"Wink

Er ennþá jafn reið og döpur vegna ástandsins hjá þjóðinni okkar og hef ekki ennþá tekið endanlega afstöðu um hvað ég kýs í komandi kosningumWoundering....veit bara að öfgar hafa aldrei átt upp á pallborðið hjá mér og set spurningarmerki við ýmislegt, sem fram hefur komið undanfarna dagaSideways

Fékk þetta sent í pósti í morgun frá æskuvinkonu minni Eygló, sem býr í Svíþjóð og ákvað að deila þessu með ykkur:

 

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??)




Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.



HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?


-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...


 
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!



Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Ef þessi færsla yrð dregin saman í einn lítinn málshátt yrði hann sennilega svona:  Af misjöfnu þrífast börnin best!

Ég óska ykkur öllum gleðilegra PáskaHeart  

SjáumstWink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Gleðilega páska vina mín

Ragnheiður , 7.4.2009 kl. 11:33

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...ég man eftir þessum tíma. Svo prílaði maður líka í stillönsum á steypustyrktarjárnum og sigldi á fleka á hrikalega djúpum húsbyggingargrunnum sem fylltust af vatni þegar rigndi - og þurfti EKKI að stelast yfir girðingu til þess :)

Hrönn Sigurðardóttir, 7.4.2009 kl. 11:35

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

....og hoppuðum ofan af þökum....

30BEDA55-B2D0-6370-817A-081F7BF5D664
1.02.28

Hólmdís Hjartardóttir, 7.4.2009 kl. 11:44

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já hver þremillinn og við enn hér sprellandi kát. 

Góða páskahelgi Sigrún mín.  Njóttu vel.

Ía Jóhannsdóttir, 7.4.2009 kl. 12:38

5 identicon

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 13:06

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er meiriháttar upprifjun að lesa þetta. Maður fór líka út´á sjó á árbátum 10 ára gamall, án björgunarvesta og flotgallar voru ekki til. Maður gleymdi próflestrinum á vorin til að fara í eggjaleit í Akrafjallið, reykti njóla og svona mætti lengi telja. Rétt Sigrún. Við ættum öll að vera löngu dauð.

Haraldur Bjarnason, 7.4.2009 kl. 13:08

7 Smámynd: Auður Proppé

...bjuggum til húla hringi úr einangrunarrörum sem við stálum á nýbygginarsvæðunum...... Frábær færsla, svo gaman að lesa þetta.  Gleðilega páska

Auður Proppé, 7.4.2009 kl. 15:53

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jahá, & maður lifir enn...

Merk samantekt.

Steingrímur Helgason, 7.4.2009 kl. 21:35

9 Smámynd: Aprílrós

Já skemmtileg upprifjun, ég reyndar ólst upp í sveit en mér sýnist á lestri þessum að það var svipað, ég fékk mín verk að vinna strax á unga aldri og bættist við starfið eftir þvi sem maður eltist. Við krakkarnir hittumst á sunnudögum og þeir dagar voru vel næyttir. Hittumst líka alltaf á íþrótta æfingum hvort sem við vorum að æfa eða ekki, hittingurinn var á því svæði.

Leikirnir voru þeir sömu þegar var farið í hemsóknir milli bæja, og boltaleiki, yfir, holly hú, skotbolta, og fleyri.

gleðilega páska Sigrún mín ;)

Aprílrós, 7.4.2009 kl. 22:22

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gleðilega Páska, og upprifjunin á æskuárunum í "gamla" daga er frábær.  Það er furða að maður hafi lifað þetta af. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.4.2009 kl. 01:35

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er raunar frábær samantekt og hún er alveg dagsönn.  Takk fyrir þetta Sigrún mín.  Hafðu það gott í bloggfríi ég veit að þetta er rosalegur tímaþjófur.  Knús og på gensyn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2009 kl. 09:01

12 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Þetta er frábær samantekt og vekur upp minningar því einmitt svona var þetta.

gleðilega páska.

Rut Sumarliðadóttir, 8.4.2009 kl. 12:39

13 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Gleðilega páska.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.4.2009 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband