Leita í fréttum mbl.is

8. febrúar - afmæliskveðja!

Ég fékk skemmtilegt símtal einn daginn í vikunni, það var eitthvað á þessa leið;

Amman:  Halló

Róbert Skúli:  viltu koma í afmælið mitt á sunnudaginn klukkan 3?  Ég á sko afmæli, þú veistJoyful

Amman:  Já, já, elsku drengurinn minn, það vil ég gjarnan.  En ég kem kannski svolítið of seint af því ég er að vinna á sunnudaginn....en ég kem bara þegar ég er búin að vinna, er það ekki í lagi?

Róbert Skúli: Jú, en amma, þú þarft að koma með afmælispakka, það þarf að gera það skoWink

Amman: Að sjálfsögðu kem ég með pakka.  Hvað langar þig í í afmælisgjöf?

Róbert Skúli: Ha..Woundering

Amman:  Hvað á ég að hafa í afmælispakkanum?

Róbert Skúli:  Ég veit það ekki.....bara eitthvað sem mig langar íWhistling 

robert_skuli_vei_ir_til_matar.jpgTil afmælisveislu þér amma er boðið,

með afmælispakka með þér.

Hann hefur  ei orðalagið loðið,

hann er samkvæmur sjálfum sér.

 

 robert_skuli_me_aflann_2_789851.jpg

Amman í afmæli haskar sér,

afmælispakkinn er klár,

Róbert  Skúli mun ráða för hér,

rogginn og ei lengur smár.

robert_skuli_me_aflann_1_789852.jpg

 

Fjörugur, frábær drengur er,

fjögurra ára í dag.

Í samkvæmið safnar hann heilum her,

sem syngja hans afmælislag.

 

 

 

 

 

Þótt Róbert Skúli sé veiðikló mikil, er ég ekki viss um að hann bjóði upp á fisk í boðinu sínu.  Amman þurfti bara að nota þessar "eldgömlu" myndir þar sem foreldrasettið er orðið svo lélegt við að uppfæra heimasíðuna hansWink (þaðan sem hún hefur nælt sér í ófáar perlurnar)Heart

Auðvitað mun Róbert Skúli bjóða upp á kökuhlaðborð, því hann er flottastur!

 

InLoveInLoveInLoveInLove

 

afmaeliskaka_roberts_skula.gif

Elsku ljúfi strákurinn minn, til hamingju með 4ra ára afmælið þittWizard

Ég mæti í veisluna minn kæri......með pakkaWhistling

Amma elskar þigInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Til hamingju með litla ömmuprinsinn.  Skemmtilegur pjakkur.  Ömmur mæta alltaf með skemmtilega pakka

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.2.2009 kl. 01:14

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þessi kveðja til hans hér er heldur ekki ónýt afmælisgjöf

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.2.2009 kl. 05:49

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Til hamingju!! og takk fyrir skemmtilega frásögn.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.2.2009 kl. 08:40

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Til hamingju með að eiga svona sætan ömmustrák.   Á langt í það sjálf, en man  -og sé á syni mínum-  hvað ömmurnar eru óendanlega mikilvægar. 

Litli gaurinn heppinn líka... 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 8.2.2009 kl. 08:44

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúllan.  Til hamingju með hann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.2.2009 kl. 09:38

6 Smámynd:

Til hamingju með Róbert Skúla, ömmustrák

, 8.2.2009 kl. 10:44

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Til lukku með drenginn!

Rut Sumarliðadóttir, 8.2.2009 kl. 11:26

8 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Til hamingju með litla guttan þinn Sigrún mín Hann er heppin að eiga ömmu eins og þig.  kv. Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 8.2.2009 kl. 12:02

9 identicon

Þú segir "haskar sér"Er það vestfirska? Þann 04.2 09 var liðin öld frá fæðingu Guðrúnar Kristjánsdóttir frænku þinnar frá Suðureyri. Börnin hennar ætla að halda upp á það með kaffi í Borgartúni 22 í dag. Ég ætla að kíkja á þau þetta eru allt vinir mínir þrátt fyrir allt. Sómafólk hvert og eitt einasta þeirra.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 12:16

10 identicon

Æðislegt og til hamingju kæra.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 12:44

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 8.2.2009 kl. 19:34

12 identicon

Takk fyrir kveðjuna og takk fyrir drenginn í dag.....frábær afmælisgjöf.....flott vísan um hann líka :)

knús knús tengdadóttirin

Guðrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 21:04

13 identicon

Ég þakka líka fyrir mig og okkur, flott vísan,
það er engin tilviljun að foreldrar barnsins commenta núna, bæði í einu..
það er nú búið að halda tvöfalt barnaafmæli þessa helgina.. (laugard. fyrir vini og vandamenn, laug. fyrir fjölskyldu..) þannig að það er nú búið að ganga aðeins á..

myndirnar koma móðir kær, myndavélin fannst eins og ég sagði þér og núna þarf bara að gefa sér tíma í að hlaða þeim inn.

aftur, takk fyrir daginn, og "skemmtilegu" umræðurnar... (sem ég nú reyndar forðaði mér strax úr..)  

Ómar Daníel (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 21:24

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit og kveðjur

Ég átti góða stund að Keili í dag í dýrlegri veislu hjá draumaprinsinum Veisluborðið var á við "fermingarhlaðborð" og prinsinn fékk ótal pakka, bæði mjúka og harða 

Hallgerður, ég hef ekki hugmynd um hvaðan ég náði í hugtakið "að haska sér"....það bara kom, þegar ég var að "hnoða".  Ég vona að þið hafið átt góða stund með Suðureyrarfólkinu í dag. Sómafólk eins og þú segir  Systir Guðrúnar var svona "semi" ljósan mín á Kjalarnesinu þegar ég eignaðist pabba Róberts Skúla

Guðrún mín kæra tengdadóttir, takk fyrir daginn og takk fyrir þennan yndislega ljósgeisla, sem Róbert Skúli er

Sigrún Jónsdóttir, 8.2.2009 kl. 21:27

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til lukku með peyjann.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2009 kl. 21:27

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Ásdís

Elsku Ómar Daníel, við vorum sem sagt að skrifast á, á sama tíma

Takk fyrir daginn kæri sonur og takk fyrir yndislegan sonarson

Mamma gamla var nú bara prúð og stillt....var það ekki?  Langömmur mega bara tjá sig um allt og alla og þær eiga bara alltaf að eiga síðasta orðið og virðum það....það geri ég

Sigrún Jónsdóttir, 8.2.2009 kl. 21:33

17 identicon

Sigrún mín þú rétt náðir byrjuninni á hamaganginum, það var allt á suðupunkti hérna til að verða kl 19.

Langamman er nú ekki vön að tjá sig um svona hluti en er greinilega bara reið eins og svo margir aðrir í þjóðfélaginu :)

Eftir að þið fóruð héldu umræðurnar áfram og einkenndist þetta allt saman af mikilli reiði og augljóst að ég þarf að bjóða upp á róandi í næsta barnaafmæli ef ástandið í þjóðfélaginu verður ekki orðið betra

 takk enn og aftur fyrir drenginn

tengdadóttirin sem er rétt að ná sér niður  en er ennþá reið.

Guðrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 21:47

18 Smámynd: Marta smarta

Til hamingju með guttann.  Þau eru bara yndisleg

Marta smarta, 8.2.2009 kl. 21:56

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með púkann hann er bara flottur með flatfiskinn sinn,
þau eru nú óborganleg á þessum aldri.

Að "haska" sér er trúlega að vestan, en er ekki viss allavega var þetta sagt á mínu heimili, en föðurafi minn var af suðurfjörðunum, nánar tiltekið úr Rauðasandshreppi í Vestur-Barðastrandasýslu.
en mamma var aftur á móti ættuð frá Ísafirði.

Knús í daginn
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.2.2009 kl. 06:24

20 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Frábært! Hjartanlega til hamingju með litla kallinn...flottur strákur!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 9.2.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband