Leita í fréttum mbl.is

Sjáumst á Facebook :)

Ég fékk óvænt og fullkomið kreppufrí í kvöld.  Hitti æskuvinkonur mínar,  Eygló Einars, Kollu Högna og Eyrúnu Guðbjörns.

Létum eins og enginn væri morgundagurinn og fórum á veitingastaðinn Vegamót, borðuðum, dreyptum og spjölluðum.....og spjölluðum meiraSmile

Eygló býr í Svíþjóð og það er eins og það er....við hinar hittumst varla nema þegar Eygló er í skreppi túr á landinu.

Fyrstu eða jafnvel önnur drög að heimsókn til Svíþjóðar rædd....og við getum alla vega látið okkur dreymaJoyful

Fésbókin var nokkuð til umræðu og vorum við sammála um að hún væri hið mesta þarfaþing og hefur fært okkur, sem þar erum nær hvert öðru.  Eyrún var sú eina af okkur, sem ekki er skráð þar, en ég held að okkur hafi tekist að sannfæra hana í kvöldWhistling

Um leið og ég þakka þessum yndislegu æskuvinkonum fyrir ljúft og gott kvöld, vil ég benda öðrum æskuvinum, sem sjást með okkur á meðfylgjandi mynd og mögulega lesa þessar línur að hitta okkur á Fésbókinni....svona til að byrja með, því það er aldrei að vita hvað getur orðið í framhaldinuWizard

Með sundkennaranum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi þið eruð svo miklar dúllur þarna með kennaranum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Fézbókarfjárinn já. flóra fortíðarinnar...

Steingrímur Helgason, 15.12.2008 kl. 00:45

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

gaman hjá þér...........flott mynd

Hólmdís Hjartardóttir, 15.12.2008 kl. 00:48

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Fésbókin er alveg ágæt, ég skráði mig í hana fyrir rúmri viku

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.12.2008 kl. 00:57

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Vinkonur eru bestar. Oft og mörgum sinnum bjargað geðheilsu undirritaðar. Konur eru konum bestar.

Rut Sumarliðadóttir, 15.12.2008 kl. 08:25

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hver er gaurinn sem krýpur í fremstu röð? ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 10:16

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Það er ómetanlegt að eiga góðar vinkonur!  Facebook I don´t think so.  Örugglega rosalegur tímaþjófur. 

Ía Jóhannsdóttir, 15.12.2008 kl. 10:23

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm þessi fésbók, ég hef afskaplega lítinn tíma fyrir hana, verð að koma mér í gír, þegar ég fær tölvuna aftur í gagnið.  Gaman að myndinni.  Kærleiksknús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2008 kl. 11:08

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan daginn kæru vinir....nú er ég loksins komin  í smáfrí eftir helgartörn

Ég eyði nú ekki löngum tíma í Fésbókina enn sem komið er....en kíki inn daglega í svona 15 - 20 mín.....svona eins og að skoða póstinn sinn, án þess að þurfa að svara hverju innleggi.

Hrönn, það er nú það, ég bara man það ekki.  Ég er nefnilega ennþá með skammtímaminnið í lagi, þannig að langtímaminnið er ennþá í þoku.  Svo komu svo margir krakkar, "að sunnan" á sumrin, sem maður kannski kynntist ekki svo vel.

En ef það er einhver þarna úti sem kann svarið, væri það vel þegið

Sigrún Jónsdóttir, 15.12.2008 kl. 16:22

10 identicon

Er þetta ekki Kristinn Jóns (Jóns skóla? )

gua (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 17:41

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

gua???!  Gæti vel verið  En hver ert þú?

Notaði tækifærið og óskaði eftir "vináttu" Kristins á Fésbókinni

Sigrún Jónsdóttir, 15.12.2008 kl. 20:49

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég þarf að tékka á þessari fésbók, hef aldrei opnað hana og veit varla út á hvað hún gengur.

Helga Magnúsdóttir, 15.12.2008 kl. 21:46

13 identicon

Rosalega hefur verið gaman hjá ykkur. Fésbókin er bráðsniðug, mér finnst hún ekkert meiri tímaþjófur en margt annað á netinu.

Knús á þig, Sigrún mín

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 22:03

14 identicon

Gýgja Hermanns kenndi mér leikfimi hún var glæsileg kona.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 22:10

15 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Það hafa bara verið allar flottustu gellur þess tíma á sama stað á sama tíma

Guð er góður

Gunnar Þór Ólafsson, 16.12.2008 kl. 19:26

16 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Tek undir með Zteingrími. Þetta er ljóta ruglið þessi fésbók.

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 21:19

17 identicon

Það er ekki undirritaður sem krýpur í fremst röð.

Kristinn Jónsson (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 22:13

18 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit

Takk fyrir þetta Kristinn, mér fannst drengurinn á myndinni líka of dökkhærður til að geta verið þú......en við vorum jú að koma úr sundi.  Við Eyrún höldum að þetta geti verið Matti.

Gunnar Þór, SEGÐU

Bestu kveðjur til ykkar allra

Sigrún Jónsdóttir, 16.12.2008 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband