Leita í fréttum mbl.is

Silfur Egils

Mikið fannst mér gott að horfa á  Silfur Egils í dag.  Vandamálin viðurkennd af öllum, sem þar komu fram og tillögur að úrlausnum settar fram á mannamáli. 

Ég vona svo innilega að ráðamenn þjóðarinnar hafi verið með eyrun opin, og ef þeim líkar ekki við framsettar tillögur, vona ég að þeir svari þjóðinni á málefnalegan hátt, með rökstuðningi en ekki útúrsnúningi.

Takk fyrir góðan þátt Egill HelgasonSmile.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sammála þér eins og endranær!

Hólmdís Hjartardóttir, 9.11.2008 kl. 16:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þátturinn var afspyrnugóður.  Svo góður reyndar að ég er í sjokki og honum ekki nettum.

Það er að renna upp fyrir mér æ betur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2008 kl. 17:32

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég gleymdi að horfa en kíki kannski í kvöld á hann á netinu.

Huld S. Ringsted, 9.11.2008 kl. 17:35

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sá ekki, en ég hef víst allan tímann í veröldinni til að skoða hann á morgun og ætla ekki að gleyma því!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.11.2008 kl. 19:54

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Lára Hanna, ofurbloggari og besti "fjölmiðill" landsins er búin að skipta þættinum upp, þannig að hægt er að horfa á hann í bútum: sjá larahanna

Sigrún Jónsdóttir, 9.11.2008 kl. 20:48

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já! Þetta var góður þáttur! Mér fannst þér sérlega góðir - þarnar hagfræðingarnir sem komu með lausnina um að skipta krónunni - nú, þegar, strax!

Þeir voru rökfastir og vel skiljanlegir! 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 21:49

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála Hrönn, þeir voru mjög góðir og trúverðugir.....og töluðu mannamál eins og flestallir, sem þarna voru.

Sigrún Jónsdóttir, 9.11.2008 kl. 21:56

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Var í vinnunni, ætla að horfa á netinu þegar ég kem heim.

Helga Magnúsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:27

9 identicon

Sammála þér Sigrún fínn þáttur. Það sem mér finnst hins vegar verra er allt þetta þrælmenntaða fólk er með allt aðrar hugmyndir en ríkjandi stjórnvöld! Bara allt aðrar og engin hlustar!

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 08:21

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er ótrúlegt að lesa.  Ég vil að þessir menn séu stoppaðir af strax.  Burtu með ráðamenn og útrásarlið, eftirlitsstofnanir og seðlabanka.   Þetta er landráð sem verið er að fremja. Þarf að fara inn á bloggið hennar Láru Hönnu meira.   Takk Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2008 kl. 11:02

11 identicon

Ég tek undir þakkir til Egils Helgasonar fyrir góðan þátt! Nú ætla ég alltaf að fylgjast með þáttunum hans. Frábærir viðmælendur og flottar hugmyndir þeirra. Jújú, Ragnheiður hefði mátt vera heima. Nú verða einhverjir að fara að taka af skarið og láta taka einhverjar ákvarðanir. Ég mæli með því að reyna að fá norsku krónuna - við erum hvort eð er í efnahagsbandalagi með Norðmönnum!

Ásta Þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband