Leita í fréttum mbl.is

Fangelsi hvítflibbamafíunnar!

Við erum sennilega orðin nokkuð mörg, sem viljum nýta Tónlistar- og ráðstefnuhúsið A-la "Alþýðuhöllin" sem fangelsi fyrir útrásarvíkinga og fleiri hvítflibba afbrotamenn!

"Strákarnir frá Grímsey sem stunda nám í Slysavarnarskóla sjómanna sem er næsti nágranni Alþýðuhallarinnar svonefndu voru hinsvegar ekki í vafa um hvað ætti að vera þar innan dyra, þeir vilja stöðva framkvæmdir, setja rimla fyrir gluggana og hafa þar framvegis fangelsi fyrir útrásarvíkinga, öðrum til varnaðar".

Að gera þetta að fangelsi yrði góð áminning um hvernig græðgi og siðleysi fóru með íslenska þjóðDevil

 

 


mbl.is Alþýðuhöllin við höfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

æ......

30BEDA55-B2D0-6370-817A-081F7BF5D664
1.02.28

Hólmdís Hjartardóttir, 24.6.2009 kl. 17:10

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki fullgott útsýni þar fyrir þessa vitleysinga? Þeir eiga bara skilið að horfa í stein.

Hrönn Sigurðardóttir, 24.6.2009 kl. 17:28

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Sammála Hrönn, útsýnið allt of gott.

Rut Sumarliðadóttir, 24.6.2009 kl. 17:32

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir með ykkur hér að ofan, þetta er of gott til að hýsa glæpamenn. Sko þegar þeir finnast.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.6.2009 kl. 18:55

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Stelpur, gott útsýni gerir dvölina þarna áhrifaríkari......minnir þá stöðugt á hvers þeir eru að fara á mis

Hólmdís, æi hvað?

Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2009 kl. 19:07

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Mæli frekar með sjúkrahúsi fyrir "svikarana".

þeir eru greinilega alvarlega sjúkir og veit ég ekki hvað sá sjúkdómur heitir á Íslandi.

þeir koma út úr fangelsi verri en þegar þeir fóru inn. þá bið ég almættið að hjálpa afkomendum okkar.

Fangelsi hefur aldrey læknað sjúkdóma og mun ekki gera það núna heldur . Græðgis og valdasýki er alvarlegur sjúkdómur sem heitir víst ekki neitt á Íslandi ennþá.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.6.2009 kl. 19:48

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já stofnum nýjan Brimarhólm fyrir hvítflibbana.

En úps: er þetta hús nógu stórt?  Rúmar það alla íslensku mafíuna?

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2009 kl. 20:35

8 Smámynd:

Líst vel á þessa hugmynd

, 24.6.2009 kl. 21:40

9 Smámynd: Hörður Einarsson

Bara ein leið, inn, aldrei aftur út.

Hörður Einarsson, 24.6.2009 kl. 23:03

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr.  Það er mikill skortur á fangaklefum, einhversstaðar verður að byrja.  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.6.2009 kl. 00:59

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Anna Sigríður þessi sjúkdómur  sem ku hrjá útrásarvíkinganna og þeirra áhangendur heitir "siðblinda", og er ólæknandi,  svo illa haldnir af "siðblindu" eru þeir allir,  eins og dæmin sanna. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 29.6.2009 kl. 18:03

12 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Svo er 400 fermetra villa hér upp í Borgarfirði, hálfbyggð. Sigurður Einarsson í Kaupþingi lét byggja hana fyrir einhverja pappíra, ekki peninga. Nú stendur þetta hús nærri fokhelt og hugmyndir um að gera það að minjasafni fyrir útrásrarvíkinga. Þarna mætti standa þyrla á hlaðinu, leðursóffasett í röðum með koníaki á borðum, vaxmynd af arabískum olíufursta á hlaðinu, nokkrir hummerar og range rovaerar og fluguveiðistangir, svo dæmi séu tekin.

Haraldur Bjarnason, 29.6.2009 kl. 18:48

13 Smámynd: Aprílrós

Mér finst þetta hús of flott fyrir þessa vitleysingja, þeir eiga bara að horfa á steininn. Eiga ekkert annað skilið ;)

Aprílrós, 1.7.2009 kl. 07:13

14 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Þetta verður síðan sama saga og með Alþýðuhöllina hans Nikolai Ceausescou i Rúmeníu!  Steinminnisvarði um hræðilega tíma!

Baldur Gautur Baldursson, 6.7.2009 kl. 16:51

15 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það væri bara hægt að negla fyrir gluggana svo þeir sæju ekki útsýnið. Og hver var að tala um að sleppa þeim út?

Helga Magnúsdóttir, 6.7.2009 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband