Leita í fréttum mbl.is

Tóbakískt eða genatískt?

14. maí runnin upp og bráðum búinn og Albert bróðir minn á að sjálfsögðu afmæli Wizard  Hann fæddist árið 1947 og hefur alla tíð verið algjört heilsufríkWhistling.......og aldrei REYKT!

Abbi í ÁstralíuFjallgöngur og skíði hér heima en seglbretti og golf henni Ástralíu.......svo hefur hann alltaf verið gætinn með allt sem hann borðar, Ó já, hollt skal það vera.  Fyrirmyndardrengur í alla staði.

En hann gat náð sér í hjartaáfall fyrir nokkrum árum síðan....hjá honum var það að sjálfsögðu genetískt....hrikalega mikið af hjartveiki í ættinniFrown

valla_systir.jpgValla systir mín er sama fyrirmyndar, reglumanneskjan og hann Abbi bróðir....en hún féll líka (næstum því) fyrir þessu bráðdrepandi geni fyrir 8 árum síðan og fékk sitt hjartaáfall.

Bæði lifa þau þessi elskulegu systkini mín, taka sínar lífsnauðsynlegu pillur og passa vel uppá að "genunum"....þessum gölluðu, sé ekki ögraðHeart

Haldið þið ekki að röðin hafi svo verið komin að mér núna í vikunni.......nema að núna eru það ekki gömlu ,"góðu" gölluðu, genin frá Suðureyrar- eða Laugaætt sem um er kennt, heldur reykingum mínum í gegnum tíðinaW00t

Hafið þið heyrt talað um > 25 pakkaár?     Ég telst víst þannigTounge  En eftir þessa lífsreynslu verð ég sko ekki pakkaárinu eldriWhistling

Elsku bróðir, innilegar hamingjuóskir á afmælinu þínuWizard...og ég vona svo innilega að í baráttunni við blóðfituna, verði sigur okkar systkinanna sæturHeart

P.s.  Jói og Svenni, viljið þið drífa ykkur í tékkInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Til hamingju með bróður þinn . Annar bræðra minna á líka afmæli í dag - fæddur 1958

, 14.5.2009 kl. 21:02

2 Smámynd:

Hey og díses reyndu nú að fara vel með þig. Það er nebblega engin lygi að reykingar drepa  Við þurfum á öllum okkar kvenskörungum að halda svo þú rétt ræður

, 14.5.2009 kl. 21:05

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Elsku kerlingin farðu nú vel með þig.  Engar fortölur frá mér en samt...........  vildi að ég hefði aldrei reykt!!!!! 

Til hamingju með Ástrallallíu bróann þinn. 

Ía Jóhannsdóttir, 14.5.2009 kl. 21:23

4 identicon

Dúllan mín.Er þá komin skýringin á slappleikanum í vetur.Farðu vel með þig ljúfan

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 21:27

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit stelpur  Auðvita hætti ég þessum ósóma, var að reyna að segja það undir rós  Losna af spítalanum um helgina...vonandi , en verð frá vinnu í einhvern tíma....get þá farið á fullt við að æfa mig í að hætta að reykja

Sigrún Jónsdóttir, 14.5.2009 kl. 21:30

6 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Elsku Sigrún mín. Farðu vel með þig og segi er eins og 'Ia vildi að maður hefði aldrei byrjað á þessum ands... Sendi þér góðar hugsanir kæra vina.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 14.5.2009 kl. 21:44

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að þér batni fljótt. Kærleikur yfir heiðina

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2009 kl. 22:06

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sigrún!! Hættu strax. Ég get ómögulega misst þig

Hrönn Sigurðardóttir, 14.5.2009 kl. 22:15

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

"Hjartanlegar hamíngjuózkir!" með góðan & fljótann bata.

Steingrímur Helgason, 14.5.2009 kl. 22:33

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 14.5.2009 kl. 23:04

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Til hamingju með hann bróðir þinn. - Nú verður þú að fara vel með þig, svo vel meira að segja að þú leggur það á þig að hætta að reykja. - hvað þýðir þetta með < 25< pakkaárin? Ég hef aldrei heyrt þetta fyrr.  En ég er hætt að reykja, og er ein af þeim sem sé alltaf eftir að hafa byrjað.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.5.2009 kl. 23:20

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Góðan bata, og til hamingju með bróður þinn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.5.2009 kl. 00:39

13 identicon

leiðinlegt að heyra Sigrún! ! vonandi batnar þér fljótt og farðu nú vel með þig!!!! :) öflugt hjartaknús frá bandaríkjunum

berglind í bandó (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 03:21

14 Smámynd: Marta smarta

Sigrún mín, nú er bara að hætta reykingunum, aldrei of seint.  Eta hollari mat (og svo kólesterol lyfin + hjartamagnylið  eins og ég), og hreyfa sig. 

Auðvelt að segja öðrum þetta, þyrfti að hreyfa mig meira sjálf, en geri það samt ekki.

Gangi þér vel og farðu vel með þig, það er bara ein þú.

Marta smarta, 15.5.2009 kl. 12:26

15 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Til lukku með brósa og farðu vel með þig. Ég skrifa þetta um leið og ég kveiki í sígó og fæ mér kaffi. Ég er og verð reykingarmanneskja, löngu hætt að reyna að hætta. Verð bara að fá að vera eins og ég er og hana nú.

ps. veit allt um skaðsemina ef einhver ætlar að reyna að kristna mig. 

Rut Sumarliðadóttir, 15.5.2009 kl. 13:30

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vona að þér líði vel Sigrún mín og sért hætt að reykja!! Trúðu mér það eru bara þrír fyrstu dagarnir sem eru erfiðir!

Hrönn Sigurðardóttir, 15.5.2009 kl. 21:31

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk kærlega fyrir innlit og kveðjur mínir góðu vinir

Er alveg ótrúlega löt....nenni varla að setjast fyrir framan tölvu....reykleysi gengur bara vel, engin hjálparmeðöl og hef því uppá þau að hlaupa

Verð vonandi orðin virk aftur eftir nokkra daga love ya

Sigrún Jónsdóttir, 15.5.2009 kl. 23:27

18 Smámynd: Ragnheiður

elskan mín, ég er að sjá þetta núna fyrst ! er það nú bloggvinkona!!

ég sé eftir að hafa byrjað að reykja bakvið löggustöðina á Höfn í Hornafirði árið sem ég varð 16 ára.

Ég er hinsvegar hætt og átti þriggja mánaða hættuafmæli 14 maí

Gangi þér vel elsku Sigrún mín

Ragnheiður , 16.5.2009 kl. 11:23

19 identicon

Elsku Sigrún!

Ég sendi þér allar mínar bestu óskir um góðan bata og styrk kraft til að hætta að reykja.

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband