Leita í fréttum mbl.is

Hvað skal kjósa.....hvað er í boði?

Kosningar munu sem sagt hefjast um næstu helgi.  Það skiptir engu máli hvort öll framboð séu komin fram.  Áskrifendur gömlu framboðana geta bara drifið sig á kjörstað.

Vanir atkvæðasmalar, geta nú brett upp ermar og komið sínu fólki í kjörklefann.  Þeir hljóta að byrja á hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra, því þar er alltaf sú hætta fyrir hendi að "atkvæðið" lifi ekki fram að kjördegi.

Engin okkar veit hvernig framboðslistar koma til með að líta út, eða hverjir verða í framboði....en við megum byrja að kjósaW00t

Ég var að vona að kosningalögunum yrði breytt fyrir næstu kosningar og að persónukjör fengi meira vægi, en það verður varla hægt að koma því á núna, enda ekki mikill vilji fyrir því innan núverandi þingflokka.  það er miður.

Helst mundi ég vilja ganga til liðs við öll þau framboð í mínu kjördæmi, sem bjóða upp á prófkjör meðal flokksmanna, svo ég geti haft smááhrif á uppröðun framboðslista þeirra.

Ef mér líst ekki á neitt af þeim framboðum, sem verða í boði í mínu kjördæmi þann 25. apríl næstkomandi, mun ég "ógilda" seðilinn og skrifa skýrum stöfum:  UTANÞINGSSTJÓRN. 


mbl.is Kosning hefst á laugardaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Maður er að kafna í óréttlætinu yfirdrepskapnum og kæruleysi stjórnmálamanna.  Og svo er ég skíthrædd við hvað framsókn gerir, þeim er til alls treystandi eða á maður að segja ótreystandi?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2009 kl. 11:49

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeim er ekki treystandi Ásthildur.

Sigrún Jónsdóttir, 25.2.2009 kl. 11:51

3 identicon

Veistu það Sigrún nú hef ég ekki hugmynd um hvað ég kýs. Bara alls ekki. Maður heldur á hverjum tíma að nú sé botninum náð en það er öðru nær. Framsóknarútslagið er með eindæmum. Sjáðu viðtölin við "drenginn"eins innan tóm og þau geta orðið. Hvað á þetta að þýða hjá honum?  Við höfum talað um sandkassa hingað til. Sandkassinn er flór..Og nóg af honum. Þetta er martröð..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 12:00

4 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Held ég taki upp þína tillögu Sigrún. Ekki var farið í mál við breta. Mér er allri lokið. Vil engan kjósa af þeim sem eru í boði.

Rut Sumarliðadóttir, 25.2.2009 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband