Leita í fréttum mbl.is

Okkar aðgerðir munu líka virka....sjáið bara til :=)

Þau hafa sennilega áttað sig á því að föstudags blaðamannafundirnir voru ekki að virka eins og til var ætlastSmile  Alltaf fjölgaði á Austurvelli á laugardags mótmælunum, þrátt fyrir eða einfaldlega vegna föstudags "dúsanna"Grin.

Nú boða þeir aðgerðaáætlun eftir helgi....kannski á lýðveldisdaginn, hver veit?  En kæru "landsfeður/mæður"  1. des er líka upptekinn, því þá verður haldinn Þjóðfundur á Arnarhóli...stutt í stjórnarráð og stutt í SvörtuloftBandit....meira um það síðarTounge

Í dag, laugardaginn 29. nóvember verður að venju haldinn mótmælafundur á Austurvelli kl. 15:00 undir faglegri stjórn Harðar Torfasonar.

Frummælendur á fundinum í dag verða:

Kristín Tómasdóttir, frístundaráðgjafi
Stefán Jónsson, leikstjóri
Illugi Jökulsson, rithöfundur 

Stöndum saman í kröfu okkar um breytt og betra samfélag.  Spillingarliðið burt, hvar í flokki sem það stendur!


mbl.is Aðgerðir kynntar eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér líst vel á ræðumennina sem verða á morgun.  Burt með spillingarliðið. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2008 kl. 00:59

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Spennandi ræðumenn, vona að þessu verði sjónvarpað

Sigrún Jónsdóttir, 29.11.2008 kl. 01:04

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Líst vel á þetta

Hólmdís Hjartardóttir, 29.11.2008 kl. 01:42

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er stolt af ykkur, og er með í huganum.  Ætla að horfa á sjóvarpið ef fundurinn verður sendur út.  Knús á þig Sigrún mín og mundu að klæða þig vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2008 kl. 11:54

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég verð með ykkur í anda, minn dagur að fara með mömmu heim í aðlögun í dag og því get ég ekki sleppt.

Áfram nýja Ísland.

Rut Sumarliðadóttir, 29.11.2008 kl. 12:28

6 Smámynd: Aprílrós

Verð með ykkur þótt ég verði ekki á staðnum. ;)

Aprílrós, 29.11.2008 kl. 13:28

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2008 kl. 13:44

8 Smámynd: Rannveig H

Það var helv,,, kalt góðar ræður, en mátti vera meira að fólki.

Rannveig H, 29.11.2008 kl. 22:55

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já asskoti kalt en hlýjar manni að sjá þó þennan fjölda standa saman í nepjunni og krefjast réttlætis. Okkur er ekki alls varnað.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.11.2008 kl. 08:28

10 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Ekki allir ræðumenn geti talað mínu máli, var ég með ykkur í andanum.  :)    Bestu kveðjur heim á Skerið!

Baldur Gautur Baldursson, 30.11.2008 kl. 09:52

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan og gleðilegan fyrsta sunnudag í aðventu og takk fyrir innlit

Ég er á kvöldvakt í kvöld og munum við samstarfskonur, klára jólaundirbúning glugganna.  Við höfum verið að mjatla þetta alla helgina

Mér finnst mætingin á Austurvöll í gær aðdáunarverð, miðað við þann fimbulkulda, sem var í loftinu

Sigrún Jónsdóttir, 30.11.2008 kl. 11:10

12 identicon

Ég átti von á að það væri meiri kengur í llluga hann er svo frábær penni

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband