Leita í fréttum mbl.is

Að stela senunni........

Merkilegur fjandi.  Á meðan þjóðin situr lömuð vegna hamfara af mannavöldum, tekst Framsóknarmönnum að beina athyglinni x 2 á nokkrum dögum að fársjúku innra starfi flokksins. 

gu_ni_agustsson.jpgÉg skil vel að Guðni hafi gefist upp fyrir "aftökuliðinu" í eigin flokki....þar ríkir sjúkt ástand, sem þeir einir viðurkenna, sem lent hafa í skotlínunni eða hafa orðið fyrir "hnífasettunum".

Guðni tekur fram í bréfi sínu til þingflokksins, að hann geri þetta fyrst og fremst fyrir flokkinn sinn. 

Ég hefði viljað, úr því hann tók þessa "stóru" ákvörðun að það hefði komið fram að hann væri að "axla ábyrgð" vegna mistaka, sem gerð voru í hans ríkisstjórnartíð.  Þar með hefði skapast gott fordæmi fyrir aðra þingmenn og ráðherra að fylgja í kjölfarið.

Annars er Guðni Ágústsson, drengur góður og ég óska honum og fjölskyldu hans velfarnaðar í nú- og framtíð.

Hver ætli segi af sér næst? og þá á réttum forsemdum.


mbl.is Guðni segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ætli þeir verði nokkuð fleiri sem segja af sér.....

Hrönn Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 17:58

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Framsóknarmennirnir meinarðu?  Nei, en þeir sem eftir eru þurfa að hætta í vor, þegar við höfum gengið til kosninga

Sigrún Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 18:07

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já hann hefði mátt láta það fljóta með að hann væri að axla ábyrgð

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 18:24

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þeir hinir segja aldrei af sér því þeir axla aldrei ábyrgð og hafa heldur aldrei gert neitt af sér.
Ljós til þín góða kona
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.11.2008 kl. 19:27

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég held að Framsókn sé liðin undir lok og farið hefur fé betra.

Helga Magnúsdóttir, 17.11.2008 kl. 19:35

6 identicon

Rétt hjá þér Sigrún, þegar þessir andsk.... eru búnir að stela öllu af okkur, þá stela þeir senunni líka. Er þessum mönnum ekkert heilagt ?  Hvar á Austurvelli á Hörður nú að standa ?   Það að hann fari frá, fyrst og fremst fyrir flokkinn, er kjaftæði. Hann, eins og svo margir aðrir axlar enga ábyrgð og flýr af landi brott og bíður eftir því, að við gleymum hvernig hann og aðrir félagar hans fóru illa að ráði sínu gagnvart þjóðinni.  Forgangsröðin hjá þessum vesalings mönnum er, og hefur alltaf verið:  Nr.1  Flokkurinn   Nr. 2  ÉG   Nr. 3  Vinir og ættingjar  Nr. 4  Þjóðin. Því miður er þetta staðreynd.

Bless í bili. Ég er ennþá hoppandi, band, sjóðandi snarvitlaus af vonzku, svo bezt er að ég hætti núna.

Kv. Kristján 

Kristján Helgason (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 Hvíli framsóknarflokkurinn í friði

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.11.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband